„Hver skilur eða pælir í þessum fáránlega háfleygu orðum á þingi? And who really cares?“

Fyrrum vara­þing­kona og stjórn­ar­for­maður Bjartrar fram­tíðar kemur Björt Ólafs­dóttur til varnar á þeim for­sendum að fólk skilji hvort eð er ekki né „pæli í“ því sem sagt er á Alþingi. Björt sagði þing­inu ósatt um ráð­staf­anir rík­is­stjórn­ar­innar til að fylgja stjórn­ar­sátt­mál­anum eftir.

„Hver skilur eða pælir í þessum fáránlega háfleygu orðum á þingi? And who really cares?“

Bryn­hildur S. Björns­dóttir, stjórn­ar­maður í Bjartri fram­tíð, stjórn­ar­for­maður flokks­ins á árunum 2015 og 2016 og fyrr­ver­andi vara­þing­kona, telur að umræðan um rangar upp­lýs­ingar sem Björt Ólafs­dóttir umhverf­is­ráð­herra gaf Alþingi þann 9. febr­úar sé stormur í vatns­glasi. 

„Þetta er mesta 'much ado about not­hing' sem ég hef séð lengi. Póteitó-pótató. Hver skilur eða pælir í þessum fárán­lega háfleygu orðum á þingi? And who really cares?“ skrifar Bryn­hildur á Facebook. Sjálf hefur hún haldið á fjórða tug ræðna á Alþingi sem vara­þing­kona.

Eins og Stundin greindi frá í gær­morgun sagði Björt Ólafs­dóttir ósatt í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi þegar hún full­yrti að nefnd um veit­ingu íviln­ana hefði fengið til­mæli um að leggja aukna áherslu á til­tekin atriði sem kveðið er á um í lögum um íviln­anir til nýfjár­fest­inga. Lýsti hún sér­stak­lega þeim til­mælum sem nefndin átti að hafa fengið.

„Nefndin hefur ekki fengið slík til­mæli,“ segir í svari atvinnu­vega- og nýsköp­un­ar­ráðu­neyt­is­ins við fyr­ir­spurn Stund­ar­innar þar sem óskað var eftir upp­lýs­ingum um til­mælin. Björt hefur hæðst að og gagn­rýnt frétta­flutn­ing­inn um málið og ekki beðist afsök­unar á ósann­ind­unum en sagst þurfa að vanda sig betur og orða hlut­ina á „meira lög­fræði­máli“ í fram­tíð­inni.

Bryn­hildur, áhrifa­kona í Bjartri fram­tíð, tjáir sig um málið á Facebook-síðu Kolbeins Ótt­ars­sonar Proppé, þing­manns Vinstri grænna og vekur athygli á við­brögðum Bjartar við frétta­flutn­ingnum sem hún telur að skýri málið. Hún furðar sig á því að Kolbeini finn­ist ummæli Bjartar, sem ekki reynd­ust sönn, alvar­leg.

„Er merk­ingin og ásetn­ing­ur­inn ekki aðal­at­riðið? Faktið er þetta: Við erum loks­ins komin með umhverf­is­ráð­herra sem ætlar að lyfta grettistaki í umhverf­is­málum. Og því ættu menn að fagna eða ræða (eða finna að). Sér­stak­lega glæ­nýir þing­menn sem eru (von­andi) ekki mót­aðir af þeirri ömur­legu þing­hefð að finna sér allt til for­áttu sem aðrir þing­menn/ráð­herrar segja eða gera í öðrum flokkum. Og draga athygl­ina frá aðal­at­rið­unum. Please strákar,“ skrifar Bryn­hildur. 

Pawel Bartoszek, þing­maður Við­reisnar, gerir einnig lítið úr máli Bjartar í umræð­unum og segir það snú­ast um „núansa á orða­notkun í óund­ir­bú­inni fyr­ir­spurn“. Björt fram­tíð hefur deilt málsvörn Bjartar á Facebook. Oddný G. Harð­ar­dóttir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­innar sem var fyr­ir­spyrj­and­inn þegar Björt fór með rangt mál, hefur jafn­framt lagt orð í belg og sagst ekki vilja láta plata sig.

Sem kunn­ugt er hefur Björt fram­tíð lagt mikla áherslu á að bæta vinnu­brögð og verk­ferla, starfa af fag­mennsku, efla umræðu­hefð­ina, dýpka sam­talið í póli­tík­inni, auka traust til Alþingis og beita sér gegn fúski í stjórn­málum. „Hand­ar­baksvinnu­brögð og fúsk eiga ekki rétt á sér. Það þarf að vanda sig,“ sagði Óttarr Proppé, for­maður flokks­ins í eld­hús­dags­um­ræðum á Alþingi þann 26. sept­em­ber síð­ast­lið­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál
Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dóm­ur­unum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arn­fríður Ein­ars­dóttir lands­rétt­ar­dóm­ari starf­aði sjálf sem vara­dóm­ari með tveimur þeirra hæsta­rétt­ar­dóm­ara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til með­ferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Lands­rétt í trássi við stjórn­sýslu­lög störf­uðu einnig náið með hæsta­rétt­ar­dóm­ur­unum meðan Hæsti­réttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dóm­ara­störf fjór­menn­ing­anna í upp­nám.

Mest lesið

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
1
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
6
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár