Mynd: Óskar Ericsson

Hollir og stökkir kjúklingavængir

Óskar Ericsson þarf að gera vel við sig til að kom­ast í gegnum síð­ustu vetr­ar­mán­uð­ina. Til þess reynir hann að hvíl­ast vel og borða góðan mat. Hér gefur hann upp­skrift að kjúklinga­vængjum sem eru jafn stökkir og á skyndi­bita­stöðum, en holl­ari.

Jólin voru góð hér á heim­il­inu, þar sem það var mikið borðað, drukkið, hlegið, sofið, lesið, spilað og pússlað auk þess sem farið var á jóla­ball og jólatón­leika. Ég náði meira að segja að horfa á Dr. Zhivago í tíunda skiptið, en það er orðið að hefð að horfa á hana um jólin. Fyrir mér eru jólin nauð­syn­leg. Hátíð­ar­haldið er að mínu mati eina leiðin til að lifa vet­ur­inn af. Ég get ekki ímyndað mér hvernig ég gæti enst fram á vor ef ég ætti ekki þessa daga þar sem ég er pakksaddur, útsof­inn og til í sprett­hlaupið sem fylgir síð­asta spölnum, í jan­úar, febr­úar og mars. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár