Líkti Kastljósinu við Hitler - er sjálfur í gögnunum

Nafn hæsta­rétt­ar­lög­manns­ins Sigurðar G. Guð­jóns­sonar er að finna í Panama-skjöl­unum. Sigurður hefur áður líkt vinnu­brögðum frétta­manna í umfjöllun um aflands­fé­lög við vinnu­brögð Hitlers.

Nafn Sigurðar G. Guð­jóns­sonar, hæsta­rétt­ar­lög­manns og eins eig­anda Pressunnar ehf., er að finna í Panama-skjöl­unum svoköll­uðu sem Alþjóða­sam­tök rann­sókn­ar­blaða­manna gerðu opin­ber síð­degis í gær. Sigurður vakti athygli nýverið þegar hann líkti vinnu­brögðum Kast­ljóss á RÚV í umfjöllun sinni á aflands­fé­lögum við vinnu­brögð Hitlers. „Af ein­hverjum ástæðum virð­ist eng­inn sjá neitt athuga­vert við þau vinnu­brögð sem Kastljós Rík­is­út­varps­ins beitir. Nú er ekk­ert til sem heitir frið­helgi einka­lífs, nú er ekk­ert til sem heitir að glugga í póst ann­arra. Nú skiptir bara máli að ala á ólgu og tor­tryggni alveg eins Hitler og smá­mennin í kringum hann gerðu,“ skrif­aði Sigurður orð­rétt í blogg­færslu sinni á Press­unni. 

Félag stofnað um hlut í Stöð 2

Félag Sigurðar G. nefnd­ist Janner Consulting Corp. og var skráð á Bresku Jóm­frú­areyj­unum. Samkvæmt upp­lýs­ingum úr gagna­grunn­inum var félagið stofnað í jan­úar 2006 en afskráð í októ­ber 2011. 

Fjöl­miðla­mað­ur­inn Kristinn Hrafns­son vakti athygli á aflands­fé­lagi Sigurðar á Facebook-síðu sinni í gær. Í athuga­semd við færslu Kristins 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.
FréttirPanamaskjölin

Fengu fjöl­skyldu­mál­verk í hend­urnar eftir umfjöllun Stund­ar­innar

Skoskar mæðgur sem komu til Íslands í byrjun árs í leit að svörum við spurn­ingum sem leitað hafa á fjöl­skyldu þeirra eru þakk­látar Íslend­ingi sem sendi þeim mál­verk sem var í eigu ömmu þeirra og langömmu á Íslandi. Gunnar Eggert Guð­munds­son taldi rétt­ast að fjöl­skyldan fengi mál­verkið þar sem þau fengu lítið sem ekk­ert úr búi Áslaugar.

10 mín. lestur

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár