Mynd: Óskar Ericsson

Gerðu þitt eigið jógúrt

„Slow food“ bylgjan teygir sig lengra. Það þarf ekki að vera erfitt þótt það taki langan tíma.

Árið 1986 ákvað McDonalds að opna skyndi­bita­stað við Piazza di Spagna í Róm. Mikil mót­mæli urðu í kjöl­farið og úr því spratt hin svo­kall­aða Slow Food-hreyf­ing, sem lagði áherslu á vit­und­ar­vakn­ingu um alvöru mat, eða „hægan mat“ (slow food), í stað­inn fyrir skyndi­bita (fast food). Hug­mynda­fræðin snýst ein­fald­lega um að taka sér tíma til þess að elda og fram­reiða mat. Að gera allt eins vel og mögu­legt er, frekar en eins hratt og mögu­legt er. Leyfa matnum að malla, nostra við að hræra og smakka, og njóta þess að mat­reiða. Matur sem fær tíma til þess að þroskast verður yfir­leitt betri, eins og til dæmis parmesan ostur, serrano skinka, 10 ára gam­alt viskí eða jafn­vel kjöt­súpan sem bragð­ast betur dag­inn eftir að hún hefur verið elduð.

Góðir hlutir ger­ast hægt.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár