Í átt að Skaftafelli
Í átt að Skafta­felli Tign­ar­leg aðkoma er að Skafta­felli í Vatna­jök­uls­þjóð­garði. Mynd: Golli

Ósnortin víðerni: „Sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tímann“

„Þetta er nátt­úrlega bara fyrir ákveðinn hóp og skemmir í leiðinni upplifun hinna sem vildu njóta nátt­úrunnar,“ segir Svanhvít Helga Jóhanns­dóttir um fyrir­hugaðar framkvæmdir við Hoffellslón. Breytingar við lónið, Skafta­fell og Vonar­skarð hafa vakið upp sterk viðbrögð og spurningar um náttúru­vernd í og við UNESCO-svæði.

Breytingar í nágrenni og innan Vatna­jökuls­þjóðgarðs hafa verið í deiglunni undan­farið þar sem tekist er meðal annars á um hvort halda eigi víðernum ósnortnum.  

„Það er mjög sorglegt að við getum ekki hugsað lengra fram í tímann í svona uppbyggingu og fattað að náttúran er það sem er einstakt við svæðið okkar og þjóð­garðinn. Það er ástæðan fyrir að langflestir ferðamenn heimsækja svæðið,“ segir Svanhvít Helga Jóhanns­dóttir, íbúi í Öræfum, í samtali við Heimildina.

Hún segir mikilvægt að Vatna­jökuls­þjóðgarður stígi fast til jarðar þegar kemur að framkvæmdum í og við þjóð­garðinn. „Þetta snýst um náttúru­vernd, þannig að mér finnst mjög óeðlilegt að þau séu diplómatísk í þannig málefnum.“

Heimildin fór yfir stöðuna í Skafta­felli, Hoffelli og Vonar­skarði en breytingar á þessum þremur svæðum, í og við Vatna­jökuls­þjóðgarð, hafa vakið harða gagnrýni. 

„Skrímsli“ í Skaftafelli

Nýlega vakti athygli uppbygging í Skafta­felli sem stendur rétt …

Kjósa
23
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • SÍF
    Sveinn í Felli skrifaði
    Að sjálfsögðu skal róa að því með öllum árum að drepa gullgæsina.
    Eins er smekkleysi nýríkra plebba vel þekkt stærð.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Ferðamannalandið Ísland

Mest lesið undanfarið ár