Keilir Miðja skjálfta­virkni seinni hluta dags­ins í dag hefur verið um þremur kíló­metrum suðsuð­vestan við fjallið Keili, sem er sýni­legt frá höf­uð­borg­ar­svæð­inu, eða mitt á mili Keilis og Fagra­dals­fjalls. Mynd: Shutterstock / Jóhann Helgason

Nýjasta sviðsmyndin fyrir eldgos gerir ráð fyrir mögulegu hraunflæði yfir Reykjanesbraut

Eldfjalla­fræði- og náttúruvár­hópur Háskóla Íslands hefur uppfært spálíkan fyrir eldgos á Reykjanesi vegna breyttrar skjálfta­virkni í dag.

Eldfjalla­fræði- og náttúruvár­hópur Háskóla Íslands hefur gefið út nýtt sviðs­myndakort fyrir möguleg eldgos á Reykjanesi í yfir­standandi skjálfta­hrinu.

Öflugir jarð­skjálftar hafa skekið Reykjanesið og höfuð­borgar­svæðið síðasta sólar­hring, meðal annars 5,2 að stærð klukkan 8 í morgun og 4,9 að stærð klukkan 22.38 í gærkvöldi. Sá stærsti og tveir minni, 4,6 og 4,4 að stærð, ásamt fjölda smærri skjálfta, hafa í dag og í gær verið mældir milli fjallsins Keilis og Fagradals­fjalls. Skjálfta­miðjan er því nánast sýnileg frá höfuð­borgar­svæðinu, aðeins um þremur kíló­metrum handan Keilis. Nýtt spákort fyrir mögulegt eldgos staðsetur hugsanlegar og líklegastar gosstöðvar í kringum það svæði. Ekki eru þó merki um gosóróa.

Sviðs­myndin frá því kvöldÁ mynd­inni frá eld­fjalla­fræði og nátt­úru­vá­r­hópi Háskóla Íslands eru sýndir lík­legir far­vegir hraun­rennslis ef til eld­goss kemur á þeim svæðum sem nú telj­ast lík­leg­ust. Rauðari litur gefur til kynna aukin lík­indi.

Í Facebook-færslu frá hópnum segir að spáin sé mikið breytt eftir að skjálfta­virkni færðist til í dag. „Eins og áður látum við gjósa á allra líklegustu svæðunum. Miðað við kortið frá fyrr í dag eru miklar breytingar, eins og við mátti búast út frá spákortinu. Nú er það fyrst og fremst mitt Reykjanesið þar sem líklegast er að hraun flæði um. Eins og áður, því rauðari sem liturinn er því líklegra er að hraun fari þar um á nesinu.“

Eins og sviðs­myndin sýnir er gert ráð fyrir að hraun geti runnið yfir vegstæði Reykja­nesbrautarinnar og gæti því mögulega teppt umferð milli Reykja­víkur og Kefla­víkur. Einnig er gert ráð fyrir að Suður­strandar­vegur geti orðið fyrir hraun­rennsli í nýjustu sviðs­myndinni. Áður hefur á sögulegum tíma runnið hraun til sjávar úr eldgosi á Reykjanesi, bæði til norður að ströndinni við Faxaflóa og til suðurs.

Lík­leg­ustu eld­gosa­svæðinSamkvæmt upp­færðu lík­ani er lík­leg­ast að mögu­leg eld­gos geti átt sér stað á rauðu svæð­unum. Ólík­legri eru gos á gul­leitu svæð­unum. Byggð í Grinda­vík sést neðst til vinstri á mynd­inni en efst til sjást Njarðvík og svo Keflavík.

Fyrr í kvöld birti eldfjalla­fræði og náttúruvár­hópur Háskóla Íslands nýja eldgosaspá. „Eftir hrinurnar í dag breytist eldsuppkomu­spáin. Miðað við skjálfta frá hádegi í gær fram til kl. 17 í dag er spáin samkvæmt mynd. Eins og áður eru það innan eldrauðu svæðanna sem líklegast er að eldgos verði. Miðað við fyrri póst okkar hefur orðið mikil breyting á spákortinu. Líklegustu svæðin eru komin að Trölla­dyngju. Enn og aftur þá er spákortið byggt á undir­liggjandi rann­sóknum á Reykjanesi að viðbættum þeim atburðum er áttu sér stað í dag.“

Sem fyrr segir hefur ekki verið greint frá neinum gosóróa í tengslum við skjálfta­hrinuna, sem orsakast af snið­gengum fleka­hreyfingum Ameríku­fleka til vesturs og Evrasíu­fleka til austurs. Meðal þeirra sem hafa varað við því að skjálfta­virknin og fyrra landris kunni að vera fyrirboði eldgoss eru Ari Trausti Guðmundsson, jarð­fræðingur og þingmaður. Ómögulegt er að segja til um líkindi á jarð­hræringum vegna eða samhliða skjálfta­hrinunnar, enda engin fordæmi fyrir eldgosum á Reykjanesi síðustu 780 árin. Þó hefur verið bent á að eldgosa­hrinur eigi sér stað á svæðinu á 800 til 1.000 ára fresti og því teljist þau tímabær á jarð­sögulegum tímaskala. Svo lengi sem eldgos á sér stað á þurru landi er líklegt að gjósku­fall verði takmarkað.

Hættustig almanna­varna er í gildi á Reykjanesi og á höfuð­borgar­svæðinu vegna skjálfta­hrinunnar. Fólk er beðið að tryggja að lausir munir geti ekki fallið og orðið til líkams­tjóns og að forðast hlíðar þar sem grjóthrun getur orðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

Fagradalsfjall

Mest lesið undanfarið ár