Mynd: Vera Pálsdóttir

Hamingjan felst ekki í sófa

Í smekk­legu endarað­húsi á Álfta­nes­inu býr Jóna Valborg Árna­dóttir, sam­skipta­stjóri Rannís og rit­höf­undur, ásamt manni sínum, Vil­hjálmi Bergs, og börnum þeirra þremur, Garpi, Viktori og Veru. Það er aug­ljóst um leið og inn er komið að þarfir barn­anna eru í fyr­ir­rúmi við inn­rétt­ingar og fyr­ir­komu­lag, enda segir Jóna Valborg að það hafi verið for­gangs­at­riði við val á hús­næði að þar færi vel um börnin.

Þegar fjöl­skyldan flutti á Álfta­nesið hafði hún búið nokkur ár á Akureyri og þótt Jóna Valborg sé bor­inn og barn­fæddur Reyk­vík­ingur hafði hún heill­ast af rým­inu og róleg­heit­unum á Akureyri og vildi ekki flytja í bæinn aftur.  Hún segir þau hafa verið heppin að finna þetta hús á Álfta­nes­inu, þar sem ósnortin nátt­úra blasir við út um alla glugga og skjól­sæll garð­ur­inn er í mik­illi rækt. „Við erum reyndar ekk­ert miklir garð­rækt­endur,“ segir Jóna og hlær. „Það eru fyrri eig­endur sem eiga heið­ur­inn af honum, en við erum að læra.“

Lista­verk sem börnin hafa unnið á leik­skólum og í skólum eru áber­andi í hús­inu og Jóna Valborg seg­ist svo sem aldrei hafa pælt í því að ein­hvern veg­inn öðru­vísi ætti það að vera. „Mér þykir svo vænt um það sem krakk­arnir gefa okkur,“ segir hún. „Ég er mjög mikil barna­kona. Börnin eru í miklum for­gangi hjá mér, en ég er auð­vitað líka kar­ríer­kona. Ég hef alltaf verið að taka skref fram á við og krakk­arnir taka þátt í því með mér. Þau eru alin upp við það að vera með í öllu sem ég geri. Ég er stundum spurð að því hvernig mér tak­ist að sam­eina það að vera með þrjú börn á aldr­inum 7–13 ára, vera í fullu starfi og skrifa bók á hverju ári en ég veit aldrei hvernig ég á að svara því. Hef aldrei hugsað um að það sé eitt­hvað erfitt, maður bara skipu­leggur sig vel.“

Fjórða bókin í bóka­flokknum um Sólu, sem byrj­aði með Bros­bók­inni, kemur út í byrjun sept­em­ber og Jóna Valborg er ákveðin í að það verði síð­asta bókin í flokknum. Hún segir að sig langi til að skrifa fyrir eldri börn, en hún hafi ekki enn fundið hug­mynd sem hún sé farin að vinna, það komi bara þegar tím­inn verði réttur. Spurð hvort hana hafi alltaf langað til að skrifa svarar hún ját­andi á auga­bragði. „Já, mig lang­aði alltaf að skrifa. Var algjör lestr­ar­hestur þegar ég var krakki og skrif­aði líka heil­mikið á þeim árum. Svo fór ég í Versló og fór þá að prufa mig áfram með alls konar form. Það náði samt ekk­ert lengra, barna­stússið tók við, ég eign­að­ist þrjú börn á sex árum og lagði mikið upp úr því að eiga gæða­stundir með þeim. Við höfum bæði alltaf lesið mikið fyrir krakk­ana á kvöldin og sögur hafa alltaf verið stór hluti af þeirra lífi. Svo var það í einu ferða­lag­inu að Viktor, sem þá var fjög­urra eða fimm ára, sýndi líðan sína mjög greini­lega; var bara í mjög áber­andi fýlu. Ég vildi auð­vitað hressa hann við og byrj­aði að spyrja hvar brosið hans væri: er það á gólf­inu? Er það í vas­anum þínum? Fór það út um glugg­ann? Þá kvikn­aði hug­myndin að Bros­bók­inni. Ég fór að gramsa í tösk­unni minni, fann krump­aðan inn­kaupa­miða og penna og skrif­aði niður hug­mynd­ina um brosið sem öðl­ast sjálf­stæðan vilja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár