Segir „ekki hægt að draga bara sömu aðgerðir upp úr poka“

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að vís­inda­fólk og rík­is­stjórnin verði að fá „and­rými til að meta stöð­una“ í far­aldr­inum og við­eig­andi við­brögð, í ljósi útbreiddra bólu­setn­inga á Íslandi.

Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki vera farna að ræða mögulegar aðgerðir vegna nýrrar bylgju veirufaraldursins.
Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir rík­is­stjórn­ina ekki vera farna að ræða mögu­legar aðgerðir vegna nýrrar bylgju veiru­far­ald­urs­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að vegna víð­tækra bólu­setn­inga almenn­ings sé Ísland ekki á sama stað í far­aldr­inum nú og þegar þriðja bylgja far­ald­urs­ins fór af stað. Því sé „ekki hægt að draga bara sömu aðgerðir upp úr poka“ til þess að hefta útbreiðslu COVID-19, sem er hröð þessa dag­ana.[links]

Þetta kemur fram í Frétta­blað­inu í dag. For­sæt­is­ráð­herra segir að rík­is­stjórnin sé ekki farin að ræða frek­ari aðgerðir vegna stöð­unnar í far­aldr­inum og að mik­il­vægt sé að sótt­varna­yf­ir­völd og rík­is­stjórnin fái „and­rými til að meta stöð­una núna.“

„Við erum þannig að reyna það sem þjóð hvernig bólu­efnin virka, en það fylgir því að vera fremstur í röð­inni að eng­inn annar hefur neina for­skrift fyrir okkur. Við þurfum sjálf að vega og meta stöð­una sem er það sem okkar góða vís­inda­fólk er að gera,“ segir Katrín við Frétta­blaðið.

Gætum fengið „hundruð og þúsundir smita“ eftir útihátíðir

Ör vöxtur smita und­an­farna daga hefur valdið Þórólfi Guðn­a­syni sótt­varna­lækni áhyggjum þrátt fyrir hátt hlut­fall bólu­setn­inga.

Í við­tölum við fjöl­miðla í gær og í dag hefur hann ekki skotið loku fyrir það að hann muni leggja til ein­hverjar inn­an­lands­að­gerðir á næst­unni til að stemma stigu við útbreiðslu smita í sam­fé­lag­inu, nú þegar stórar úti­há­tíðir eru framundan

Í sam­tali við Morg­un­blaðið í dag segir hann að við­burður á borð við Þjóð­há­tíð í Vest­manna­eyjum gæti hrint af stað smit­bylgju sem erfitt yrði að eiga við. „Við gætum fengið hund­ruð og þús­undir smita eftir slíkt,“ segir sótt­varna­lækn­ir­inn við blaðið.

[adspot]

56 smit greindust inn­an­lands í fyrra­dag og sagði Víðir Reyn­is­son yfir­lög­reglu­þjónn í gær að ekki væri útlit fyrir annað en að fjöldi smita væri enn á upp­leið. Hann sagði lík­legt að Ísland yrði „rautt land“ á korti Evrópsku sótt­varna­stofn­un­ar­innar strax á næstu dögum ef fram héldi sem horfir.

Kosningabarátta megi ekki flækjast fyrir viðbrögðum

Á stjórn­mála­svið­inu hefur gætt titr­ings vegna stöðu mála í vik­unni. Eftir rík­is­stjórn­ar­fund á mánu­dag þar sem ákveðið var að gríp­ari til hertra aðgerða á landa­mærum, með kröfu um nei­kvætt COVID-próf frá bólu­settum frá og með næsta þriðju­degi, viðr­uðu ráð­herrar Sjálf­stæð­is­flokks efa­semdir um rökin fyrir því að grípa til frek­ari aðgerða í sam­tölum við fjöl­miðla.

Svandís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra sagði við Rík­is­út­varpið þann sama dag að sjálf­stæð­is­menn hefðu „komið fram með ýmsar efa­semdir um ýmsar sótt­varna­ráð­staf­anir, í raun frá upp­hafi far­ald­urs­ins“ og fóru þau ummæli, sam­kvæmt Morg­un­blað­inu, fyrir brjóstið á sjálf­stæð­is­mönnum.

Sögðu ónafn­greindir þing­menn við blaðið að ljóst væri af ummælum ráð­herra Vinstri grænna að kosn­inga­bar­áttan væri hafin, en alþing­is­kosn­ingar fara fram eftir rúma tvo mán­uði.

For­sæt­is­ráð­herra segir við Frétta­blaðið í dag að kom­andi kosn­ingar megi ekki hafa áhrif á það hvernig stjórn­völd takast á við far­ald­ur­inn, heldur verði að taka skyn­sam­leg­ustu ákvarð­anir á hverjum tíma.

„Það er á okkar ábyrgð að tryggja það,“ segir Katrín við blaðið.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár