Pútín játar plott um innlimun Krímskaga

Vladimír Pútín Rúss­lands­for­seti hefur við­ur­kennt í fyrsta sinn að inn­limun Krím­skaga í Rússland hafi verið skipu­lögð fyr­ir­fram. Upp­haf­lega neit­uðu rúss­nesk stjórn­völd allri aðild að upp­reisn­inni á Krím­skaga.

Pútín ræðir um málið í nýrri heim­ild­ar­mynd sem verður sýnd í rúss­neska rík­is­sjón­varp­inu, á Rossiya-1, en stikla úr mynd­inni var sýnd í gær. Pútín segir þar frá því að hann hafi hitt emb­ætt­is­menn í febr­úar til að ræða hvernig mætti bjarga frá­far­andi for­seta Úkraínu, Viktori Janúkovitsj, frá land­inu. Hann flúði land eftir margra mán­aða mót­mæli í Kíev, höf­uð­borg Úkraínu.

Eftir þann fund seg­ist Pútín hafa sagt við yfir­menn hers­ins og varn­ar­mála­ráðu­neyt­is­ins að Rússum bæri skylda til að hefja vinnu við að skila Krím­skaga aftur til Rúss­lands. Hann segir að fund­ur­inn hafi átt sér stað 23. febr­úar, tæpum mán­uði áður en mjög umdeild atkvæða­greiðsla um inn­limun Krím­skaga í Rússland var haldin. Rússar hafa haldið því fram að inn­limunin hafi aðeins tekið mið af þess­ari atkvæða­greiðslu.

Það var hins vegar ekki fyrr en 27. febr­úar sem vopn­aðir menn tóku yfir þing­húsið í Sim­fer­opol, höf­uð­borg Krím. Þá tók við atburða­rásin sem lauk með atkvæða­greiðslu meðal íbú­anna, en hún var ekki við­ur­kennd alþjóð­lega. Krím varð svo form­lega hluti af Rúss­landi þann 18. mars í fyrra.

Pútín neit­aði því upp­haf­lega að hafa sent her­menn til Krím­skaga en við­ur­kenndi það síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár