Aðstoðar­utanríkis­ráðherra Rússlands í sjóstangaveiði með Kristjáni í Hval og forstjóra HB Granda

Vladimir Titov boðið í sjóstanga­veiði á Faxaflóa. Hvalur hf. og HB Grandi eiga mikilla hagsmuna að gæta í Rússlandi.

Hvalur þarf stuðning Rússlands
Hvalur þarf stuðn­ing Rúss­lands Kristján Loftsson fór í sjóstanga­veiði með aðstoð­arutan­rík­is­ráð­herra Rúss­lands um miðjan júlí. Tveimur vikum síðar hélt flutn­ings­skipið Winter Bay frá Noregi með 1700 tonn af hval­kjöti og siglir um rúss­neskt haf­svæði. Mynd: PressPhotos

Aðstoðarutanríkissráðherra Rússlands, Vladimir Titov, fór í sjóstanga­veiði með Vilhjálmi Vilhjálms­syni, forstjóra útgerðar­fyrir­tækisins HB Granda, og Kristjáni Loftssyni, hluthafa og stjórnar­manni í HB Granda og framkvæmda­stjóri Hvals hf., um borð í íslensku skipi sem heitir Aurora á Faxaflóa um miðjan júlí. Aðrir sem voru um borð í skipingu voru Anton V. Vasiliev, sendi­herra Rússlands á Íslandi, Jón Ólafur Halldórsson, forstjóri Olís og kaup­sýslu­maðurinn Erlendur G. Auðunsson, sem meðal annars hefur stundað kjöt­útflutning frá Íslandi. Titov var þá staddur hér á landi og fundaði meðal annars í utan­ríkis­ráðuneytinu. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Útflutningur til Rússlands

FréttirÚtflutningur til Rússlands

Gunnar Bragi og Bjarni missaga um einhug ríkis­stjórnarinnar í Rússa­málinu

Utan­ríkis­ráðherra og fjármála­ráðherra tala með mjög ólíkum hætti viðskipta­þvinganirnar gegn Rússlandi og stuðning Íslands við þær. Bjarni segir hugsanlega mikilvægt að endur­skoða stuðning Íslands en Gunnar Bragi segir það ekki verða gert. Aðstoðar­kona Bjarna Benedikts­sonar vill ekki tjá sig um einhuginn í stjórninni sem Gunnar Bragi talar um.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár