„Ranghugmynd að Sjálfstæðisflokkurinn sé markaðssinnaður flokkur“

Jón Steins­son hag­fræð­ingur gagn­rýnir rík­is­styrki til frænd­fólks Bjarna Bene­dikts­sonar

„Ranghugmynd að Sjálfstæðisflokkurinn sé markaðssinnaður flokkur“

„Hver sá sem enn er hald­inn þeirri rang­hug­mynd að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn sé mark­aðs­sinn­aður flokkur ætti að horfa á Ragn­heiði Elínu reyna að verja rík­is­styrki til fyr­ir­tækis í eigu frænd­fólks Bjarna Ben vegna fjár­fest­ingar sem þau segja að muni ann­ars ekki standa undir sér þótt aðrir standi í svip­uðum rekstri.“

Þannig skrifar Jón Steins­son, dós­ent í hag­fræði við Columbia-háskóla í New York, á Facebook í kvöld. Í Kast­ljósi var fjallað um fjár­fest­ing­ar­samn­ing rík­is­ins við Matorku vegna bleikju­eldis á Reykja­nesi, en sam­kvæmt samn­ingnum fær fyr­ir­tækið rík­is­styrk upp á tæpar 430 millj­ónir króna auk þjálf­un­ar­styrks sem gæti orðið allt að 295 millj­ónir. Þannig er hlut­fall íviln­ana nærri 60 pró­sent af heild­ar­fjár­fest­ing­unni. 

Matorka ehf. er í eigu sviss­neska fyr­ir­tæk­is­ins Matorku Holding AS, en í stjórn þess sitja þeir Benedikt Ein­ars­son og Eiríkur Svav­ars­son. Benedikt er frændi Bjarna Bene­dikts­sonar fjár­mála­ráð­herra og var við­skipta­fé­lagi hans á árunum fyrir hrun. Þá á hann hlut í Thorsil, fyr­ir­tæki sem nýlega gerði fjár­fest­ing­ar­samn­ing við stjórn­völd vegna kís­il­iðju á Reykja­nesi, en þar að auki var hann á meðal þeirra fjár­festa sem keyptu hlut í Borgun af Lands­bank­anum bak við luktar dyr í fyrra. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár