Einkareksturinn í heilsugæslunni: Heilsugæslan verði að „fyrsta viðkomustaðnum“ í heilbrigðiskerfinu

Vel­ferð­ar­ráðu­neyti Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar svarar spurn­ingum um einka­rekstur innan heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Segjast hafa kynnt sér vel þær breyt­ingar sem gerðar hafa verið á heilsu­gæsl­unni í Svíþjóð. Markmið er meðal ann­ars að gera heilsu­gæsl­una að álit­legri vinnu­stað fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk.

Einkareksturinn í heilsugæslunni: Heilsugæslan verði að „fyrsta viðkomustaðnum“ í heilbrigðiskerfinu
Heilsu­gæslan virki betur sem sía fyrir sér­hæfð­ari heil­brigð­is­þjón­ustu Svör vel­ferð­ar­ráðu­neytis Kristján Þórs Júl­í­us­sonar má skilja sem svo að ráðu­neytið vilji gera heilsu­gæsl­una á höfu­borg­ar­svæð­inu að sams konar síu fyrir sér­hæfð­ari heil­brigð­is­þjón­ustu og í öðrum löndum í kringum okkur, eins og til dæmis Svíþjóð. Mynd: Pressphotos.biz - (Geirix)

„Eins og áður segir er ekki búið að finna rekstr­ar­að­ila. Vænt­an­lega verður sá háttur hafður á að aug­lýst verði eftir aðilum sem áhuga­samir eru um heilsu­gæslu­rekstur og geta sýnt fram á að þeir séu færir um að upp­fylla kröfur í sam­ræmi við kröfu­lýs­ingu,“ segir í svörum frá heil­brigð­is­ráðu­neyti Krist­jáns Þórs Júl­í­us­sonar vel­ferð­ar­ráð­herra við spurn­ingum Stund­ar­innar um þann aukna einka­rekstur sem til stendur að hefja innan heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu og hvernig til standi að finna þá rekstr­ar­að­ila sem eiga að reka heilsu­gæslu­stöðv­arnar nýju sem til stendur að opna á næsta ári.

Stundin sendi fjórar spurn­ingar til vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins um þær breyt­ingar innan heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu sem til stendur að ráð­ast í en spurn­ing­arnar voru liður í umfjöllun blaðs­ins um einka­rekstr­ar­væð­ingu á heilsu­gæsl­unni á höf­uð­borg­ar­svæð­inu.

Stærsta breyt­ingin innan heilsu­gæsl­unnar er hins vegar ekki sú að opn­aðar verði nýjar einka­reknar heilsu­gæslu­stöðvar heldur sú grund­vall­ar­breyt­ing á greiðslu­fyr­ir­komu­lagi sem breyt­ing­arnar fela í sér. Með breyt­ing­unum er verið að reyna að sam­ræma greiðslu­fyr­ir­komu­lagið þannig að fjár­magn frá Sjúkra­trygg­ingum Íslands fylgi sjúkra­tryggðum skjól­stæð­ingi stofn­un­ar­innar á milli heilsu­gæslu­stöðva, allt eftir því hvaða stöð hann ákveður að nota. Ef skjól­stæð­ing­ur­inn notar rík­is­rekna heilsu­gæslu­stöð fer fjár­magnið sem fylgir honum þangað en ef  skjóla­stæð­ing­ur­inn notar einka­rekna stöð þá fylgir fjár­magnið honum þangað.

Ætla má að með þessum breyt­ingum á greiðslu­fyr­ir­komu­lagi muni sam­keppni innan heilsu­gæsl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu aukast, ekki síst þegar ljóst er að heilsu­gæslu­stöðvum á höf­uð­borg­ar­svæð­inu mun fjölga. Þannig má ætla að þær heilsu­gæslu­stöðvar sem bjóða bestu þjón­ust­una og ná til sín sem flestum sjúkra­tryggðum við­skipta­vinum muni vaxa og dafna á meðan óvin­sælli stöðvar koma til með að eiga í erf­ið­leikum. 

Í svari frá heil­brigð­is­ráðu­neyti Krist­jáns Þórs segir meðal ann­ars um mark­mið breyt­ing­anna að mark­miðið sé að heilsu­gæslan verði fyrsti við­komu­staður fólks sem leitar sér að þjón­ustu í heil­brigð­is­kerf­inu: „Vænt­ing­arnar í hnot­skurn eru að kröfu­lýs­ing fyrir heilsu­gæslu og breytt fyr­ir­komu­lag fjár­mögn­unar, auki gæði þjón­ustu heilsu­gæsl­unnar, bæti aðgengi að henni, geri heilsu­gæsl­una að þeim fyrsta við­komu­stað í heil­brigð­is­kerf­inu sem lengi hefur staðið vilji til. Þess er vænst að sveigj­an­leiki skap­ist í rekstri sem leiði m.a. til betri nýt­ingar fjár og mann­afla, auki aðkomu fleiri fag­stétta í sam­ræmi við fjöl­breytt við­fangs­efni og ólíkar þarfir þeirra sem þangað leita. Mark­miðið með breyt­ing­unum er að heilsu­gæslan verði í ljósi alls þessa að áhuga­verðum og eft­ir­sóttum vinnu­stað.“  Þannig má meðal ann­ars segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið vilji gera heilsu­gæsl­una að þeirri síu yfir í sér­hæfð­ari heil­brigð­is­þjón­ustu sem hún er í lönd­unum í kringum okkur, meðal ann­ars í Svíþjóð en breyt­ing­arnar hér á landi eru að sænskri fyr­ir­mynd að vissu leyti. 

Spurn­ingar Stund­ar­innar og svör vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins fylgja hér á eftir.

Spurning: „Komið hefur fram að til standi að opna þrjár nýjar heilsu­gæslu­stöðvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu. Er búið að finna rekstr­ar­að­ila til að reka þessar stöðvar? Hvað þarf slíkur rekstr­ar­að­ili að sýna fram á til að fá verk­efnið?“ 

Svar: „Stefnt er að opnun nýrra stöðva á höf­uð­borg­ar­svæð­inu á næsta ári en ekki hefur verið tekin ákvörðun um fjölda þeirra né stað­setn­ingu. Unnið er að gerð ýtar­legrar kröfu­lýs­ingar sem gilda á jafnt um allar heilsu­gæslu­stöðvar á höf­uð­borg­ar­svæð­inu, hvort sem þær eru reknar af hinu opin­bera eða af einka­að­ilum. Til þess að áhuga­samir rekstr­ar­að­ilar geti átt þess kost að hefja rekstur nýrrar stöðvar verða þeir að sýna fram á að þeir geti upp­fyllt umrædda kröfu­lýs­ingu sem tekur til fjöl­margra þátta, er lúta að rekstri, hús­næði, aðbún­aði, mönnun, tækja­bún­aði, gæðum þjón­ustu o.s.frv.“

2. Spurning: „Ef ekki er búið að finna rekstr­ar­að­ila til að sjá um þjón­ust­una mun þá fara fram útboð á henni, það er að segja til að finna rekstr­ar­að­ila? Heil­brigð­is­þjón­usta er hins vegar ekki útboðs­skyld þannig að ráðu­neytið þarf ekki að fara þá leið. Þar af leið­andi er ekki úr vegi að spyrja hvernig rekstr­ar­að­il­arnir verði fundnir ef ráðu­neytið hefur ekki gert það nú þegar?

Svar: „Eins og áður segir er ekki búið að finna rekstr­ar­að­ila. Vænt­an­lega verður sá háttur hafður á að aug­lýst verði eftir aðilum sem áhuga­samir eru um heilsu­gæslu­rekstur og geta sýnt fram á að þeir séu færir um að upp­fylla kröfur í sam­ræmi við kröfu­lýs­ingu.“ 

3. Spurning: „Hverju vill vel­ferð­ar­ráðu­neytið ná fram með því að breyta greiðslu­fyr­ir­komu­lag­inu innan heilsu­gæsl­unnar þannig að tekið verði upp sams konar kerfi - vår­dval - og í Svíþjóð?“ 

Svar: „Vænt­ing­arnar í hnot­skurn eru að kröfu­lýs­ing fyrir heilsu­gæslu og breytt fyr­ir­komu­lag fjár­mögn­unar, auki gæði þjón­ustu heilsu­gæsl­unnar, bæti aðgengi að henni, geri heilsu­gæsl­una að þeim fyrsta við­komu­stað í heil­brigð­is­kerf­inu sem lengi hefur staðið vilji til. Þess er vænst að sveigj­an­leiki skap­ist í rekstri sem leiði m.a. til betri nýt­ingar fjár og mann­afla, auki aðkomu fleiri fag­stétta í sam­ræmi við fjöl­breytt við­fangs­efni og ólíkar þarfir þeirra sem þangað leita. Mark­miðið með breyt­ing­unum er að heilsu­gæslan verði í ljósi alls þessa að áhuga­verðum og eft­ir­sóttum vinnu­stað.“ 

4. Spurning: „Hefur vel­ferð­ar­ráðu­neytið kynnt sér skýrslu sem sænska rík­is­end­ur­skoð­un­inin vann um afleið­ingar og kosti og galla "vår­dvals­ins" í fyrra?  Þessi skyr­sla er auð­vitað ekki ein­hlít þar sem fleiri skýrslur finn­ast sem kom­ast að öðrum nið­ur­stöðum en hún er samt útgefin af þess­ari rík­is­stofnun og hefur því vissu­lega tals­verða vigt. Hér er ég fyrst og fremst að velta því upp hversu gagn­rýnin skoðun á þess­ari aðferð við að veita þjón­ustu í heilsu­gæslu hafi farið fram og þá einnig hvort hún henti Íslandi og íslenskum aðstæðum?“ 

Svar: „Já, vel­ferð­ar­ráðu­neytið þekkir þá skýrslu sem hér er vísað til og hefur kynnt sér efni hennar og það er rétt sem kemur fram í spurn­ing­unni hér að framan að nið­ur­stöð­urnar sem þar koma fram eru ekki ein­hlítar. Ráðu­neytið hefur einnig kynnt sér skýrslu sem fjallar um inn­leið­ingu breyt­inga í heilsu­gæslu í Västra Göta­lands þar sem brugð­ist er við skýrslu sænsku rík­is­end­ur­skoð­un­ar­innar.Ráðu­neytið hefur farið yfir skýrslu sænsku rík­is­end­ur­skoð­un­ar­innar, ekki síst með til­liti til þeirra athuga­semda sem bein­ast að því fyr­ir­komu­lagi sem við­haft hefur verið á umræddu svæði í Svíþjóð. Í skýrsl­unni koma fram ýmsir þættir sem taldir eru hafa leitt til bættrar þjón­ustu, svo sem bætt aðgengi að heilsu­gæsl­unni, jafnt varð­andi sím­svörun og komur á heilsu­gæsl­una. Heilsu­gæslu­stöðvum hefur fjölgað og færst nær mörgum íbú­anna ofl. Þeir ágallar sem upp eru taldir í skýrsl­unni, svo sem lak­ari sam­fella í þjón­ustu og mis­jöfn aðsókn sjúk­linga­hópa hafa leitt til þess að í nálgun ráðu­neyt­is­ins er lögð sterk áhersla á þessa þætti, bæði með því að öllum sé tryggður fastur heim­il­is­læknir og einnig tryggð þjón­usta fleiri stétta heil­brigð­is­starfs­fólks heilsu­gæsl­unnar með því að ein­stak­ling­ur­inn verði einnig skráður á ákveð­inn þjón­ustu­hóp með hlið­sjón af þörfum hans. Sænska rík­is­end­ur­skoð­unin leggur m.a. fram þær til­lögur í sam­an­tekt sinni að greiðslu­fyr­ir­komu­lag verði gert eins ein­falt og mögu­legt er auk þess sem hún leggur til að verk­efni heilsu­gæsl­unnar verði ekki skil­greind of vítt. Ráðu­neytið telur sig hafa tekið fullt til­lit til þess­ara ábend­inga í mótun sinni á breyttu rekstr­ar­fyr­ir­komu­lagi heilsu­gæsl­unnar.“

 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Íslenska útrásin í bresku elliheimilin
Úttekt

Íslenska útrásin í bresku elli­heim­ilin

Fjár­festa­hópur sem Kvika setti saman hefur á síð­ustu árum verið eig­andi breskra elli­heim­ila. For­svars­menn elli­heim­il­is­ins hafa komið hingað til lands til að mæla fyrir auk­inni einka­væð­ingu í vel­ferð­ar­þjón­ustu á Íslandi. Kvika sjálf, og þar með íslenskir líf­eyr­is­sjóðir, er hlut­hafi í elli­heim­il­unum sem skil­uðu arð­semi umfram vænt­ingar á síð­asta ári.
Spyr ráðherra um eftirlit Sjúkratrygginga með einkarekstri í heilbrigðiskerfinu
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Spyr ráð­herra um eft­ir­lit Sjúkra­trygg­inga með einka­rekstri í heil­brigð­is­kerf­inu

Willum Þór Þórsson heil­brigð­is­ráð­herra hefur staðið fyrir stór­auk­inni einka­væð­ingu í heil­brigð­is­kerf­inu frá því að hann tók við starf­inu. Eftirlit með þeim fjár­munum sem fara frá rík­inu til einka­að­ila hefur sam­hliða því ekki verið aukið. Willum Þór svar­aði spurn­ingum um meðal ann­ars á Alþingi um miðjan mán­uð­inn.
Hjúkrunarheimilið Sóltún fékk 20 milljarða frá íslenska ríkinu
Fréttir

Hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fékk 20 millj­arða frá íslenska rík­inu

Frá árinu 2009 hefur hjúkr­un­ar­heim­ilið Sóltún fengið tæp­lega 20 millj­arða króna frá íslenskra rík­inu. Um 90 pró­sent af tekjum Sóltúns koma frá rík­inu. Eig­end­urnir hafa tekið á þriðja millj­arð króna út úr rekstr­inum með því að selja fast­eignir og lóðir og lækka hlutafé fyr­ir­tæk­is­ins. Allur rekst­ur­inn byggir hins vegar á umdeildum samn­ingi við íslenska ríkið sem gerður var árið 2000.
Sjúkratryggingar kanna gagnrýni lækna á útvistun aðgerða
FréttirEinkarekstur í heilbrigðiskerfinu

Sjúkra­trygg­ingar kanna gagn­rýni lækna á útvistun aðgerða

Rík­is­stofn­unin Sjúkra­trygg­ingar Íslands seg­ist ætla að kanna þá gagn­rýni sem komið hefur fram frá læknum á Land­spít­al­anum á útvistun á aðgerðum gegn legs­límuflakki. Sjúkra­trygg­ingar segja að heil­brigð­is­ráðu­neytið telji að þörf sé á að útvista aðgerð­unum jafn­vel þó læknar á Land­spít­al­anum segi að svo sé ekki.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár