Skoða að bæta áskriftargjöldum við afnotagjöld hjá BBC

Mögulegt er að breska rík­is­út­varpið BBC verði í fram­tíð­inni fjár­magnað með áskrift­ar­gjöldum ofan á afnota­gjöldin sem nú eru notuð. Þetta segir John Whittingdale, menn­ing­ar­mála­ráð­herra Bret­lands, við BBC. Hann segir alla mögu­leika verða skoð­aða í umræð­unni um fram­tíð rík­is­út­varps­ins, en rík­is­stjórnin ætlar að ráð­ast í mikla end­ur­skoðun á stofn­un­inni.

Hann segir mögu­legt að í fram­tíð­inni verði það þannig að hluti stofn­un­ar­innar verði fjár­magn­aður með skyldu­gjöldum og hluti verði með áskriftum sem fólk geti þá borgað að mis­mun­andi hlutum þjón­ust­unnar. Þetta sé þó ekki komið annað en á hug­mynda­stig.

Whittingdale til­kynnti það á fimmtu­dag­inn að ráð­ist verði í end­ur­skoðun á starf­sem­inni, stærð BBC, hvað stofn­unin gerir og hvernig hún er fjár­mögnuð. Hann sagði þá að hann efað­ist um að stofn­unin ætti að reyna áfram að vera „allt fyrir alla.“

Margir hafa gagn­rýnt áform rík­is­stjórn­ar­innar síð­ustu daga. Whittingdale hefur sagt að stærð og umfang BBC hafi auk­ist veru­lega á síð­asta ára­tug og nú væri rétti tím­inn til að skoða „hvort þessi til­tekna breidd þjón­ustu sé það sem best þjónar þeim sem borga afnota­gjöld.“

Whittingdale segir í dag að hann vilji fá sem flestar raddir fram um fram­tíð stofn­un­ar­innar. Margir myndu segja að stofn­unin væri að gera margt það sama og aðrir fjöl­miðlar í dag­skrár­gerð sinni, en að sama skapi ætti dag­skrár­gerð rík­is­fjöl­mið­ils­ins að vera öðru­vísi.

Hann sagð­ist hissa á því að end­ur­skoð­unin hafi fengið slæmar við­tökur og sagð­ist elska rík­is­út­varpið.

„Ég er mik­ill aðdá­andi BBC. Ég hef sagt það margoft að þegar BBC er upp á sitt besta er það besti fjöl­mið­ill í heim­inum, en á tíu ára fresti rennur stofn­skrá stofn­un­ar­innar út og þá er rétti tím­inn til að skoða það hvað BBC gerir, hvernig hún er fjár­mögnuð, hvernig henni er stjórnað og skoða hvort breyt­ingar þurfi að gera eða ekki.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár