„Ég hélt mig vera að dauða kominn“

Leifur Muller var í fanga­búðum nas­ista þar sem hver dagur var bar­átta upp á líf og dauða. Hungur, sjúk­dómar, pynt­ingar og dauði voru dag­legt brauð. Leifur lifði voða­verkin af en náði sér aldrei til fulls. Svikari hans var fram­seldur til Íslands.

Ungur að aldri
Ungur að aldri Eins og aðrir fangar fékk Leifur auð­kennis­númer við kom­una í fanga­búð­irnar. Hann var hand­tek­inn vegna fyr­ir­ætl­ana um að fara til heim til Íslands. Hann var 22 ára gam­all.

„Í verstu hit­unum á sumrin kvald­ist ég svo af þorsta að ég drakk hvern vatns­dropa sem ég gat náð í því að það lin­aði þó hung­ur­kval­irnar augna­blik meðan það fyllti mag­ann,“ skrif­aði Leifur H. Muller um dvöl­ina í Sachsenhausen „ger­eyð­ing­ar­búðum nazistanna,“ þar sem hann end­aði eftir svik ann­ars Íslend­ings, Ólafs Pét­urs­sonar.

Leifur var fæddur í Reykja­vík árið 1920, sonur þeirra Lorentz H. Müller og Marie Ber­tels­sen, sem ráku Verslun L. H. Müller í Aust­ur­stræti 17. Leifur gekk í Landa­kots­skóla og fór síðan í gagn­fræða­deild Mennta­skól­ans í Reykja­vík. Þar sem honum var ætlað að taka við verslun föður síns var hann sendur utan í versl­un­ar­nám í Ósló.

Leifur var enn í Noregi þegar landið var hernumið af Þjóð­verjum árið 1940. Eftir að Ísland var hernumið af Bretum leit þýska her­náms­stjórnin á Íslands sem óvina­land. Lokað var á ferðir á milli þess­ara landa, en Leifur þráði að kom­ast aftur heim til Íslands. Úr varð að ræð­is­maður Íslands í Noregi útveg­aði honum skóla­vist í Svíþjóð og lof­aði að koma honum þaðan til Bret­lands. Síðan ætl­aði Leifur til Íslands.

Áður en til þess kom var Leifur svik­inn í hendur nas­ista. Við tók ein­hver hrylli­leg­asta fang­els­is­vist sem Íslend­ingur hefur þurft að þola, fyrst í Grini-fang­els­inu í Noregi og síðan í hinum alræmdu Sachsenhausen-fanga­búðum í Þýska­landi.

Nauðungarvinna í líkkjallaranum

Í Sachsenhausen var hver dagur var bar­átta upp á líf og dauða undir járn­hæl nas­ista þar sem hungur, sjúk­dómar, pynt­ingar og dauði voru dag­legt brauð. Um 200 þús­und fangar hafi fóru í gegnum fanga­búð­irnar, af þeim lét­ust á milli 30-40 þús­und fangar.

Stundum voru nas­ist­arnir að grípa í hann í gríni þarna í lík­brennsl­unni og segja: „Næst tökum við Muller.“

Við kom­una í Sachsenhausen var Leifur auð­kenndur með núm­er­inu 68138 og merktur með rauðum þrí­hyrn­ingi sem þýddi að hann var póli­tískur fangi, ekki gyð­ingur. Var honum gert að vinna nauð­ung­ar­vinnu fyrir nas­istana, sem fór meðal ann­ars fram í líkkjall­ar­naum þar sem hann þurfti að draga gull­tennur úr líkum áður en þau voru brennd. „Stundum voru nas­ist­arnir að grípa í hann í gríni þarna í lík­brennsl­unni og segja: „Næst tökum við Muller.“ Auðvitað varð hann dauð­hræddur því víst er að þeir voru alveg nógu brjál­aðir til að fram­kvæma þetta,“ segir dóttir hans, Björg Muller, í Frétta­tím­anum í dag, þar sem börn Leifs eru í við­tali. 

Leifur hélt dag­bók í fanga­búð­unum og aðeins nokkrum mán­uðum eftir heim­kom­una hafði hann gefið út bók um dvöl­ina þar. Bókin kom út í sept­em­ber 1945 og er ein fyrsta bókin sem var rituð í heim­inum um Hel­för­ina.

Sömu áhöld notuð á alla
Sömu áhöld notuð á alla Færi maður í sjúkra­húsið var hinn sami smyrsla­spaði not­aður við alla sjúk­linga, hvort heldur þeir höfðu stór sár eða lítil, hættu­leg eða ekki, skrif­aði Leifur.

Í fanga­búðum nazista hefur nú verið end­ur­út­gefin. Við birtum brot úr bók­inni:

Sjúkrahúsið

Sjúkra­húsið var yfir­fullt svo að fjórir til fimm menn lágu oft í tveim kojum. Sumir voru svo veikir að þeir höfðu ekki þrek til þess að fara fram úr til þess að gera þarfir sínar svo að saur þeirra lenti í koj­unum og rann úr þeim efri í hinar neðri. Í sjúkra­söl­unum lágu oft 70–80 menn, en mat­ar­í­lát voru ekki til handa fleiri en 25–30, svo að þegar svo margir voru búnir var bara hellt í handa þeim næsta án þess að nokkur þvottur færi fram á ílát­unum. Þeir sem voru lítið veikir urðu þá einatt að nota sömu ílát og dauð­vona menn.

Ekkert lang­borð var í sjúkra­salnum svo að ílátin voru látin standa á gólf­inu meðan súp­unni var hellt í þau, en síðan var þeim útbýtt. En meðan þau stóðu á gólf­inu, hlupu menn oft fram hjá á leið fram á sal­ernið og það kom fyrir að þeir gátu ekki haldið í sér svo að saur­inn slett­ist um allt, jafn­vel ofan í skál­arnar. En hjúkr­un­ar­liðið var ekki mikið að súta það þótt fang­arnir fengju slíkan ábæti.

„Saur þeirra lenti í koj­unum og rann úr þeim efri í hinar neðri.“

Veikin breidd­ist ákaf­lega ört út í skála okkar og voru átta til tíu menn fluttir í sjúkra­húsið dag­lega í heila viku. Tíu þeirra dóu úr veik­inni. Ég smit­að­ist eins og fleiri, en var þó ekki mjög þungt hald­inn. Þurfti ég þó að fara fram fimm til sex sinnum á dag og lá mér ákaf­lega mikið á í hvert skipti.

Það var sér­stak­lega einn dag­inn sem ég var mjög slæmur. Fékk ég þá maga­krampa svo að ég fór til lækn­is­skoð­unar því að ég hélt mig vera að dauða kom­inn. Þar var mér skipað að gefa „sýn­is­horn“ af saur mínum til þess að hægt væri að sjá hvort blóð væri í honum, en mér var ger­sam­lega ómögu­legt að „gera“ nokkurn skap­aðan hlut eftir skipun. Sá sem átti að rann­saka mig rak á eftir mér og sagði mér að vera fljótur því að margir biðu. En ég gat ekk­ert og var rek­inn á dyr með skömmum og sví­virð­ingum.

„Scheiserei“ fylgdi all­hár hiti og þorsti eins og ég sagði áðan, en þeim var hætt­ast til að deyja sem gátu ekki neitað sér um að drekka.

Útbrot

Auk „Scheiserei“ voru margir illa haldnir af alls konar húð­sjúk­dómum og útbrotum. Ég smit­að­ist af útbrotum sem lýstu sér í því að smá­blöðrur hlupu upp á lærum og maga og breidd­ust þaðan ört út um allan lík­amann. Þegar blöðr­urnar hjöðn­uðu á einum stað komu þær bara ann­ars staðar. Sár duttu á mig í and­liti, höku og hálsi. Vildu þau ekki gróa, en ég átti bágt með að þvo mér meðan svona stóð á og gat ekki rakað mig. Þennan fjanda gekk ég með í nærri sex vikur. Lækn­ir­inn gaf mér ein­hver smyrsl og duft, en hvor­ugt kom að gagni.

 „Sár duttu á mig í and­liti, höku og hálsi. Vildu þau ekki gróa, en ég átti bágt með að þvo mér meðan svona stóð á.“

Slíkir sjúk­dómar voru mjög algengir meðal fang­anna, einnig alls konar verkir og bólgur og kýli og hefur þetta senni­lega allt stafað af matnum og vatn­inu. Sumir fengu ljót kýli um allan lík­amann og væri stungið á einu, var annað óðara komið í þess stað. Stundum var jafn­vel stungið á sama kýl­inu sex eða sjö sinnum og það dugði ekki.

Hinn svo­nefndi „Phleg­mone“ var versti verk­ur­inn sem menn fengu. Verk þennan fundu menn um allan lík­amann en þó helzt í útlimum. Einn kunn­ingi minn fann til verkjar í öðru augna­lok­inu. Breidd­ist hann brátt til sjálfs aug­ans og missti mað­ur­inn sjón­ina. Oft sást ekk­ert þar sem menn fundu til verkjar, og varð að gera djúpa skurði til þess að kom­ast að mein­inu. Örin eftir verk þennan urðu oft svört á lit.

Sýklabæli
Sýkla­bæli Mikill óþrifn­aður var í fanga­búð­unum og alls kyns pestir gengu á milli manna. Versti verk­ur­inn kall­að­ist „Phleg­mone“. Hann fundu menn um allan lík­amann en helst í útlimum. Oft varð að gera djúpa skurði til að kom­ast að mein­inu. Örin eftir verk­inn urðu oft svört á lit.

Mannakjöt?

Þá var mjög mikið vatn í lík­ama sumra fang­anna svo að fætur þeirra stokk­bólgn­uðu. Var þetta eðli­legt þar sem svo mikið vatn var í mat okkar og feiti fékk maður enga. Eins og ég hef þegar sagt var aðalmat­ur­inn lap­þunnt súpu­gutl, raun­veru­lega lítið annað en kál­vatn. Þetta fengum við næstum því á hverjum degi allan árs­ins hring. Einu und­an­tekn­ing­arnar voru aðal­há­tíð­irnar og ein­stakir sunnu­dagar og fengum við þá svo­nefnt „Gullasch“. Var það brún sósa með örfáum kjöt­bitum – gamlir Úkraínar að sögn.

„Var það brún sósa með örfáum kjöt­bitum – gamlir Úkraínar að sögn.“

Þótt menn væru stál­hraustir þegar þeir komu í fanga­búð­irnar, en veikt­ust svo eitt­hvað, þá voru þeir ævin­lega mjög lengi að ná sér. Var þá ekki að sökum að spyrja um þá sem veik­byggð­ari voru, því að þeir dóu oft­ast þegar skæðir sjúk­dómar gengu í fanga­búð­unum.

Í verstu hit­unum á sumrin kvald­ist ég svo af þorsta að ég drakk hvern vatns­dropa sem ég gat náð í því að það lin­aði þó hung­ur­kval­irnar augna­blik meðan það fyllti mag­ann. Við vorum stöðugt varaðir við að drekka ósoðið vatn, og það er hægt að svelta, en ég gat að minnsta kosti ekki gert hvort tveggja, að þjást af hungri og þorsta, svo að ég sinnti ekk­ert um aðvar­an­irnar. Ég hugs­aði sem svo, ann­að­hvort þoli ég það eða ekki – það mun tím­inn leiða í ljós. Það var líka næsta þýð­ing­ar­lítið að vera gæt­inn og sýna varúð í slíku sýkla­bæli.

Sá á eftir mörgum samföngum
Sá á eftir mörgum sam­föngum Leifur sá á eftir mörgum sam­föngum sínum, sem lét­ust annað hvort af sjúk­dómum eða voru drepnir. Þeir sem veik­byggð­ari voru dóu oft­ast þegar skæðir sjúk­dómar gengu í fanga­búð­unum.

Óþrifnaðurinn

Ábreið­urnar sem voru í flet­unum okkar höfðu til dæmis ekki verið þvegnar í tíu ár, síðan fanga­búð­irnar voru stofn­aðar. Þótt maður þvægi sér vel og vand­lega, eins og maður hafði vanizt heima hjá sér áður en maður fór að sofa, þá fékk maður strax á sig ein­hverjar sótt­kveikjur jafn­skjótt og maður kom við ábreið­urnar og svo varð maður að liggja nak­inn vegna hit­ans í þessu sótt­kveikju­hreiðri. Gólfin voru aldrei þvegin. Borðið, sem við smurðum brauðið okkar á, var milli mál­tíða svart af flugum sem komu flestar utan af sal­ern­inu. Af því var bara þurrkað með rakri dulu, sápa var ekki til. Færi maður í sjúkra­húsið var hinn sami smyrsla­spaði not­aður við alla sjúk­linga, hvort heldur þeir höfðu stór sár eða lítil, hættu­leg eða ekki.

„Sami speg­ill­inn var not­aður við alla tann­sjúk­linga og aldrei þveg­inn á milli.“ 

Væri maður með tann­verk var maður fyrst rann­sak­aður með þeim hætti að litlum spegli var stungið upp í mann til þess að svip­ast um eftir skemmdum. Sami speg­ill­inn var not­aður við alla tann­sjúk­linga og aldrei þveg­inn á milli. Þetta eru aðeins örfá dæmi, en nefna mætti ótal fleiri og það kom oft á dag­inn að þeir dóu fljót­ast sem ætl­uðu að vera gætnir og gerðu alls konar var­úð­ar­ráð­staf­anir.

„Hann náði sér aldrei“

Leifi var bjargað úr fanga­búð­unum í mars 1945 og kom til Íslands 7. júlí. Hann mætti algjöru skiln­ings­leysi þegar hann reyndi að segja frá hörm­ung­unum sem hann upp­lifði í Sachsenhausen – for­sal hel­vítis nas­ism­ans, eins og sonur hans, Sveinn Muller, orð­aði það í Kiljunni á mið­viku­dags­kvöld.

Sagði hann að faðir sinn hefði aldrei jafnað sig á dvöl­inni í fanga­búð­unum. Skömmu eftir heim­kom­una greind­ist Leifur með berkla og alla ævi glímdi hann við ýmis vanda­mál. „Hann náði sér aldrei, hvorki lík­am­lega né and­lega. Hann var að glíma við þetta alla ævi,“ sagði Sveinn. Sagði hann að faðir sinn hefði mætt mann­vonsku af verstu gerð, hungri, sjúk­dómum, heng­ingum og til­raunum á föngum.

Leifur kvænt­ist, eign­að­ist börn og tók við verslun föður síns um tíma. Hann lést 24. ágúst 1988, 67 ára að aldri.

Heimsóttu fangabúðirnar
Heim­sóttu fanga­búð­irnar Hér eru þeir Wilhelm Frick, inn­an­rík­is­ráð­herra Nas­ista­flokks­ins, og Heinrich Himmler, yfir­maður Gestapó og SS sveit­anna, í Sachsenhausen fanga­búð­unum árið 1936. Eftir að stríð­inu lauk var Frick dæmdur fyrir voða­verk sín en Himmler framdi sjálfs­morð.

„Íslenski böðullinn“

Maðurinn sem sveik Leif í hendur Gestapó hét Ólafur Pét­urs­son. Hann hafði verið náms­maður í Noregi á sama tíma og Leifur, en var far­inn að vinna fyrir leyni­þjón­ustu þýsku her­náms­stjórn­ar­innar þegar hann hafði sam­band við Leif og bauð honum í kaffi. Þeir þekkt­ust ekki mikið en Ólafur virt­ist ákaf­lega for­vit­inn um hagi Leifs sem treysti honum fyrir því að hann ætl­aði til Íslands. Talið er að Ólafur hafi sagt til Leifs sem var í kjöl­farið hand­tek­inn, yfir­heyrður og færður í fang­elsi.

„Ólafur var fram­seldur til Íslands og sat hann því aðeins í fang­elsi í 72 daga.“

Í við­tali við Frétta­tím­ann segir Sveinn: „Ólafur Pét­urs­son var seinna kall­aður „íslenski böð­ull­inn“ því tugir manna end­uðu í fanga­búðum vegna hans og fjöldi þeirra lést.

Ólafur var dæmdur í 20 ára fang­elsi í Noregi eftir stríðið sem þótti mjög þungur dómur. Bjarni Bene­dikts­son, þáver­andi utan­rík­is­ráð­herra, beitti sér síðan fyrir því að Ólafur var fram­seldur til Íslands og sat hann því aðeins í fang­elsi í 72 daga. Mér finnst það hrein­lega til skammar.“ 

Sá Ólaf á Íslandi 

Árið 1988 skrif­aði Garðar Sverr­is­son bók­ina Býr Íslend­ingur hér? „Þetta er ævi­saga hans sem hefst í vernd­uðu umhverfi góð­borg­ara vestur á Stýri­manna­stíg þar sem Leifur er einn af þeim piltum sem engum kom til hugar að þyrfti nokkurn tíma að hafa fyrir lífi sínu,“  útskýrði Garðar í við­tali við DV þegar bókin kom út.

Í bók­inni sagði Leifur frá áhrifum voða­verk­anna á allt hans líf. Hann þjáð­ist af fanga­búð­ar­ein­kennum, svefn­trufl­unum og sál­rænum ein­kennum. „Í fanga­búð­unum skemmd­ist maginn líka var­an­lega þótt ekki sé vitað hvort því olli við­var­andi hungur eða ótt­inn sem menn bjuggu stöðugt við.“

„Hann reyndi að leiða hjá sér allt sem minnti á nas­is­mann og gömlu martröð­ina.“

Þar kom fram að Leifur bæri ekki hefnd­ar­hug til nas­ist­anna en gæti aldrei fyr­ir­gefið þeim. Það væri svo margt sem gerð­ist sem hann gæti hvorki gleymt né fyr­ir­gefið.

Hann hefði alltaf ásakað sjálfan sig fyrir örlög sín, því hann hefði trúað öðrum fyrir áætl­unum sínum um að fara til Íslands. Hann hefði einu sinni séð Ólaf eftir stríðið en komið sér hjá því að hitta hann. „Honum þótti óþægi­legt að hitta menn af þessu tagi. Hann reyndi að leiða hjá sér allt sem minnti á nas­is­mann og gömlu martröð­ina.“

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár