Stuðningur við ríkisstjórnina lækkar bara og lækkar

Rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar stýrir þjóð­ar­skút­unni á mesta efna­hags­lega vel­meg­un­ar­skeiði Íslands­sög­unnar. Vin­sældir hennar minnka með hverri könnun og á fimm mán­uðum hefur hún náð dýpri botni en flestar rík­is­stjórnir náðu nokkru sinni.

Ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar tók við 11. janúar 2017.
Rík­is­stjórn Sjálf­stæð­is­flokks, Við­reisnar og Bjartrar fram­tíðar tók við 11. jan­úar 2017. Mynd: stjornarrad.is

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar mæld­ist 30,9 pró­sent í könnun sem MMR gerði 6. til 14. júní síð­ast­lið­inn. Um er að ræða minnsta stuðn­ing sem hún hefur mælst með. Rík­is­stjórnin, sem tók til starfa 11. jan­úar 2017, komst á þennan stað á fimm mán­uðum.

Um er að ræða minni stuðn­ing en rík­is­stjórn Davíðs Odds­sonar var með í miðju fjöl­miðla­laga­mál­inu árið 2004, þetta er minni stuðn­ingur en rík­is­stjórn Geirs H. Haarde var með í des­em­ber 2008, tveimur mán­uðum eftir hrunið og minni en rík­is­stjórn Sigurðar Inga Jóhanns­sonar var með þegar stuðn­ingur við þá skamm­lífu rík­is­stjórn var mældur í fyrsta sinn í lok apríl 2016. Rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar var hins vegar með meiri stuðn­ing í síð­ustu stuðn­ings­mæl­ing­unni sem hún fékk áður en Sig­mundur Davíð sagði af sér í byrjun apríl 2016.

Þetta má lesa úr sögu­legum gögnum um stuðn­ing við rík­is­stjórnir síð­ustu ára og ára­tuga frá Gallup og MMR.

Ríkisstjórnir vanalega vinsælar í byrjun

Rík­is­stjórnir njóta vana­lega mik­ils stuðn­ings þegar þær setj­ast að völdum. Þannig naut rík­is­stjórn Davíðs Odds­sonar, sem í sátu Sjálf­stæð­is­flokkur og Fram­sókn­ar­flokkur, um 60 pró­sent stuðn­ings sam­kvæmt könnun Gallup í jan­úar 2000, um níu mán­uðum eftir Alþing­is­kosn­ing­arnar 1999. Davíð hafði þá verið for­sæt­is­ráð­herra frá árinu 1991 og Sjálf­stæð­is­flokk­ur­inn hafði setið í rík­is­stjórn með Fram­sókn­ar­flokknum frá árinu 1995.

Alþing­is­kosn­ingar fóru næst fram í maí 2003 og þar héldu stjórn­ar­flokk­arnir meiri­hluta sínum. Eftir að ákveðið var að halda stjórn­ar­sam­starf­inu áfram mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina 61 pró­sent í Gallup-könnun. Frá ald­ar­mótum og fram að þing­kosn­ingum 2007 mæld­ist stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina minnst 38 pró­sent í júlí 2004. Þá hafði Ólafur Ragnar Grímsson, þáver­andi for­seti Íslands, nýverið hafnað því að stað­festa umdeilt fjöl­miðla­lög sem Alþingi hafði sam­þykkt, og sam­fé­lagið lék á reiði­skjálfi.

Rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, sem sam­an­stóð af Sjálf­stæð­is­flokki og Sam­fylk­ingu, tók við völdum vorið 2007. Vin­sældir þeirrar rík­is­stjórnar voru for­dæma­lausar og í fyrstu mæl­ingu eftir að hún var mynduð sögð­ust 83 pró­sent lands­manna styðja hana. Síðan kom hrunið og sá stuðn­ingur féll eins og steinn. Samkvæmt Gallup var stuðn­ing­ur­inn kom­inn niður í 26 pró­sent í jan­úar 2009, þegar rík­is­stjórnin hrökkl­að­ist frá völdum í kjöl­far fjölda­mót­mæla. MMR mældi stuðn­ing­inn enn minni, eða 24,2 pró­sent. Vert er að taka fram að kann­anir Gallup sýna vana­lega meiri stuðn­ing við rík­is­stjórnir en kann­anir MMR.

Icesave og Wintris skópu dýpstu dalina

Rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur tók við völdum 1. febr­úar 2009 sem minni­hluta­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna, varin af Fram­sókn­ar­flokknum. Rík­is­stjórn­ar­flokk­unum gekk vel í kosn­ing­unum 2009, fengu hreinan meiri­hluta saman og héldu áfram að starfa saman. Þegar rík­is­stjórn Jóhönnu tók við völdum studdu 56,1 pró­sent lands­manna hana sam­kvæmt könnun MMR.

Hún varð fljót­lega afar óvin­sæl og þar spil­aði eitt mál stærri rullu en nokkur önnur, Icesave. Í októ­ber 2010 stóð bar­áttan um það má sem hæst. Og þá fór stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina niður í 22,6 pró­sent hjá MMR. Það er minnsti stuðn­ingur sem íslensk rík­is­stjórn hefur nokkru sinni mælst með í könn­unum. Þegar rík­is­stjórn Jóhönnu fékk sína síð­ustu mæl­ingu áður en hún missti völdin í kosn­ing­unum 2013 mæld­ist stuðn­ingur hennar 31,5 pró­sent.

Við tók rík­is­stjórn Sig­mundar Davíðs Gunn­laugs­sonar, sem í voru Sjálf­stæð­is­flokkur og Framsókn. Í upp­hafi var stuðn­ingur við hana 59,9 pró­sent. Það tók þá rík­is­stjórn tvö ár að fara fyrir neðan 31 pró­sent í stuðn­ings­mæl­ingum MMR og stuðn­ingur hennar fór ein­ungis tví­vegis fyrir neðan 30 pró­sent. Fyrri skiptið var í júní 2015 (29,4 pró­sent) og það síð­ara var í kjöl­far Wintris-máls­ins, sem varð til þess að Sig­mundur Davíð sagði af sér, en þá fór stuðn­ing­ur­inn niður í 26 pró­sent í könnun MMR.

Rík­is­stjórn flokk­anna tveggja náði að hífa sig aðeins upp í stuðn­ingi eftir að Sigurður Ingi Jóhanns­son tók við sem for­sæt­is­ráð­herra. Stuðn­ingur við rík­is­stjórn Fram­sókn­ar­flokks og Sjálf­stæð­is­flokks end­aði í 35 pró­sentum hjá MMR og 37,3 pró­sent hjá Gallup.

Óánægja á meðal kjósenda stjórnarflokkanna

Þegar stuðn­ingur við rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar, sem sam­an­stóð af Sjálf­stæð­is­flokki, Viðreisn og Bjartri fram­tíð og tók við völdum 11. jan­úar 2017, var fyrst mældur í vik­unum eftir valda­tök­una kom í ljós að hún naut stuðn­ings 35 pró­sent lands­manna í könnun MMR en 43,6 pró­sent hjá Gallup.

Byrj­un­ar­punktur rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar er því sam­bæri­legur enda­punkti síð­ustu rík­is­stjórnar þegar horft er til stuðn­ings. Rík­is­stjórnar sem kol­féll í kosn­ing­unum í októ­ber 2016. Og miklu lægri en vana­legt er hjá nýrri rík­is­stjórn.

Rík­is­stjórnin er líka mjög óvenju­leg á margan máta. Hún er með minni­hluta atkvæða á bak við sig (46,7 pró­sent), það tók marga mán­uði að mynda hana og hún hefur ein­ungis eins manns meiri­hluta. En það vakti óneit­an­lega athygli að rík­is­stjórnin naut mun minni stuðn­ings en kjör­fylgi flokk­anna sem stóðu að henni sagði til um þegar hún hóf störf. Það þýðir að margir kjós­endur þeirra flokka sem að rík­is­stjórn­inni standa voru ekki ánægðir með það sam­starf sem þeir völdu sér eða þann stjórn­ar­sátt­mála sem flokk­arnir þrír komu sér saman um. Það á sér­stak­lega við um kjós­endur Bjartrar fram­tíðar.

Stuðn­ing­ur­inn hefur bara farið nið­urá­við frá því sem liðið hefur frá valda­töku rík­is­stjórn­ar­innar. Í nýj­ustu könnun MMR er stuðn­ing­ur­inn ein­ungis 30,9 pró­sent og hefur aldrei mælst lægri. Hjá Gallup mælist hann 36 pró­sent og þar á það sama við, stuðn­ing­ur­inn hefur aldrei mælst lægri.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár