Óvinaþjóðir sameinast um hummus

Myndband: Gerðu þína eigin útgáfu á innan við fimm mín­útum

Óvinaþjóðir sameinast um hummus

Dauðs­föll, mann­rétt­inda­brot og spreng­ingar í Palest­ínu og Ísrael eru því miður dag­legt brauð. Í fimm ára­tugi, eða síðan 1967, hafa þessar tvær þjóðir tek­ist á og spennan magn­ast upp með hverju degi.

Deilan snýst ekki um trú, heldur um land­svæði, enda eiga gyð­ingar og múslimar fleira sam­eig­in­legt heldur en flesta grunar. Það má til dæmis nefna að þeir til­biðja sama guð­inn, þótt múslimar kalli hann öðru nafni en gyð­ingar, er Allah ekki ein­hvers­konar arab­ískur guð eins og and­inn í Aladín, heldur þýðir nafnið ein­fald­lega „guð“.

Heilsu­m­áti beggja trú­ar­bragða er keim­líkur, en múslimar nota „salaam“ og gyð­ingar „shalom“. Bæði orðin þýða friður.

Gyðingar og múslimar eru afkom­endur Abrahams, gyð­ingar eru komnir af syni Abrahams Ísak, en múslimar eru komnir af bróður hans, Ismael, og eru því náskyld.

Í báðum trú­ar­brögðum er mikil áhersla lögð á að gefa pen­inga til góð­gerð­ar­mála, og er gest­risni einn af horn­steinum …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár