Mynd: Heiða Helgadóttir

Fegurðin í ljótleikanum

Þegar hljóm­sveitin Hórmónar sigr­aði í Mús­íktil­raunum 2016 skar hún sig út úr fal­lega indí-popp-krútt mót­inu, sem svo margir aðrir sig­ur­veg­arar höfðu fallið inn í, með því að spila kraft­mikið og til­finn­inga­þrungið pönk. Bryn­hildur Karls­dóttir er upp­reisn­ar­gjörn ung kona, sviðs­lista­nemi, og nútíma femínisti og beislar reynslu sína í laga­smíði og söng Hórmóna.

Það var á venju­legum vinnu­degi sem Bryn­hildur Karls­dóttir var að bora gat í gegnum bens­íntank og klippa hvarfa­kúta þegar augu hennar stað­næmd­ust á olíu­polli sem mynd­að­ist á gólf­inu. Olían var svo þykk að hún rembd­ist við að kom­ast í gegnum rimla skítuga nið­ur­falls­ins; áferðin var mjúk og kolsvört og heim­ur­inn spegl­að­ist í ófull­kominni mynd. Þetta sumar vann hún í förgun hjá Vöku og sá oft svona polla mynd­ast og í hvert skiptið varð hún jafn hug­fangin.

Það eru fjögur ár síðan hún vann á verk­stæð­inu og líf hennar hefur tekið miklum breyt­ingum, en hún segir að hún sé ennþá heilluð af svona sjónum. „Þegar olía bland­ast við vatn úti á götu býr það til brenglaða end­ur­speglun sem er í öllum regn­bog­ans litum. Á sama tíma og maður er með­vit­aður um hversu mikil nátt­úru­spjöll þetta eru, þá finnst mér ótrú­lega töfr­andi þessi feg­urð sem skap­ast í ljót­leik­anum; fantasían er svo …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár