Bæjarstjóri leigir ferðamönnum herbergi í bæjarstjórabústaðnum

Róbert Ragn­ars­son, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, býr í leigu­hús­næði á vegum bæj­ars­ins sem hann leigir jafn­framt út til ferða­manna í gegnum sölu­vef­inn Airbnb. Ferða­menn þakka gott atlæti. Bæj­ar­full­trúi kemur af fjöllum.

Bæjarstjóri leigir ferðamönnum herbergi í bæjarstjórabústaðnum

Róbert Ragn­ars­son, bæj­ar­stjóri í Grinda­vík, býr í leigu­hús­næði á vegum bæj­ar­ins sem hann leigir jafn­framt út til ferða­manna í gegnum sölu­vef­inn Airbnb. Um er að ræða 145 fer­metra ein­býl­is­hús, auk bíl­skúrs, en sam­kvæmt fast­eigna­skrá er húsið metið rúmar 32 millj­ónir. Róbert leigir út her­bergi í hús­inu og hafa gestir aðgang að eld­húsi, bað­her­bergi og stofu. Hjálmar Hall­gríms­son, for­seti bæj­ar­stjórnar, stað­festi í sam­tali við Stundina að hann hefði heyrt af þessu, en vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið. Aðspurður hvort íbúðin væri leigð út með leyfi bæj­ar­stjórn­ar­innar vís­aði Hjálmar í fyrra svar, hann gæti ekki tjáð sig um málið að svo stöddu. 

Tekur 60 þúsund krónur fyrir vikuna

Stundin náði tali af Róbert í morgun sem stað­fetsi að hann væri með her­bergi í útleigu. „Ég bý einn og fannst til­valið að prófa að leigja út her­bergi. Ég er búinn að fá tvo gesti. Mér finnst skemmti­legt að hafa gesti þegar ég kem heim úr vinn­unni,” segir Róbert. Hann segir að leigan sé fyrir opnum tjöldum. Hann hafi ákveðið að prófa að leigja út her­bergi til þess að átta sig á því hvernig þetta gengur fyrir sig og hvernig kerfið virkar. „Þetta er lítið mál og ein­falt. Ég hef núna sótt um starfs­leyfi til sýslu­manns,” segir Róbert. Hann gefur hins vegar ekk­ert út á það hvort útleigan sé með vit­und bæj­ar­stjórn­ar­innar. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Ferðaþjónusta

Mest lesið

Ástleysið er sárt
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
4
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
5
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár