Mynd: Borgarleikhúsið

Íslenskt leikhús: Stöðumat

Snæbjörn Brynjars­son fer yfir það helsta í leik­hús­lífi Íslands þessa stund­ina. Það er fjöl­skylduár í Þjóð­leik­hús­inu og þjóð­arár í Borg­ar­leik­hús­inu, sjálfs­myndin skoðuð á Akureyri og til­rauna­mennska í Tjarna­bíó, en dans­flokkur á upp­leið.

Á Íslandi eru tvö stór leik­hús sem að nafn­inu til eru leik­hús borgar og þjóðar, það er þó ekki aug­ljóst hvort er hvað, hvað geri Þjóð­leik­hús að þjóð­leik­húsi og Borg­ar­leik­hús að borg­ar­leik­húsi. Leik­húsin tvö hafa í gegnum tíð­ina verið í harðri sam­keppni um sama mark­hóp og dag­skrá beggja húsa stundum verið keim­lík. Lagalega séð hefur Þjóð­leik­húsið þó mun strang­ari skyldur. Það þarf að sinna íslensk­unni, leik­ritun og lands­byggð (en hvernig nákvæm­lega hefur oftar en ekki verið túlk­un­ar­at­riði). Borg­ar­leik­húsið hefur meira frelsi til að móta eigin stefnu, þó að sumu leyti megi segja að það standi sig betur sem „þjóðar-leik­hús“. Verk eins og Flóð sem fjallar um einn stærsta harm­leik í nútíma­sögu Íslands, snjó­flóðið á Flateyri, og Njála sem tekst á við þá bók sem á hvað stærstan þátt í mótun íslenskrar þjóð­ar­vit­undar, hæfa þjóð­leik­húsi. Auk þessa hefur Borg­ar­leik­húsið fast­ráðið leik­skáld við stofn­un­ina.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið undanfarið ár