Kostnaður útgerðar af fæðispeningum 883 milljónir en ekki 2,3 milljarðar

Fjár­mála­ráðu­neytið not­aði tölur frá Sjó­manna­sam­band­inu í útreikn­ing á kostn­aði vegna fæðis- og dag­pen­inga, en töl­urnar voru rangar. Kostn­aður útgerðar af fæð­is­pen­ingum er 883 millj­ónir á ári, og tap­aðar skatt­tekjur hins opin­bera yrðu 407 millj­ónir.

Kostn­aður útgerð­ar­innar í tengslum við skatt­lagn­ingu á fæð­is­pen­ingum og dag­pen­ingum sjó­manna er ekki 2,3 millj­arðar líkt og kom fram í til­kynn­ingu frá fjár­mála- og efna­hags­ráðu­neyt­inu í gær. Raunin er að kostn­að­ur­inn er í kringum 883 millj­ónir króna á ári. Miðað við það myndi hið opin­bera verða af ríf­lega 400 millj­óna skatt­tekjum.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið sendi í gær frá sér árétt­ingu „að gefnu til­efni“ um skatt­lagn­ingu á fæðis- og dag­pen­ingum, vegna sjó­manna­verk­falls­ins. Þar kom fram að heild­ar­kostn­aður útgerð­ar­innar vegna greiðslu fæð­is­pen­inga sjó­manna væri um 2,3 millj­arðar króna miðað við gild­andi kjara­samn­inga. Þar var miðað við að fjöldi lög­skrán­ing­ar­daga sjó­manna sé um 1,5 til 1,6 millj­ónir daga á ári og fæð­is­pen­ing­arnir séu að jafn­aði 1.500 krónur á dag. Miðað við þær for­sendur myndi tekju­tap rík­is­ins á ári vera um 730 millj­ónir króna ef fæð­is­pen­ingar yrðu und­an­þegnir skatti. Til við­bótar myndu sveit­ar­fé­lög tapa um það bil 330 millj­ónum króna í útsvars­tekjur.

Í dag sendi fjár­mála­ráðu­neytið aðra til­kynn­ingu þar sem kom fram að þegar útreikn­ing­arnir voru gerðir hafi verið stuðst við gögn sem Sjó­manna­sam­bandið lét ráðu­neyt­inu í té í fyrra. „Komið hefur í ljós að þau eru ekki rétt, heldur er fjöldi lög­skrán­ing­ar­daga umtals­vert minni, sagði í til­kynn­ingu ráðu­neyt­is­ins í dag. Ekki var tekið fram hversu margir lög­skrán­ing­ar­dag­arnir séu í raun og veru.

Kjarninn leit­aði því til Sam­göngu­stofu, sem heldur utan um lög­skrán­ing­ar­daga á bæði fiski­skipum og flutn­inga­skipum. Samkvæmt tölum frá Sam­göngu­stofu var fjöldi lög­skrán­ing­ar­daga á fiski­skipum tæp­lega 589 þús­und í fyrra, tölu­vert langt frá 1,5-1,6 milljón sem reiknað var út frá í gær.

Út frá þeim fjölda lög­skrán­ing­ar­daga og því að fæð­is­pen­ingar séu að jafn­aði 1.500 krónur á dag fæst út að kostn­aður útgerð­ar­innar yrði 883,5 millj­ónir króna, en ekki 2,3 millarðar. Að sama skapi yrðu skattekj­urnar sem ríkið yrði af tals­vert minni, en miðað við sömu for­sendur og í útreikn­ingum ráðu­neyt­is­ins myndi ríkið verða af rétt rúm­lega 280 millj­ónum króna í skatt­tekjur á ári en sveit­ar­fé­lögin 126,7 millj­ónum króna. Þannig yrði sam­an­lagt tekju­tap hins opin­bera 407 millj­ónir á ári, en ekki rúmur millj­arður króna.

Ráðherra vill heildstæða nálgun

Þor­gerður Katrín Gunn­ars­dóttir, sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra, átti í gær­kvöldi fund með deilu­að­ilum, full­trúum samn­inga­nefnda sjó­manna og útgerð­ar­manna. Þar lagði hún fram þá til­lögu að að láta gera heild­stæða grein­ingu á því hvernig farið er með fæð­is­kostnað og greiðslur vegna fæðis almennt, í skatta­legu til­liti. Slík grein­ing verði unnin í sam­vinnu stjórn­valda og deilu­að­ila. Mark­miðið á að vera að tryggja ein­falda og sann­gjarna skatt­fram­kvæmd og að jafn­ræðis sé gætt milli laun­þega hvað varðar skatta­lega með­ferð greiðslna og hlunn­inda vegna fæð­is­kostn­aðar. Samkvæmt til­lögu sjáv­ar­út­vegs- og land­bún­að­ar­ráð­herra ættu nið­ur­stöður að liggja fyrir í lok apríl í síð­asta lagi, þannig að hægt sé að breyta lögum á þessu þingi ef þess ger­ist þörf.

Sjómenn sendu til­kynn­ingu í morgun þar sem fram kom að góður gangur hafi verið í við­ræðum við útgerð­ar­menn und­an­farna daga. „Sam­eig­in­legur skiln­ingur er með aðilum um helstu kröfur. Líkt og komið hefur fram í umræðu hafa sjó­menn talið að leið­rétt­ingar sé þörf á ójafn­ræði í skatta­legri með­ferð á dag­pen­ing­um. Sjó­menn telja mik­il­vægt að úr þessu verði bætt.“ Grein­ingin sem ráð­herra leggi til sé vafa­laust jákvæð, en „enn stendur þó útaf að fá við­ur­kenn­ingu stjórn­valda á skatta­legri með­ferð á dag­pen­inga­greiðslum til sjó­manna,“ segir í til­kynn­ingu sjó­manna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár