Með leik­muni í stof­unni „Daníel smíð­aði þennan stól fyrir sýn­ing­una mína, Flóru, þannig að hann er meira „props“, en það er samt alveg hægt að sitja í honum. Daníel var ekk­ert sér­stak­lega æstur í að fá hann inn á heim­ilið en ég var hins vegar alveg sjúk í hann. Ég held það hafi aðal­lega verið því það var frekar erfitt að bera hann hingað inn. Hann vann stól­inn ásamt Helga vini sínum út frá verkum Gerðar Helga­dóttur.“ Mynd: Kristinn Magnússon

Sækir innblástur til seiðkvenna

Hildur Yeoman fata­hönn­uður býr í gam­alli leigu­í­búð á Bar­óns­stíg. Fjöl­breytt mynd­list, skótau og íburð­ar­miklir stólar setja sterkan svip á heim­ilið. Hildur segir sjón­vörp ljótar mublur og vill heldur hafa list og potta­plöntur í kringum sig.

Hildur flutti inn í íbúð­ina í mars síð­ast­liðnum ásamt mynd­list­ar­mann­inum Daníel Björns­syni og sex ára syni þeirra. „Okkur fannst þessi íbúð svo björt og fal­leg og svo er stað­setn­ingin frá­bær,“ segir Hildur. „Ég labba niður göt­una í búð­ina mína, Kiosk, það er stutt í sund og síðan kenni ég uppi í Lista­há­skóla sem er einnig í göngu­fjar­lægð. Það er mjög þægi­legt.“

Ljósin
Ljósin „Ég var að fá mér þessi ljós. Þau eru ný og í raun fyrsta hönn­unin sem ég fjár­festi í. Þau fást í hönn­un­ar­vöru­versl­un­inni Snúrunni, en þar fæst einmitt skart eftir mig.“

Húsið á Seyðisfirði
Húsið á Seyð­is­firði „Þessi mynd er miklu upp­á­haldi en hún er eftir Sigga Eggerts vin minn. Við kynnt­umst í Lista­há­skól­anum en hann gerði þessa mynd af húsi sem við áttum á Seyð­is­firði. Hann kom í heim­sókn, sett­ist út í garð með tölv­una sína og teikn­aði mynd­ina. Svo gaf ég mann­inum mínum hana í jóla­gjöf fyrir nokkrum árum. Við eigum ekki húsið lengur. Það er mjög ópraktískt að eiga hús á Seyð­is­firði og vinna í Reykja­vík. Ég var mjög mikið á Seyð­is­firði þegar ég var barn því frændi minn bjó þar og á fjöl­skyldu þar og mjög marga vini. Þannig við förum mjög reglu­lega þangað.“

Framakonukjóll
Frama­konu­kjóll „Þetta er kjóll úr nýju lín­unni minni sem er komin í sölu í Kiosk. Hún er byggð út frá inn­blæstri sem ég fékk frá seið­konum og blómum. Hún Krist­björg á Seyð­is­firði sýndi mér hvaða blómum maður á að blanda saman til að fá út mis­mund­andi seiði. Þessi kjóll er mjög orku­mik­ill. Seiðið á að auka sjálfs­ör­yggi og kraft. Þetta er svona frama­konu­kjóll.“

Stjörnuhiminn
Stjörnu­him­inn „Hekla vin­kona okkar gerði þetta verk og þetta er sem sagt him­inn­inn þegar ég fædd­ist. Daníel gaf mér hana einu sinni í jóla­gjöf. Hún gerir svona verk og þetta er ótrú­lega skemmti­legt concept.“

Íbúðin er hólfuð niður á gamlan íslenskan máta í tvö svefn­her­bergi, tvær stofur, eld­hús og bað­her­bergi. Það fyrsta sem maður tekur eftir eru tveir 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár