Björt framtíð: „Ekki spennandi“ ríkisstjórn með Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum

Óttarr Proppé virð­ist ekki vilja hægri­st­jórn með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum, en úti­lokar hana ekki.

Björt framtíð: „Ekki spennandi“ ríkisstjórn með Viðreisn og Sjálfstæðisflokknum
Óttar Proppé Formaður Bjartrar fram­tíðar. Mynd: Kristinn Magnússon

 „Rík­is­stjórn með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum er ekki neitt sér­stak­lega spenn­andi kostur,“ segir Óttar Proppé, for­maður Bjartrar fram­tíðar, um mögu­leik­ann á 32 þing­manna hægri stjórn. Hann segir ansi langt á milli Bjartrar fram­tíðar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins í „mjög mörgum málum.“

Óttarr Proppé, sem leiðir Bjarta fram­tíð í Kraganum, bíður nú átekta en for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, Bjarni Bene­dikts­son, er á fundi með Guðna Th. Jóhann­essyni, for­seta Íslands. Bjarni var spurður við kom­una á Bessa­staði hvort hann myndi vilja rík­is­stjórn með Viðreisn og Bjartri fram­tíð. „Ég ætla að ræða við alla,“ sagði Bjarni.

„Ekki neitt sérstaklega spennandi“

Óttarr Proppé segir í sam­tali við Stundina að ekk­ert sé að ger­ast. „Ekki mín megin“. Hann er ekki spenntur fyrir hægri stjórn. 

Er Björt fram­tíð opin fyrir rík­is­stjórn­ar­myndun með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum?

„Rík­is­stjórn með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokknum er ekki neitt sér­stak­lega spenn­andi kostur. Það er ansi langt á milli okkar og Sjálf­stæð­is­flokks­ins í mjög mörgum málum fyrir utan hvað það væri þröngur meiri­hluti. En miðað við það sem undan er gengið þá þyrfti það að vera í ansi strífri stöðu ef það ætti að vera ein­hver mögu­leiki að ná saman mál­efna­lega.“

En hver er þá óska­staða Bjartrar fram­tíðar?

„Það er erfitt að segja til. Þetta er svo þröng staða. Við höfum talað fyrir því að við myndum gjarnan vilja sjá ein­hvern vísi að sam­starfi yfir miðj­una, hvort það væri þetta fimm flokka módel eða módel þar sem bæði Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn og VG kæmi að. Eins og ég segi þá er erfitt að segja til um það en það færi í raun og veru eftir því hvaða áherslur og mál­efni menn geta náð saman um.“

Ríkisstjórn frá hægri til vinstri?

Eftir stendur að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn gæti myndað rík­is­stjórn með Vinstri grænum og þriðja flokki.

Viku fyrir kosn­ingar sagði Katrín að hún hefði ekki umboð frá flokki sínum til að mynda rík­is­stjórn með Sjálf­stæð­is­flokknum.

„Nei, mín afstaða er í sam­ræmi við þá stefnu sem mín hreyf­ing hefur tekið og sam­þykkti meira að segja í ályktun fyrr á þessu ári um að við sjáum fyrir okkur að ef stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir fái til þess umboð eigi þeir að mynda hér rík­is­stjórn að loknum kosn­ingum.“

Þá hefur Svandís Svav­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, því sem næst úti­lokað sam­starf með Sjálf­stæð­is­flokknum. „Vera kann að sam­starf af þessu tagi hafi ein­hvern tíma verið á dag­skrá hér fyrr á árum. Hins vegar er það óhugs­andi við núver­andi kring­um­stæður eftir aðdrag­anda kosn­ing­anna, upp­ljóstr­an­irnar úr Panama-skjöl­unum og við­brögð for­ystu­manna stjórn­ar­flokk­anna. Þetta hljóta allir að sjá.“

Viðreisn útilokar tvo möguleika

Benedikt Jóhann­es­son úti­lok­aði fyrir kosn­ingar að mynda rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokki og Sjálf­stæð­is­flokki. Benedikt hefur líka sagt að hann vilji síður fimm flokka rík­is­stjórn með Vinstri grænum, Pírötum, Bjartri fram­tíð og Sam­fylk­ing­unni. 

Píratar hafa hins vegar boð­ist til að styðja minni­hluta­stjórn Vinstri grænna, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar sem hefði aðeins 21 þing­mann. 

Óttarr seg­ist ekki geta lesið mikið í stöð­una. „Nei, ég er í svip­aðri stöðu og þú. Maður reiknar með því annað hvort að það sé ein­hver trú á því að Bjarni geti myndað stjórn eða hrein­lega að for­set­inn hafi ákveðið að láta hann byrja. Get ekk lesið meira í það.“

Eftir stendur því sá mögu­leiki að Vinstri grænir end­ur­skoði afstöðu sína til sam­starfs með Sjálf­stæð­is­flokknum og fari í rík­is­stjórn ásamt Bjartri fram­tíð eða Viðreisn. En miðað við svör Óttarrs er ekki enn úti­lokað að Björt fram­tíð myndi hægri stjórn með Viðreisn og Sjálf­stæð­is­flokki ef aðstæður bjóða ekki upp á annað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Alþingiskosningar 2016

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár