Mynd: Kristinn Magnússon

„Pólitísk svik eru gjarnan tengd loforðum sem reynist erfitt að uppfylla“

Fyrsta verk­efni Óttars Proppé, for­manns Bjartrar fram­tíðar, eftir kosn­ingar yrði að leggja niður manna­nafna­nefnd. Hann seg­ist fá lík­am­legt ofnæmi þegar hann finnur sig í umhverfi þar sem karlar sitja einir að ráðum.

Óttarr Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, fór upp­haf­lega óvart út í stjórn­mál til að styðja við Jón Gnarr í Besta flokknum í borg­inni. „Ég hef haldið áfram í stjórn­málum af því að ég vil gera gagn og hef fundið að ég get haft jákvæð áhrif,“ segir hann. 

 

 

Björt fram­tíð var stofnuð árið 2012 og bauð í fyrsta skipti fram í alþing­is­kosn­ingum árið 2013. Flokk­ur­inn fékk 8,2 pró­senta fylgi og sex þing­menn. Björt fram­tíð er „frjáls­lynd og bjart­sýn miðju­hreyf­ing“ og hefur vakið athygli fyrir áherslu á ábyrg stjórn­mál, meiri sátt og jákvæð­ari umræðu á Alþingi. 

Óttarr tók við for­mennsku í flokknum á síð­asta ári eftir að Guð­mundur Stein­gríms­son hætti sem for­maður. Á sama tíma hætti Róbert Marshall sem þing­lokks­for­maður flokks­ins. 

Aðspurður hvernig standi á því að flokkur sem hafi „meiri sátt“ sem eina af fjórum meg­in­stefnum endi með upp­gjöri tveggja 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár