Framsóknarflokkurinn vinsælastur í ríkisstjórn

Tæp átta­tíu pró­sent lands­manna vilja sjá Fram­sókn­ar­flokk­inn í rík­is­stjórn. Karlar vilja flokk­inn frekar í rík­is­stjórn en konur og þá vill eldra fólk flokk­inn frekar í stjórn en það yngra.

Sigurður Ingi Jóhannsson, formaður Framsóknarflokksins.
Sigurður Ingi Jóhanns­son, for­maður Fram­sókn­ar­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Flestir Íslend­ingar vilja að Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn sitji í rík­is­stjórn sam­kvæmt nýjum þjóð­ar­púlsi Gallup, eða 77 pró­sent. RÚV greindi frá í gær.

Þar á eftir koma Vinstri græn með 72 pró­sent en 57 pró­sent vilja að Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn verði í stjórn.

Fram kemur hjá RÚV að færri hafi nefnt stjórn­ar­and­stöðu­flokk­ana fimm. 34 pró­sent vilja Sam­fylk­ing­una í rík­is­stjórn, 28 pró­sent nefndu Pírata, 26 pró­sent Viðreisn, 23 pró­sent Flokk fólks­ins og 8 pró­sent vilja Mið­flokk­inn í rík­is­stjórn.

Samkvæmt þjóð­ar­púls­inum vilja karlar Fram­sókn­ar­flokk­inn frekar í rík­is­stjórn en konur og þá vill eldra fólk flokk­inn frekar í stjórn en það yngra. Þá eru þeir sem hafa hæstar tekjur á fjöl­skyldu lík­leg­astir til þess að vilja hafa Framsókn við völd.

Þegar spurt var hvaða flokka­sam­setn­ingu fólk vildi í rík­is­stjórn­inni vildi yfir þriðj­ungur kjós­enda hafa núver­andi stjórn­ar­flokka áfram. 44 pró­sent vilja aðra sam­setn­ingu rík­is­stjórnar, að því er fram kemur hjá RÚV.

Könnunin var gerð 1. til 12. októ­ber. Heild­ar­úr­takið var 1.629 manns og þátt­töku­hlut­fall var 52,9 pró­sent.

Stjórn­ar­mynd­un­ar­við­ræður standa nú yfir á milli Fram­sókn­ar­flokks­ins, Vinstri grænna og Sjálf­stæð­is­flokks­ins. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra sagði í vik­unni við fjöl­miðla að það væri afar ólík­legt að ný rík­is­stjórn og nýr stjórn­ar­sátt­máli yrði kynntur fyrr en und­ir­bún­ings­kjör­bréfa­nefnd hefði lokið störf­um. Mikil vinna hefur verið hjá nefnd­inni und­an­farið en nefnd­ar­með­limir rann­saka meðal ann­ars end­ur­taln­ingu í Norð­vest­ur­kjör­dæmi. Katrín sagði við­ræður for­manna flokk­anna ganga vel.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2021

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár