Hið opinbera myndi tapa milljarði á ári með undanþágu til útgerða

Fjár­mála­ráðu­neytið áréttar skatta­lög­gjöf um fæðis- og dag­pen­inga.

Fjármála- og efna­hags­ráðu­neytið hefur sent frá sér árétt­ingu „að gefnu til­efni“ um skatt­lagn­ingu á fæðis- og dag­pen­ingum. Tilefnið er sjó­manna­deilan.

Samkvæmt laus­legu mati ráðu­neyt­is­ins er heild­ar­kostn­aður útgerð­ar­innar vegna greiðslu fæð­is­pen­inga sjó­manna á fiski­skipum um 2,3 millj­arðar króna á ári miðað við gild­andi kjara­samn­inga, segir í árétt­ing­unni. „Er þá miðað við að fjöldi lög­skrán­ing­ar­daga sjó­manna sé 1,5 - 1,6 millj­ónir daga á ári og að fæð­is­pen­ingar séu að jafn­aði 1.500 krónur á dag. Áætlað tekju­tap rík­is­ins af þeirri fjár­hæð, yrði hún und­an­þegin skatti, er u.þ.b. 730 m.kr. á ári, en því til við­bótar myndu sveit­ar­fé­lögin tapa u.þ.b. 330 m.kr. í útsvars­tekjum.“ 

Þá segir ráðu­neytið að í fyrsta lagi fái sjó­menn fæð­is­pen­inga greidda sam­kvæmt kjara­samn­ingum og þeir greiði tekju­skatt og útsvar af reikn­uðum fæð­is­pen­ingum sem séu skil­greindir sem sér­stök hlunn­indi. Fæð­is­pen­ingar séu svo frá­drátt­ar­bær rekstr­ar­kostn­aður hjá útgerð­inni og af þeim sé bæði greitt trygg­inga­gjald og iðgjald í líf­eyr­is­sjóð.

Í öðru lagi mið­ist dag­pen­inga­greiðslur við að verja þurfi dag­pen­ingum að fullu til uppi­halds, þar með talið kostn­aðar vegna fæðis. Það sé svo skatta­yf­ir­valda að meta hvort á móti þessum dag­pen­ingum standi nægi­lega há útgjöld með hlið­sjón af árlegu skatt­mati. Í þriðja lagi hátti það almennt svo um aðra laun­þega að þeir borgi fyrir fæði sem vinnu­veit­andi tryggi þeim, til að mynda í mötu­neytum, með tekjum sem þegar hafi verið skatt­lagðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár