Mynd: Heiða Helgadóttir

Bardagamenn, glóandi járn og fornir taktar

Á þriðja hund­rað manns í gervi vík­inga sótti hina árlegu vík­inga­há­tíð við Fjöru­krána. Elín Reyn­is­dóttir, Elísabet Stef­áns­dóttir, Natalía Ósk Rík­harðs­dóttir Snædal, Sig­ur­björn Björns­son og Sæmundur Örn Kjærne­sted eru öll í vík­inga­fé­lag­inu Rimmugýgi þar sem félagar hafa kost á að læra bar­daga­að­ferðir að vík­inga­sið, þeir vinna hand­verk í stíl vík­ing­anna og syngja og spila eins og talið er að vík­ingar hafi gert. Fimm­menn­ing­arnir klæddu sig að sið vík­inga og tóku þátt í að töfra fram þau vík­inga­á­hrif sem þarf á hátíðum sem þessum.

Svæðið í kringum Vík­inga­krána er orðið ævin­týra­legt – á milli gam­al­dags hús­anna á svæð­inu má finna fólk í gervi vík­inga sem selur varn­ing sinn í tjöldum, eldsmiðir hamra járnið á meðan það er heitt, flautuleik­ari tálgar flautu og blæs í hana af og til, vík­ingar berj­ast með sverði og skildi, sumir í hópnum syngja og spila á hljóð­færi og nokkrir lambskrokkar eru grill­aðir yfir opnum eldi.
Trjákurl liggur yfir ann­ars steyptu svæð­inu svo það er lík­ast því að ganga á nak­inni jörð­inni á öðrum tíma. Í annarri ver­öld.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár