Mynd: Óskar Ericsson

Hollara nammi

Á Indlandi er algengt að götu­salar selji ristaðar kjúklinga­baunir í papp­írs­pokum sem snarl, en það er bæði hollt og gott og ein­falt í fram­leiðslu.

Kjúklinga­bauna­snakk er bæði hollt og gott snakk sem hægt er að útbúa skyndi­lega með lít­illi fyr­ir­höfn og gúffa í sig án sam­visku­bits. Kjúklinga­baunir inni­halda fáar kalor­íur, eða um 115 kcal á hver 100 grömm af soðnum kjúklinga­baunum, sem er ekk­ert í sam­an­burði við til dæmis salt­hnetur, (með 535 kcal pr 100 g), eða kart­öflu­flögur (með 547 kcal pr 100 g). Nú geri ég mér fylli­lega grein fyrir því að kalor­íur segja ekki alla sög­una og að kalor­íu­magnið eykst þegar baun­irnar eru ristaðar í olíu. Engu að síður er þetta frá­bær kostur þegar þú ert í átaki eða vilt vera með­vit­aður um hvað þú ert að setja ofan í þig. Kjúklinga­baunir eru troð­fullar af trefjum, próteini og járni og eru þar fyrir utan ódýrar, kosta ekki nema 98 krónur dósin, sem er sára­lítið fyrir heilsusnakk. Fyr­ir­höfnin er svo nán­ast engin, eða álíka mikil og að poppa popp.

Á Indlandi er …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár