Rasísk viðhorf stjórnarmanna Fjölskylduhjálparinnar

Stjórn­ar­maður Fjöl­skyldu­hjálpar Íslands hefur áður hringt inn á Útvarp Sögu til þess að dreifa róg­burði um skjól­stæð­inga þeirra. „Þetta hljóta að vera bara stríðs­glæpa­menn,“ sagði Anna Valdís Jóns­dóttir í beinni útsend­ingu. Þá hefur hún, líkt og fram­kvæmda­stjór­inn, dreift áróðri gegn múslimum. Sjálf hefur Ásgerður Jóna Flosa­dóttir fram­kvæmda­stjóri verið á lista flokka sem hafa verið gagn­rýndir fyrir kyn­þátta­for­dóma.

Rasísk viðhorf stjórnarmanna Fjölskylduhjálparinnar
Stjórn­ar­maður og fram­kvæmda­stjóri Anna Valdís Jóns­dóttir er til vinstri meðan Ásgerður Jóna Flosa­dóttir er til hægri.

Anna Valdís Jóns­dóttir, sú sem hringdi í Útvarpi Sögu í gær og sagði frá því að Tony Omos hefði leitað til Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar, þar sem hún starfar sem sjálf­boða­liði og situr í stjórn, hefur áður hringt inn á útvarps­stöð­ina með sögur af skjól­stæð­ingum Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Anna Valdís hringir í Útvarp Sögu til þess að lýsa sam­skiptum sínum við Tony Omos þegar hann hefur leitað þangað eftir aðstoð. Í fyrra hringdi hún inn og sagði þá skoðun sína að Tony væri hugs­an­legur stríðs­glæpa­maður. Gunnar Waage færði sím­talið í rit­form og birti á síðu sem hann heldur úti undir heit­inu Sand­kass­inn:

„Og já, voru bara með yfir­gang og rudda­skap og vildu fá allt fyrir ekki neitt og bara, og voru með orð­bragð og, og og okkur stóð líka stuggur af því að þeir voru allir hérna. Og við sögðum: Þetta hljóta að vera stríðs­glæpa­menn, vegna þess að þeir voru allir með ein­hver ör í and­liti og út um allan lík­amann. Ekki það að við vitum nátt­úr­lega ekki þeirra for­tíð og getum ekki dæmt um það. En fannst þetta bara ógn­vekj­andi menn, bara þeirra fram­koma,“ hafði Gunnar eftir Önnu Valdísi.

Að eigin sögn ofbauð henni umræðan og var þá vænt­an­lega að vísa til leka­máls­ins sem stóð sem hæst á þessum tíma, vegna þess að henni stóð stuggur af „þessum mönnum“.  

Aðeins styrkveitendum heitið trúnaði

Samkvæmt heima­síðu Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar starfar hún „í þágu kvenna, karla og barna í neyð, óháð upp­runa þeirra.“ Þar kemur jafn­framt fram að þeir sem þangað leita séu öryrkjar, atvinnu­lausir, ein­stæðar mæður og feður, eldri borg­arar, lág­tekju­fólk og ein­stæð­ingar. Felst starf­semin fyrst og fremst í því að aðstoða „fátækt fólk með mat­væli, lyf, hár­snyrt­ingu, fatnað, ung­barna­vörur og leik­föng.“  

Engar siða­reglur eru birtar á heima­síð­unni og hvergi er rætt um trúnað gagn­vart skjól­stæð­ingum. Fjöl­skyldu­hjálpin heitir styrk­veit­endum hins vegar fullum trún­aði um allar upp­lýs­ingar sem þeir gefa upp.

Þó er óvana­legt að starfs­maður hjálp­ar­sam­taka kvarti opin­ber­lega undan nafn­tog­uðum ein­stak­lingum sem þurfa að leita á náðir þeirra.

Ekki náð­ist í fram­kvæmda­stjóra Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar, Ásgerði Jónu Flosa­dóttur, við vinnslu frétt­ar­innar. Sjálf hefur hún tengst stjórn­mála­flokkum sem hafa verið sak­aðir um kyn­þátta­for­dóma. Þá hafa þær Anna Valdís báðar deilt áróðri gegn múslimum á Facebook-síðum sínum. Árið 2010 greindi hún jafn­framt frá því í sam­tali við Vísi að hún hefði mis­munað fólki sem leitar til sam­tak­anna eftir þjóð­erni.

Deildu áróðri gegn múslimum

Í sam­tali við Stundina sagð­ist Anna Valdís ekki líta svo á að það væri eitt­hvað athuga­vert við það að hún hefði hringt í Útvarp Sögu og kvartað undan nafn­greindum skjól­stæð­ingi Fjöl­skyldu­hjálp­ar­inar. Hún sagð­ist hafa hringt þar sem henni blöskr­aði hversu mikið fé flótta­menn fái frá rík­inu.

 

Í síð­asta mán­uði deildi Anna Valdís mynd­bandi á Facebook síðu sinni, frá Britain First, breskum ras­ista­flokki. Flokk­ur­inn á rætur sínar að rekja til breska Þjóð­ern­is­flokks­ins sem er yfir­leitt skil­greindur sem fasískur flokkur. Mynd­bandið sem hún deildi á að sýna rann­sókn ungrar konu á því hvort íslamskir öfga­menn hafi her­tekið Luton á Englandi. Það má sjá hér að neðan.

Ásgerður Jóna hefur líkt og Anna Valdís deilt áróðri gegn múslimum á Facebook síðu sinni. Árið 2013 rakk­aði hún niður sam­tökin Amnesty International og sagði að sam­tökin „skiptu sér af arfa í görðum í útlöndum“. Hún spurði „hvernig getur jafn illa stödd þjóð og okkar hjálpað öðrum þjóðum?“ Ásgerður hefur einnig haldið því fram að Öryrkja­banda­lagi Íslands sé stýrt af Vinstri grænum og Sam­fylk­ing­unni og standi í vegi fyrir hags­muna­bar­áttu öryrkja.

Árið 2010 sagði Ásgerður Jóna opin­ber­lega að sam­tökin hefðu mis­munað fólki í neyð eftir þjóð­erni. „Ástæðan fyrir því að þessi ákvörðun var tekin í dag er sú að að þegar að við fórum að kanna röð­ina núna áður en við opn­uðum að þá voru örugg­lega hátt í 200 Pól­verjar og útlend­ingar í röð­inni hjá okkur. Og eitt­hvað urðum við að gera og bara menn­ing margra þjóða er þannig að fólk reynir að hjálpa sér sjálft og það sýnir sjálfs­bjarg­ar­við­leitni og er mætt hérna mjög snemma og allt það og þetta fólk er vel­komið, en við tókum Íslend­ing­ana fram fyrir, þetta var bæði tölu­vert um gam­alt fólk og síðan ungt fólk með börn og ég tók alla Íslend­ing­ana fram fyrir og þeir voru afgreiddir og þeir sem voru hérna í röð­inni og þurftu að bíða, ég bað Pól­verj­ana um að bíða á meðan við afgreiddum þennan stóra hóp Íslend­inga sem voru þarna alveg út að Miklu­braut í röð­inni,“ sagði Ásgerður í sam­tali við Vísi þá. Svo fór að for­svars­menn vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar sáu sig knúna að eiga fund með Ásgerði Jónu sem lof­aði bót og betrun.

Harðlega gagnrýnd fyrir launagreiðslur

Ásgerður Jóna er líkt og fyrr segir fram­kvæmda­stjóri Fjöl­skyldu­hjálpar og eini laun­aði starfs­mað­ur­inn. Samkvæmt frétt DV í fyrra fær hún hálfa milljón króna í laun á mán­uði fyrir það.

Ásgerður hefur ítrekað verið gagn­rýnd fyrir bruðl í rekstri hjálp­ar­sam­taka. Árið 2001 var hún for­maður Mæðra­styrks­nefndar og þá var greint frá því að að hún staðið fyrir því að allri nefnd­inni væri boðið í sól­ar­landa­ferð til Portúgal í boði sam­tak­ana. Hún var enn­fremur fyrsti for­maður sam­tak­ana til að fá bæði laun og síma­kostnað greiddan.

Árið 2003 birti Morg­un­blaðið grein­ar­gerð Mæðr­ar­styrks­nefndar sem var mjög gagn­rýnin á störf Ásgerðar Jónu:

„Rekstr­ar­kostn­aður nefnd­ar­innar hefur auk­ist stórum skrefum í tíð Ásgerðar og munar þar til dæmis um þætti eins og launa­greiðslur til for­manns sem komu til í for­mann­s­tíð Ásgerðar, en hún gerði sjálf til­lögur til stjórnar um launa­greiðslur til sín. Slík vinnu­brögð munu vera eins­dæmi. Aðrir for­menn Mæðra­styrks­nefndar hafa aldrei þegið laun fyrir vinnu sína. Auk þessa ákvað Ásgerður Jóna að greiða hluta sjálf­boða­lið­anna í nefnd­inni laun að eigin geð­þótta. Það er einnig eins­dæmi.

Ásgerður lét Mæðra­styrks­nefnd kaupa fyrir sig GSM-síma og greiða síma­reikn­inga af honum. Þetta númer lét hún svo færa á sitt eigið nafn dag­inn áður en hún sagði af sér, sama síma­númer og nær allir styrkt­ar­að­ilar telja vera síma­númer Mæðra­styrks­nefndar. [...]

Það sem við teljum þó alvar­leg­ast í þessu sam­bandi er að Ásgerður Jóna gerði sitt eigið óstofn­aða félag, Fjöl­skyldu­hjálp Íslands, að aðila að þessu fjár­öfl­un­ar­verk­efni og skrif­aði undir samn­inga um það sem for­maður Mæðra­styrks­nefndar og Fjöl­skyldu­hjálp­ar­innar, nokkrum mán­uðum áður en Fjöl­skyldu­hjálp Íslands var stofnuð og eign­að­ist sína eigin kenni­tölu.“

Þátttaka í umdeildum flokkum

Ásgerður hefur tekið þátt í stjórn­mála­starfi en hefur flakkað á milli flokka sem róa á svipuð mið. Fyrir síð­ustu Alþing­is­kosn­ingar var hún í öðru sæti á lista Flokks heim­il­anna í Reykja­vík suður. Eigendur Útvarps Sögu, Arn­þrúður Karls­dóttir og Pétur Gunn­laugs­son, voru þar í for­ystu, ann­ars vegar sem odd­viti í Reykja­vík norður og hins vegar sem for­maður flokks­ins.

Formleg stjórn­mála­þátt­taka hennar virð­ist hafa haf­ist með flokknum Nýtt afl þar sem Jón Magn­ús­son, hæsta­rétt­ar­lög­maður, var for­maður. Áður hafði hún tengst Sjálf­stæð­is­flokknum.

 

Nýtt afl var með fyrstu flokkum á Íslandi sem settu taka­mark­anir á inn­flytj­endur á odd­inn. Í stjórn­mála­á­lyktun flokks­ins frá árinu 2003 segir í kafla um flótta­menn og inn­flytj­endur: „Nýtt afl berst fyrir fjöl­breyttu íslensku sam­fé­lagi sem byggt er á grund­velli mann­úðar og kirstnum lífs­skoð­unum. Nýtt afl telur að á grund­velli þeirra sjón­ar­miða beri okkur að taka á móti þeim ein­stak­lingum sem eru flótta­menn svo fremi sem þeir upp­fylla þau skil­yrði sem Sam­ein­uðu þjóð­irnar setja í því efni. Við mót­töku flótta­manna ber að leggja áherslu á að flótta­mönum sé veitt við­taka í þeim löndum sem hafa svip­aða menn­ingu og þeir koma frá. [...]

Nýtt afl telur nauð­syn­legt að vernda íslensk gildi og íslenskan menn­ing­ar­arf og tak­marka inn­flutn­ing fólks við félags­lega og fjár­hags­lega getu þjóð­ar­innar þannig að hægt verði að halda uppi því vel­ferð­ar­kerfi sem hefur verið byggt upp.“

Í kosn­ingum árið 2003 var Ásgerður Jóna í öðru sæti á lista flokks­ins í Reykja­víkur suður. Árið 2006 rann Nýtt afl inn í Frjáls­lynda flokk­inn, þar sem hún skip­aði annað sæti flokks­ins við þing­kosn­ingar 2007 í Reykja­vík norður. Það var einmitt á því tíma­bili sem umræða um rasíska stefnu flokks­ins stóð sem hæst. Tveimur árum síðar sagði Ásgerður Jóna sig úr flokknum vegna ósættis við Guðjón Arnar Krist­jáns­son, for­mann flokks­ins.

Í dag er hún komin í Fram­sókn­ar­flokk­inn, en hún var í 22. sæti á lista Fram­sóknar og flug­vall­ar­vina í Reykja­vík árið 2014. Umrætt daður Fram­sókn­ar­flokks­ins við rasima í aðdrag­anda sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga fékk gíf­ur­lega mikla fjöl­miðlaum­fjöllun. Hún er nú áheyrn­ar­full­trúi í inn­kaupa­ráði fyrir hönd flokks­ins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár