„Allt í einu koma þessi skrímsli upp úr jörðinni“

Undir­skrifta­söfnun er hafin til að mómæla framkvæmdum í Skafta­felli. Fundur um breytingar framkvæmd­anna var haldinn um hásumar. „Það dugði til að gera skyldu sína,“ segir íbúi á svæðinu. Íbúar óttast að samkeppnis­hæfni muni minnka ef fyrir­huguð ferða­gisting rís. „Ég sé ekki annað en að þetta auki tekjur og atvinnu á svæðinu,“ segir Pálmar Harðarson, sem stendur að fram­kvæmd­inni ásamt Arctic Adventures.

Húsin burt
Húsin burt Und­ir­skrifasöfnun stendur yfir í mót­mæla­skyni við fram­kvæmd­ina. Mynd: Jón Ágúst Guðjónsson

„Manni finnst svolítið sorglegt að það hafi ekki verið lagt meira upp úr ásýndinni. Upplifunin er að þetta sé bara fyrir gróða og ekki verið að reyna að gera vel, að það sé engin hugsjón á bak við þetta,“ segir Svanhvít Helga Jóhanns­dóttir um uppbyggingu sem hafin er í Skafta­felli. 

Svanhvít er meðal íbúa í Öræfum sem flest hafa verið verulega gagnrýnin á framkvæmdina sem er mun stærri í sniðum en upphaf­lega var samþykkt. Komið hefur verið á fót undir­skrifta­söfnun inn á Ísland.is sem er titluð Stöðvum framkvæmdir fyrir framan Skafta­fell. 

Sjötíu húsGert er ráð fyrir að sjö­tíu hús rísi á svæð­inu.

Þar kemur fram að andstaða hafi verið gagnvart áformum um að byggja sjötíu smáhýsi, tíu einbýlishús og þrjár þjónustu­byggingar, „lesist hótel“, segir í textanum. Því hafi verið samþykkt að minnka byggingar­magn niður í 35 …

Kjósa
27
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (5)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • TLS
    Tryggvi L. Skjaldarson skrifaði
    Til hvers að hafa skipulagsyfirvöld ef svona klúður fær að standa?
    0
  • MÖG
    Magni Örvar Guðmundsson skrifaði
    Mikið djöffull eru þetta ljótir kofar, það er ekki einu sinni hægt að líkja þessu við neitt nema hænsnakofa að húsabaki, sem byggður er úr afgangs spýtnarusli í neyð. Það er engin virðing borinn fyrir umhverfinu í þessum arkitektúr. Sem betur fer bý ég á hinu horni landsins og kem því varla til að sjá þessa hörmung.
    2
  • ÁJ
    Ástþór Jóhannsson skrifaði
    Hryggileg er hún stóriðjuvæðing ferðaþjónustunnar þar sem "athafnabestíurnar" eira engu en riðjast inn á friðlýst svæði (með velvilja skammsýnna og gráðugra sveitastjórna) eða í skásta falli upp að mörkum þeirra, hvert sem litið er.
    2
  • Einar Hjartarson skrifaði
    "svefnloft" Merkilegt að Stefán eigi hlut að þessu klúðri.
    0
  • EÖ
    Edda Ögmundsdóttir skrifaði
    Ríkisstjórnin á að sjá um að þessir kumbaldar verði rifnir niður.
    Náttáran á að sjá um sig sjálf, en ekki einhverjir kumpánar sem ekkert sjá nema peninga
    fyrir sig
    5
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár