Namibísk stjórnvöld krefja Samherjafélög um 2,7 milljarða í skatt

Namibísk stjórn­völd hafa gert 2,7 milljarða kröfu vegna endur­álagningar skatta af starfsemi Samherja í landinu. Þetta kemur fram í ásreikningum Samherja Holding fyrir árin 2019 og 2020 sem hefur nú verið skilað og þeir birtir opinber­lega.

Namibísk stjórn­völd hafa gert nokkrar skatta- og lögfræði­kröfur á hendur namibískum dóttur­félögum Samherja. Þar á meðal er endur­álagning skatta upp á 18 milljónir evra, jafnvirði 2,7 milljarða króna. Þetta er meðal þess kemur fram í nýbirtum ársreikningi Samherja Holding sem fer með eignar­hald erlendrar starfsemi Samherja­samsteypunnar.

„[E]nn er óvissa um áhrif mála­rekst­urs í Namibíu á starf­semi sam­stæð­unnar“
úr árs­reikn­ingi Samherja Holding vegna árs­ins 2020

Í ársreikningunum eru margar ábendingar og fyrir­varar vegna þeirra rannsókna sem nú standa yfir á starfsemi útgerðarinnar og tengdra félaga í Namibíu. Vegna þeirra gerir stjórn fyrir­tækisins, sem leidd er af Eiríki S. Jóhanns­syni, sem líka er stjórnar­formaður Samherja á Íslandi, gerir fyrirvara við ársreikningana.

Stjórn og endurskoðendur með fyrirvara

„Stjórn og forstjóri gera þann fyrirvara við stað­festingu sína að enn er óvissa um áhrif mála­reksturs í Namibíu á starfsemi samstæðunnar og ekki …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • ÁHG
    Árni Hafþór Guðnýjarson skrifaði
    Jæja nú tekur Flokkurin til varna undir foristu Fjölmiðlafulltrúa Ríkistjórnar Katrínar Jakobsdóttir í umboði Bjarna Ben
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Samherjaskjölin

Mest lesið undanfarið ár