Bæjarstjóri Reykjanesbæjar segir allt of marga komast undan greiðslu útsvars

Allt of margir ein­stak­lingar í Reykja­nesbæ nota allar mögu­legar leiðir til þess að kom­ast hjá greiðslu útsvars á meðan sveit­ar­fé­lagið berst í bökkum. Ef þetta fólk gæfi upp rétt eða að minnsta kosti rétt­ari laun væri staða sveit­ar­fé­lags­ins önnur og betri. Þetta segir Kjartan Már Kjart­ans­son, bæj­ar­stjóri Reykja­nes­bæjar, í grein sem hann birti á heima­síðu bæj­ar­fé­lags­ins.

Kjartan segir að það þurfi að verða hug­ar­fars­breyt­ing í þessum málum, útsvarið sé helsti tekju­stofn sveit­ar­fé­laga. Lang­flestir sem greiði lítið eða ekk­ert í útsvar séu í eigin rekstri, og svo séu þeir sem vinni svart. „Auðvitað geta verið góðar og gildar ástæður fyrir lágum upp­gefnum launum í ein­hverjum til­fellum svosem erfitt árferði og tap. Þegar maður hins vegar veit um fólk í eigin rekstri sem hefur það gott, ferð­ast oft á ári til útlanda, á sum­ar­hús og fleiri eignir, en gefur upp á sig lág­marks­laun, verður maður von­svik­inn. Á sama tíma gerir þetta sama fólk kröfur um fyrsta flokks þjón­ustu af hálfu Reykja­nes­bæjar, börnin ganga í skóla, fara í sund, eru á leik­skólum, for­eldr­arnir á elli­heim­ilum, fá aðstoð félags­þjón­ust­unnar o.s.frv. á kostnað laun­þega sem greiða útsvar.“

Kjartan segir það þekkta aðferð að fólk í eigin rekstri gefi upp lög­bundin lág­marks­laun og borgi þar með eins lítið útsvar og hægt sé. Svo borgi þetta fólk sér út arð, sem ber fjár­magnstekju­skatt sem fer allur í rík­is­sjóð. „Þess vegna verða sveit­ar­fé­lög af miklum útsvars­tekjum vegna þess­ara leiða sem allt of margir fara.“ Það hafi áður fyrr spunn­ist umræða um skatt­svik þegar álagn­ing­ar­skrár voru lagðar fram.

„Margir kynntu sér hana og létu vita að þeim lík­aði illa hve margir virt­ust vera að svíkja undan skatti því það þýðir auð­vitað bara að hinir, sem borg­uðu sín gjöld, héldu kerf­inu og þjón­ust­unni uppi fyrir allan hóp­inn.“ Und­an­farið hafi umræðan farið lágt og fáir sýni þessu áhuga. Jafnvel séu komnir fram þing­menn sem vilji banna opin­bera birt­ingu. Það finnst honum ekki góð hug­mynd og bendir les­endum á að álagn­ing­ar­skráin liggi frammi á bæj­ar­skrif­stofum bæj­ar­ins.

Bæj­ar­stjór­inn veltir því einnig fyrir sér hvort þörf sé á hug­ar­fars­breyt­ing um land allt hvað varðar þátt­töku bæj­ar­búa í greiðslu sam­eig­in­legs kostn­aðar. „Mark­miðið væri að ná sam­stöðu um að helst öllum þætti sjálf­sagt að bera sinn hluta af kostn­aði vegna sam­eig­in­legrar þjón­ustu í stð þess að kepp­ast um að greiða sem minnst.“

Eitt verst setta bæjarfélagið


Reykja­nes­bær er skuld­settasta sveit­ar­fé­lag lands­ins. Skuldir þess, rúmir 40 millj­arðar króna, eru um 250 pró­sent af reglu­legum tekjum. Samkvæmt sveit­ar­stjórn­ar­lögum sem tóku gildi árið 2012 þá er leyfi­legt skulda­hlut­fall að hámarki 150 pró­sent. Skulda­staða Reykja­nes­bæjar er því bein­leiðis í and­stöðu við lög.

Um síð­ustu ára­mót var fengin heim­ild til að leggja auka­á­lag ofan á hámarks­út­svar hjá bænum, sem þýðir að íbúar Reykja­nes­bæjar þurfa að greiða hærri skatta til sveit­ar­fé­lags­ins en nokk­urt annað sveit­ar­fé­lag á land­inu vegna afleitrar fjár­hags­stöðu. Þeir borga 15,05 pró­sent á meðan að hámarks­út­svar sam­kvæmt lögum er 14,52 pró­sent.

Til við­bótar hefur fast­eigna­skattur verið hækk­aður, fastri yfir­vinnu bæj­ar­starfs­manna sagt upp, föstum öku­tækja­styrkjum þeirra sagt upp, fagsviðum fækkað, öllum fram­kvæmda­stjórum sveit­ar­fé­lags­ins sagt upp.

Ný bæj­ar­yf­ir­völd í Reykja­nesbæ, með Kjartan Má í broddi fylk­ingar, fengu KPMG til að gera óháða úttekt á fjár­málum sveit­ar­fé­lags­ins eftir að þau tóku við stjórn bæj­ar­ins. Á grunni þeirrar úttekar var ný aðgerð­ar­á­ætlun til átta ára kynnt til sög­unnar, en henni er ætlað að ná skulda­hlut­fall­inu niður fyrir 150 pró­sent fyrir árið 2021. Kjarninn skrif­aði ítar­lega um þessi mál nýlega, en þau skrif má lesa hér.

Í fyrsta lagi þarf að auka fram­legð að lág­marki um 900 millj­ónir króna með aðgerðum í rekstri. Það þýðir auknar tekjur, til dæmis í gegnum þjón­ustu­gjöld og hækkun á útsvari, og lækkun rekstr­ar­kostn­aðar, til dæmis með upp­sögnum á starfs­fólki.

Í öðru lagi á að stöðva fjár­flæði frá A-hluta sveit­ar­sjóðs yfir til starf­semi sem til­heyrir B-hluta. Með öðrum orðum á að hætta að nota tekjur sveita­fé­lags­ins, lán­tökur eða eigna­sölur til að borga fyrir þann hluta sem til­heyrir B-hluta sveita­sjóðs. Í þessu felst meðal ann­ars að HS Veitur verði látnar greiða hámarks­arð, um 900 millj­ónir króna á ári.

Í þriðja lagi á að tak­marka fjár­fest­ingar A-hluta sveit­ar­fé­lags­ins við 200 millj­ónir króna á ári þar til fjár­hags­mark­miðum verður náð.

Í fjórða lagi á að mæta auk­inni greiðsl­ur­byrði næstu ára með end­ur­fjár­mögnun skulda og skuld­binda og skoða mögu­leika á frek­ari sölu eigna eða sam­ein­ingu B-hluta stofn­ana. Þær B-hluta stofn­anir sem eru mest byrði á Reykja­nesbæ eru Reykja­nes­höfn og Fast­eignir Reykja­nes­bæjar. Hvorug þeirra getur rekið sig án pen­inga frá A-hluta sveita­sjóðs­ins eins og staðan er í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár