Vildi uppræta þöggun en ákvað að þegja um kynferðisbrot

Páley Borg­þórs­dóttir hefur komið fram sem málsvari þolenda kyn­ferð­is­of­beldis í fjöl­miðlum og sagði þá að þöggun sam­fé­lags­ins væri vanda­mál. Sem lög­reglu­stjóri vildi hún ekki veita upp­lýs­ingar um kyn­ferð­is­brot á þjóð­há­tíð og gagn­rýndi neyð­ar­mót­tök­una fyrir að gera það. Hér er farið yfir feril bæj­ar­full­trú­ans sem varð lög­reglu­stjóri.

Vildi uppræta þöggun en ákvað að þegja um kynferðisbrot

Páley Borg­þórs­dóttir, lög­reglu­stjóri í Vest­manna­eyjum, komst í kast­ljós fjöl­miðla í síð­ustu viku þegar hún sendi bréf á alla við­bragðs­að­ila á þjóð­há­tíð og hvatti til þess að ekki yrði greint frá kyn­ferð­is­brotum þessa helgi. Sagðist hún jafn­framt hafa tekið þá ákvörðun að lög­reglan myndi ekki greina frá slíkum brotum.

Fyrir vikið var Páley sökuð um þögg­un­ar­til­burði. Það er þó ekki langt síðan Páley sagði sjálf að þöggun um kyn­ferð­is­brot væri vanda­mál sem við sem sam­fé­lag yrðum að bæta úr – öll sem eitt. Hún var þá rétt­ar­gæslu­maður þol­anda kyn­ferð­is­brota og kom fram sem slíkur.

Nú hvatti hún hins vegar alla sem að þessum málum kæmu til að upp­lýsa ekki hvort kyn­ferð­is­brot hefðu verið framin á þjóð­há­tið. Vísað hún til þess að þeir væru bundir þagn­ar­skyldu og hvatti til þess að þeir myndu allir svara með sama hætti: „Við höfum enga heim­ild til að veita slíkar upp­lýs­ingar.“

Stundin óskaði eftir við­brögðum Ólafar Nordal inn­an­rík­is­ráð­herra í dag en var vísað á rík­is­lög­reglu­stjóra sem hefur það í hendi sér að stýra reglu­gerð varð­andi upp­lýs­inga­gjöf lög­regl­unnar. 

Fyrsta konan í embætti lögreglustjóra

Páley er fyrsta konan í emb­ætti lög­reglu­stjóra í Vest­manna­eyjum. Hún var skipuð af Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni til fimm ára og hóf störf þann 1. jan­úar 2015, um leið og ný reglu­gerð inn­an­rík­is­ráðu­neyt­is­ins tók gildi. Þar var umdæmum sýslu­manns­emb­ætta fækkað úr 24 í níu og lög­reglu­um­dæmum var fækkað úr 15 í níu. Áður höfðu lög­reglu­stjórn og sýslu­manns­störf fallið undir sýslu­manns­emb­ættið í Vest­manna­eyjum, en með breyt­ing­unum voru emb­ættin aðskilin.

Áður hafði Páley starfað sem lög­maður um ára­bil. Á árunum 2002-2007 var hún full­trúi sýslu­manns í Vest­mann­eyjum og stað­geng­ill hans frá árinu 2005. Í við­tali sem tekið var fyrir Eyja­fréttir árið 2006 lýsti Páley starf­inu sem fjöl­breyttu og lif­andi, enda væru full­trúar sýslu­manns­emb­ætta úti á landi allt í öllu. „Eins fara sýslu­mann með lög­reglu­stjórn. Þannig að stór hluti af mínu starfi eru lög­reglu­mál sem eru oft mjög krefj­andi.“ Hún þekkti því vel til þegar hún hóf störf sem lög­reglu­stjóri í Vest­mann­eyjum í byrjun árs.

„Við þurfum að aug­lýsa okkur þannig, koma bænum aftur á kortið sem fjöl­skyldubæ.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár