Mynd: Kristinn Magnússon

Dýrmætast að veita stuðning og vináttu

Íslend­ingar hafa tekið á móti 549 flótta­mönnum, þar af 94 frá Víetnam. Lísa Inga­dóttir kom hingað til lands sem flótta­maður árið 1990, þá ein­ungis tveggja ára gömul. Hún segir hug­ar­far bæði Íslend­inga og flótta­fólks skipta sköpum um hvort vel tak­ist til.

Nafn: Lísa Inga­dóttir.
Aldur: 29 ára.
Upp­runa­land: Víetnam.
Kom til Íslands árið 1990.
Starf: Blóma­skreytir.

Hvernig væri líf okkar í dag ef þau hefður ekki flúið? Hvar væri ég ef við hefðum ekki fengið að koma til Íslands?“ spyr Lísa Inga­dóttir, en hún var fjög­urra ára þegar hún kom hingað til lands ásamt for­eldrum sínum frá Víetnam. Fjöl­skylda hennar hafði búið við sára fátækt og mikla neyð í kjöl­far Víetnams­stríðs­ins og sáu sér þann kost vænstan að flýja land. „Atvinnu­leysi var gríð­ar­legt á eft­ir­stríðs­ár­unum og þeir sem ekk­ert áttu höfðu í raun engin tök á því að eign­ast neitt. For­eldrar mínir ákváðu því að flýja land, með mig ein­ungis tveggja ára gamla. Þau fengu far með fiski­báti yfir til Hong Kong því þau höfðu heyrt að þar væri tekið á móti flótta­fólki. Við bjuggum í flótta­manna­búðum í alls tvö ár, eða þar til Rauði kross Íslands tók okkur að sér.“

Héldu hópinn í upphafi

Lísa seg­ist ein­ungis eiga nokkur minn­ing­ar­brot frá tím­anum í Hong Kong og hún man ekk­ert eftir ferða­lag­inu til Íslands. Hún man eftir að hafa farið í leik­skóla hér á landi og hefur í raun aldrei haft það á til­finn­ing­unni að hún til­heyri ekki íslensku sam­fé­lagi. „Ég var svo ung þegar við komum og þurfti því ekki að læra neitt upp á nýtt. For­eldrar mínir þurftu hins vegar að aðlag­ast sam­fé­lagi og læra tungu­mál sem var gjör­ó­líkt því sem þau áttu að venj­ast,“ segir Lísa.

Ísland hefur alls tekið á móti 94 flótta­mönnum frá Víetnam. Þeir fyrstu komu árið 1979, nokkrum árum eftir stríðs­lok. Fjöl­skylda Lísu var síðan í þrjá­tíu manna hópi sem kom árið 1990 en jafn stór hópur kom til lands­ins ári síðar. „Fólkið sem kom árin 1990 og 1991 kom flest frá sama sveita­bænum,“ segir Lísa. „Þau þekkt­ust því mörg hver áður en þau komu til Íslands. Fyrstu árin héldum við mikið hóp­inn og það var mik­ill sam­gangur á milli fjöl­skyldna. Við áttum það sam­eig­in­legt að vera allt í einu komin í nýtt land þar sem við 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár