Júlíus Vífill til rannsóknar vegna stórfelldra skattsvika og peningaþvættis

Hér­aðs­sak­sókn­ari vill taka skýrslu af Sigurði G. Guð­jóns­syni sem má þess vegna ekki vera verj­andi Júlíusar Vífils.

Júlíus Vífill Ingvarsson, fyrrverandi borgarfulltrúi í Reykjavík.
Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi í Reykja­vík. Mynd: Skjáskot

Júlíus Vífill Ingv­ars­son, fyrr­ver­andi borg­ar­full­trúi Sjálf­stæð­is­flokks­ins, er grun­aður um stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti. Hann er til rann­sóknar hjá emb­ætti Hér­aðs­sak­sókn­ara vegna þessa. RÚV greinir frá þessu á vef sínum í dag.

Mál Júlíusar Vífils komst til umfjöll­unar eftir að gögn úr Panama­skjöl­unum svoköll­uðu var lekið til fjöl­miðla vorið 2016. Skatt­rann­sókn­ar­stjóri kærði Júlíus Vífil í byrjun árs 2017 á þeim grund­velli að Júlíus Vífill hafi ekki gert grein fyrir fjár­munum sínum sem hann átti erlendis á árunum 2010 til 2015.

Systkini Júlíusar og erf­ingjar for­eldra hans hafa sakað hann og bróður hans um að komið ætt­ar­auð for­eldra þeirra undan og geymt hann á aflands­reikn­ingum. Þær upp­hæðir hlaupa lík­lega á mörg hund­ruð millj­ónum króna, sam­kvæmt umfjöllun Kast­ljóss.

Sigurði G. Guð­jóns­syni, lög­manni hefur verið bannað í Hæsta­rétti að vera verj­andi Júlíusar Vífils í mál­inu því Hér­aðs­sak­sókn­ari hygg­ist kalla Sigurð til skýrslu­töku. Sak­sókn­ar­inn úti­lokar heldur ekki að Sigurður fái stöðu sak­born­ings í mál­inu.

Þeir Sigurður og Júlíus heyr­ast ræða fjár­mun­ina á sátta­fundi nokk­urra deilu­að­il­anna á hljóð­upp­töku sem send var nafn­laust inn á borð Skatt­rann­sókn­ar­stjóra. Upptakan er ástæða þess að Hér­aðs­sak­sókn­ari vill taka skýrslu af Sigurði.

Júlíus Vífill og Sigurður vildu ekki tjá sig við frétta­stofu RÚV.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Panamaskjölin

Skýring

Hvernig pen­inga­slóð stjórn­enda Kaup­þings og maka þeirra liggur til Tortólu

Notkun eig­in­kvenna fyrr­ver­andi stjórn­enda Kaup­þings­banka á félögum á aflands­svæð­inu Kypur er enn eitt dæmið um það að þessir aðilar hafi not­ast við slík félög í við­skiptum sínum eftir efna­hags­hrunið 2008. Hreiðar Már Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi for­stjóri Kaup­þings, og eig­in­konu hans tengd­ust til dæmis félögum í Panama­skjöl­unum og árið 2019 var sagt frá Tortóla­fé­lagi sem notað var til að halda utan um eignir á Íslandi sem tengd­ust þeim.

8 mín. lestur

Úttekt

Sæmarks­stjóri ákærður ásamt lög­manni fyrir stór­felld skatt­svik og pen­inga­þvætti

Sigurður Gísli Björns­son, sem í fjölda ára var einn umsvifa­mesti fisk­út­flytj­andi lands­ins, er sak­aður um að hafa stungið rúm­lega millj­arði króna undan sköttum og fært í gegnum falska reiknn­inga og aflands­fé­lög í eigin vasa. Hann er ákærður fyrir stó­felld brot á skatta­lögum, bók­halds­lögum og pen­inga­þvætti. Íslenskur lög­maður sem einnig er ákærður seg­ist sak­laus.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár