Ritstjóri DV líkir rannsóknum á hrunmálum við Geirfinnsmálið

Eggert Skúlason, rit­stjóri DV, kemst að þeirri nið­ur­stöðu í nýrri bók sinni að rann­saka beri ofsóknir á hendur þeim sem rann­sak­aðir voru vegna meintra efna­hags­glæpa.

Ritstjóri DV líkir rannsóknum á hrunmálum við Geirfinnsmálið
Eggert Skúlason Eggert var ráð­inn rit­stjóri DV í jan­úar, eftir að hafa skrifað skýrslu um DV sem túlkuð var sem „áfell­is­dómur“ yfir rit­stjórn blaðs­ins. Mynd: Hringbraut.is

Eggert Skúlason, rit­stjóri DV, hvetur til opin­berra rann­sókna á mann­rétt­inda­brotum gegn þeim sem rann­sak­aðir voru eftir hrun, í nið­ur­stöðukafla nýrrar bókar hans sem gefin er út af bóka­for­lagi í eigu Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar pró­fess­ors, Kjartans Gunn­ars­sonar, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóra Sjálf­stæð­is­flokks­ins, og Baldurs Guð­laugs­sonar, fyrr­ver­andi ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

„Líkt og Geirfinnsmálið“

Bók Eggerts, And­er­senskjölin - rann­sóknir eða ofsóknir, fjallar meðal ann­ars um mál Gunnars Andersen, fyrr­ver­andi for­stjóra Fjár­mála­eft­ir­lits­ins, sem var dæmdur fyrir að leka trún­að­ar­skjölum um lána­við­skipti Guðlaugs Þór Þórð­ar­sonar, þing­manns Sjálf­stæð­is­flokks­ins, til DV, sem Eggert rit­stýrir nú.

Meg­in­þema bók­ar­innar er að rann­sóknir á glæpum tengdum hrun­inu hafi að hluta verið ofsóknir. Þá eru upp­lýs­inga­lekar til fjöl­miðla gagn­rýndir, meðal ann­ars upp­lýs­inga­leki sem leiddi til þess að almenn­ingi var greint frá stærstu lán­þegum Kaup­þings. Ítarlega var fjallað um málið í DV á sínum tíma. Meðal þess sem kom fram var að starfs­menn Kaup­þings hefðu fengið allt að hund­ruð millj­óna króna kúlu­lán til að kaupa hluta­bréf í bank­anum.

Í nið­ur­lagskafla bók­ar­innar líkir Eggert stöðu þeirra sem voru rann­sak­aðir eftir banka­hrunið við stöðu sak­born­inga í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu. 

„Sú mis­notkun valds, sem átti sér stað gagn­vart fjölda ein­stak­linga eftir hrun bank­anna, muni lifa með þjóð­inni líkt og Guð­mundar- og Geir­finns­málið.“

„Mér segir svo hugur um að það ástand og sú mis­notkun valds, sem átti sér stað gagn­vart fjölda ein­stak­linga eftir hrun bank­anna, muni lifa með þjóð­inni líkt og Guð­mundar- og Geir­finns­málið. Hér eru ein­ungis örfá dæmi um ein­stak­linga sem telja sig hafa verið mis­rétti beitta. Málin eru miklu fleiri. Verða þessi mögu­legu rétt­ar­brot gegn mann­rétt­indum ein­stak­linga rann­sökuð? Opin­berir aðilar hafa eytt fjár­munum í ómerki­legri rann­sóknir.“

Hundrað daga einangrun

Í Guð­mundar- og Geir­finns­mál­inu árið 1974 voru fjögur ung­menni hand­tekin og sett í ein­angrun í 90 til 105 daga. Þau ját­uðu aðild að hvarfi Geir­finns Ein­ars­sonar, en drógu síðar játn­ingar sínar til baka og vís­uðu til þess að hafa verið beitt harð­ræði og þving­unum af lög­reglu. Utan játn­inga þeirra voru engar sann­anir fyrir því að þau hefðu komið að hvarfi Geir­finns og lík hans fannst aldrei. Síðar voru þau dæmd sek í Hæsta­rétti.

Eigendur bókaútgáfunnar úr kjarna Sjálfstæðisflokksins

Eggert starf­aði sem almanna­teng­ill áður en hann var ráð­inn rit­stjóri DV. Hann hafði meðal ann­ars áður unnið að kosn­inga­bar­áttu Björns Inga Hrafns­sonar, sem var borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins, en það var Björn Ingi sem réð hann rit­stjóra DV, eftir yfir­töku á félag­inu í vetur.

Almenna bóka­út­gáfan gefur út bók­ina. Hún er hluti af BF-útgáfu ehf, sem er í eigu þjóð­kunnra sjálf­stæð­is­manna. Öld ehf, sem er í eigu Hannesar Hólm­steins Giss­ur­ar­sonar stjórn­mála­fræði­pró­fess­ors, á 50% í félag­inu, Baldur Guð­laugs­son á 25%, Kjartan Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Sjálf­stæð­is­flokks­ins 20% og fara óþekktir hlut­hafar með 5% hluta­fjár.

Einn eig­end­anna, Baldur Guð­laugs­son, var dæmdur fyrir inn­herj­ar­svik í aðdrag­anda banka­hruns­ins, þegar hann seldi hluta­bréf í Lands­bank­anum fyrir 192 millj­ónir króna á sama tíma og hann bjó yfir inn­herj­a­upp­lýs­ingum um bank­ana vegna starfs síns. Hann hefur kært máls­með­ferð­ina á sér til Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu.

Kaupþingsmenn í stjórn og framkvæmdastjórn

Einn af stjórn­ar­mönnum félags­ins er Ármann Þor­valds­son, fyrr­ver­andi banka­stjóri Kaupt­hing Singer & Fried­lander í London.

Jónas Björn Sig­ur­geirs­son, fyrr­ver­andi upp­lýs­inga­full­trúi Kaup­þings, er pró­kúru­hafi,  fram­kvæmda­stjóri og for­stöðu­maður útgáf­unnar.

Fjallað er um bók Eggerts í DV í dag, en blað­inu er dreift frítt til allra lands­manna. Þar segir frá því að Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, hafi fengið til­boð um að kaupa gögn úr Fjár­mála­eft­ir­lit­inu fyrir 30 millj­ónir króna. Samkvæmt til­vitnun DV í bók Eggerts „átti inni­hald skýrsl­unnar… að sýna fram á ýmis sjón­ar­mið sem styddu við þá skoðun að stjórn­endur Kaup­þings hefðu ekki gerst sekir um mark­aðs­mis­notkun.“

Stjórn­endur Kaup­þings voru dæmdir fyrir mark­aðs­mis­notkun í Al Thani-mál­inu svo­kall­aða í febr­ú­ar­mán­uði, þar á meðal Hreiðar Már, og sitja nú í fang­elsi á Kvía­bryggju. Stærsta málið gegn starfs­mönnum Kaup­þings fyrir mark­aðs­mis­notkun er hins vegar enn rekið fyrir Hér­aðs­dómi Reykja­víkur.

Annar ritstjóri líkti rannsóknum við Geirfinnsmálið

Eggert er ekki eini rit­stjóri íslensks dag­blaðs sem líkt hefur rann­sóknum á meintum efna­hags­glæpum í aðdrag­anda hruns­ins við Guð­mundar- og Geir­finns­málið. Kristín Þor­steins­dóttir, fyrr­ver­andi frétta­maður og starfs­maður á sam­skipta­sviði Baugs, skrif­aði aðsenda grein í Frétta­blaðið 3. jan­úar 2013 þar sem hún var­aði við yfir­vof­andi rétt­ar­morðum vegna rann­sókn­anna og gagn­rýndi rann­sóknir á meintum efna­hags­brotum.

„Það fer um margan góðan blaða­mann­inn, fyrr­ver­andi og núver­andi, sem nú er á miðjum aldri, þegar minnst er á Guð­mundar- og Geir­finns­mál. Þeir vita upp á sig skömm­ina. Þeir áttu ekki að ganga í lið með refsi­vald­inu heldur gæta hlut­leysis, spyrja spurn­inga og fá svör en gera minna af því að kinka kolli til yfir­valds­ins. Skárra er að fá engan dóm í saka­máli en vondan.“

Árið eftir var Kristín ráðin aðal­rit­stjóri 365. Þar hefur hún haldið áfram að gagn­rýna sér­stakan sak­sókn­ara og Hæsta­rétt fyrir rann­sóknir og dóma í efna­hags­brota­málum, meðal ann­ars á meintum brotum eig­in­manns aðal­eig­anda 365.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
1
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Spurningaþraut Illuga: Noregskonungar, viskugyðjur og eitt fjall
5
Þrautir

Spurn­inga­þraut Illuga: Nor­egs­kon­ungar, visku­gyðjur og eitt fjall

Hver var Nor­egs­kon­ungur þá Íslend­ingar gengu Norð­mönnum á hönd – að minnsta kosti sam­kvæmt hefð­bund­inni sögu­skoðun? Hvað heitir sú kona í Banda­ríkj­unum sem var fyrir rétti sökuð um að myrða börn sín þrjú? Ann­að­hvort skírnar- eða eft­ir­nafn dugar. Árið 1975 var Jónas Krist­jáns­son rek­inn sem rit­stjóri Vísis og stofn­aði þá ásamt sam­starfs­fólki nýtt dag­blað. Hvað nefnd­ist það? Hvað heitir nýorðin...

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
Ástleysið er sárt
3
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár