Jólalifrarkæfa með gráðaosti

Óskar Ericsson segir jóla­kæfu ómissandi á jólum og að auð­velt sé að búa hana til frá grunni.

Jólin eru að mínu mati ekki kristin hátíð. Þvert á móti finnst mér jólin vera heiðin og frum­stæð ljósa­há­tíð, sem snýst um að borða góðan mat, drekka gott vín og vera með sínu upp­á­halds­fólki. Enda má ekki rugla jól­unum saman við Krists­messu, sem er kristin útgáfa af jól­unum og ekki nærri jafn skemmti­leg að mínu mati.

Jólin eru líka mikið eldri enn Krists­messan sem er hátíð sem kirkjan fann upp á til þess að sann­færa evr­ópska heið­ingja til þess að trúa á Jesú Krist. Heið­in­gj­arnir voru nefni­lega alveg til í að skipta út sínum frum­stæðu guðum fyrir Jesú, en ekki kæmi til greina að sleppa veislu­höldum sem fylgdu þeirra trú. Þess vegna lagði kirkjan til að heiðnar hátíðir fengju ný nöfn og þeim gefin kristin gildi. Þannig varð frjó­sem­is­há­tíðin að páskum, dagur hinna dauðu að Heilaga Martínusar hátíð og jólin urðu kristin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár