Útvarpsstjóri sakar hælisleitendur um tengsl við ISIS

Arn­þrúður Karls­dóttir útvarps­stjóri hjá Útvarpi Sögu full­yrðir að Ali Nasir og Majed, hæl­is­leit­endur frá Írak, sem dregnir voru út úr Laug­ar­nes­kirkju, liggi undir grun um að vera í „und­ir­bún­ingi fyrir ISIS sam­tökin hér á Íslandi“. Hún vill að séra Kristínu Þórunni Tóm­as­dóttur verði vikið úr starfi og hvetur lög­reglu til að kæra prest­ana, og biskup, fyrir að trufla störf lög­regl­unnar.

Útvarpsstjóri sakar hælisleitendur um tengsl við ISIS

Arn­þrúður Karls­dóttir, útvarps­stjóri hjá Útvarpi Sögu, full­yrti í útvarps­þætti sínum í morgun að hæl­is­leit­end­urnir tveir sem dregnir voru með lög­reglu­valdi út úr Laug­ar­nes­kirkju í fyrr­inótt lægu undir grun um að vera í und­ir­bún­ingi fyrir ISIS sam­tökin hér á landi. Hún segir fram­göngu séra Krist­ínar Þórunnar Tóm­as­dóttur „algjör­lega til hábor­innar skammar“ og vill að henni sé vikið úr starfi. Þá segir Arn­þrúður að biskup Íslands, séra Agnes M. Sig­urð­ar­dóttir, megi hafa skömm af því að leggja blessun sína við að veita hæl­is­leit­end­unum skjól í kirkj­unni og hvetur lög­regl­una til að kæra prest­ana og biskup fyrir að trufla störf lög­regl­unnar.  

Gagnrýnir þátt fjölmiðla

Líkt og Stundin greindi frá í gær voru Ali Nasir og Majed, hæl­is­leit­endur frá Írak, dregnir út úr Laug­ar­nes­kirkju með lög­reglu­valdi aðfar­arnótt þriðju­dags og sendir til Noregs með flug­vél. Þeir ótt­ast að þaðan verði þeir sendir aftur til Íraks. Báðir hafa þeir dvalið á Íslandi í sjö mán­uði en hæl­is­um­sóknir þeirra verða ekki teknar til efn­is­legrar með­ferðar. Toshiki Toma, prestur inn­flytj­enda, og Kristín Þórunn Tóm­as­dóttir, sókn­ar­prestur Laug­ar­nes­kirkju, ákváðu að opna dyr kirkj­unnar og veita hæl­is­leit­end­unum skjól í von um að lög­regla myndi virða forna siði um kirkju­grið. Hann var ekki virtur.  

Dregnir úr Laugarneskirkju
Dregnir úr Laug­ar­nes­kirkju Ali Nasir og Majed, hæl­is­leit­endur frá Írak, voru dregnir út úr Laug­ar­nes­kirkju með lög­reglu­valdi í fyrr­inótt.

Handteknir við altarið
Hand­teknir við alt­arið Lög­reglan hand­tók Ali Nasir og Majed við alt­arið í Laug­ar­nes­kirkju.

„Það leikur grunur á því að þessir aðilar, báðir tveir, séu í und­ir­bún­ingi fyrir ISIS sam­tökin hér á Íslandi,“ sagði Arn­þrúður orð­rétt í morgun. Hún segir engan þora að standa upp og segja það, en að það sé ástæða fyrir því að Norðmenn vildu ekki hafa þessa menn í Noregi. „Þetta er það sem Vest­ur­lönd hafa verið að ótt­ast, að menn séu að fara inn í þjóð­fé­lög undir fölskum for­merkjum. Ég ætla ekk­ert að full­yrða að svo sé í þessu til­felli, en það leikur grunur á því og bara það er nægj­an­legt fyrir Norðmenn að segja nei, og bara það er nægj­an­legt fyrir Íslend­inga að segja nei,“ segir Arn­þrúður. 

„Það leikur grunur á því að þessir aðilar, báðir tveir, séu í und­ir­bún­ingi fyrir ISIS sam­tökin hér á Íslandi.“

Þess ber að geta að menn­irnir voru sendir úr landi á grund­velli Dyfl­inn­ar­reglu­gerð­ar­innar, en ekki vegna gruns um tengsl við hryðju­verka­sam­tök. Þór­hildur Hagalín, upp­lýs­inga­full­trúi hjá Útlend­inga­stofnun, stað­festir það í sam­tali við Stundina og segir stofn­un­ina aldrei hafa heyrt á það minnst að menn­irnir eigi tengsl við hryðju­verka­sam­tök.

Vill að séra Kristín sé kærð og henni vikið úr starfi

Klæddi sig í búrku
Klæddi sig í búrku Á síð­asta ári birti Arn­þrúður mynd af sjálfri sér í búrku­líki við hljóð­nem­ann á Útvarpi Sögu og spurði: „Munu útvarps­menn fram­tíð­ar­innar líta svona út?“ Mörgum þótti myndin bera vott af for­dómum í garð múslima.

Arn­þrúður segir fram­göngu séra Krist­ínar Þórunnar Tóm­as­dóttur „algjör­lega til hábor­innar skammar“ og segir hana hafa með fram­ferði sínu reynt að hindra starf lög­regl­unnar. „Svo segir hún að þetta hafi verið erfið stund og að hún láti engan ósnort­inn. Hvers konar „show up“ var þetta? Að hún skuli ekki skamm­ast sín að vera prestur. Það á að víkja henni. Það á að víkja henni. Svo fylgdi það frétt­inni að biskup hefði lagt blessun sína yfir þetta og bara skömm sé bisk­ups fyrir að gera svona,“ segir Arn­þrúður.  

„Að hún skuli ekki skamm­ast sín að vera prestur. Það á að víkja henni.“

Þá gagn­rýnir Arn­þrúður einnig þátt fjöl­miðla í mál­inu. Hún segir prest­ana hafa kallað á „einn helsta sorp­miðil lands­ins“ til að mynda, og á þá lík­leg­ast við Stundina, og gagn­rýnir Stöð 2 og Rík­is­sjón­varpið fyrir að hafa sýnt úr mynd­bandi Stund­ar­innar í kvöld­fréttum í gær. 

Ekki náð­ist í Arnþrúði við vinnslu frétt­ar­innar. 

Sjá einnig: Arn­þrúður lék Indverja í beinni: „Curry curry curry“

Fulltrúi í mannréttindaráði skammar prestana

Fleiri hafa lýst yfir van­þóknun vegna ákvörð­unar Krist­ínar Þórunnar Tóm­as­dóttur, sókn­ar­presti í Laug­ar­nes­kirkju, og Toshiki Toma, prests inn­flytj­enda um að opna dyr kirkj­unnar og veita hæl­is­leit­endum skjól. Þannig segir Sveinn Hjörtur Guð­finns­son, full­trúi Fram­sókn­ar­flokks í mann­réttinda­ráði Reykja­vík­ur­borgar, það til dæmis algjöra skömm prest­anna að skipta sér af málum með þessum hætti. 

 

 

Jón Magn­ús­son, fyrr­ver­andi þing­maður Frjáls­lynda flokks­ins og hæsta­rétt­ar­lög­maður, furðar sig einnig á fram­göngu Krist­ínar Þórunnar Tóm­as­dóttur og Toshiki Toma. „Eiga afbrota­menn sem koma í kirkju að njóta frið­helgi þannig að armur lag­anna nái ekki til þeirra? Kirkjan sem stofnun verður að starfa í sam­ræmi við lög og reglur. Fróðlegt væri að sjá hvað kirkj­unnar fólk, já ég tala nú ekki um Bisk­upinn yfir Íslandi hafa um málið að segja,“ skrifar hann á Facebook síðu sína í dag. Þá veltir hann því fyrir sér hvort prest­arnir hugsi nú stöðu sína í ljósi þess að félags­skap­ur­inn Vantrú lýsir yfir sér­stökum stuðn­ingi við þá. „Gæti það verið að þessir prestar eigi trú­fræði­lega sam­leið með Vantrú?“ spyr hann. Í athuga­semd við stöðu­færslu Jóns er meðal ann­ars spurt hvort morð­ingjar og nauð­garar geti líka fengið grið í þess­ari kirkju. „Þau Toshiki Toma og Kristín Tóm­as­dóttir virð­ast telja það val­kost,“ svarar Jón. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Flóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan
FréttirFlóttamenn

Fá ekki að læra hér frekar en í Afganistan

Í Afganistan var þeim bannað að læra. Á Íslandi hafa þær mætt hindr­unum í hvert sinn sem þær hafa reynt að kom­ast í skóla. Þær þrá ekk­ert heitar en að læra íslensku, kom­ast inn í sam­fé­lagið og sækja sér háskóla­menntun. En þær eru fastar; kom­ast ekki út úr störfum sínum sem hót­el­þernur þar sem þær hafa engin tæki­færi til að þjálfa íslensk­una: lyk­il­inn að sam­fé­lag­inu.
Ágreiningurinn um útlendingamálin
Greining

Ágrein­ing­ur­inn um útlend­inga­málin

„Ég tel ekki að slík frum­vörp eigi erindi inn í þingið,“ sagði Svandís Svav­ars­dóttir. „Þar erum við inn­við­a­ráð­herra held ég ósam­mála,“ svar­aði Guðrún Haf­steins­dóttir. Þetta var gam­alt stef og nýtt, að flokk­arnir væru ósam­mála í útlend­inga­málum, en það hafði þó varla verið jafn skýrt fyrr en rétt áður en stjórnin féll, skömmu áður en Guðrún ætl­aði sér að leggja fram frum­varp um lokað búsetu­úr­ræði.

Mest lesið

Ástleysið er sárt
1
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.
Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífshættulegan meðgöngusjúkdóm
2
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

„Margt sem ég hef séð situr í mér“
3
Viðtal

„Margt sem ég hef séð situr í mér“

Þegar Halla Bergþóra Björns­dóttir varð fyrst kvenna til þess að sinna lög­gæslu á Húsavík fékk hún að heyra að konur ættu ekk­ert erindi í lög­regl­una. Hún lét það ekki á sig fá, varð lög­reglu­stjóri og loks rík­is­lög­reglu­stjóri. Starfið hefur breytt henni, enda hefur hún komið að erf­iðum málum og fengið hót­anir. Á sama tíma hefur hún öðl­ast skarp­ari sýn á lífið, sterk­ari löngun til að gera gagn og fundið fyrir þakk­læti fyrir allt það góða.
Ástleysið er sárt
4
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Snýr aftur í hjúkrunarfræði eftir heilablæðingu
4
ViðtalLífið á Grensás

Snýr aftur í hjúkr­un­ar­fræði eftir heila­blæð­ingu

Við­bragðs­að­ilar héldu að Björn Ólafur Har­alds­son væri útúr­dóp­aður þegar hann lá á gólf­inu með blæð­ingu í heila. Hann var 21 árs og í hjúkr­un­ar­fræði­námi þegar áfallið reið yfir og þurfti ítrekað að leið­rétta mis­tök ófag­lærðs starfs­fólks á heil­brigð­is­stofn­unum. Nú stefnir hann á að klára námið og koma sterk­ari til baka.

Mest lesið í mánuðinum

Nýtt efni

Mest lesið undanfarið ár