Starfshópur stjórnvalda mun ræða við orkufyrirtæki um ákvörðun ESA

Starfs­hópur fjög­urra ráðu­neyta hefur verið skip­aður til að und­ir­búa við­brögð við nýlegri ákvörðun Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, ESA, um nýt­ingu nátt­úru­auð­linda í raf­magns­fram­leiðslu. ESA segir að íslensk stjórn­völd þurfi að setja lög sem krefj­ast þess að alltaf sé greitt mark­aðs­verð þegar orku­fyr­ir­tækjum eru veitt rétt­indi til að nýta nátt­úru­auð­lindir í almanna­eigu. ESA kveður einnig á um að íslensk stjórn­völd verði að end­ur­skoða alla gild­andi samn­inga um nýt­ingu nátt­úru­auð­linda til að tryggja að orku­fyr­ir­tæki greiði mark­aðs­verð það sem eftir lifir af gild­is­tíma samn­ing­anna.

Íslensk stjórn­völd hafa verið að móta verk­lag við ákvörðun verðs vegna nýt­ingar nátt­úru­auð­linda, meðal ann­ars vegna raf­orku­fram­leiðslu, á und­an­förnum árum, segir í til­kynn­ingu frá for­sæt­is­ráðu­neyt­inu. Breyt­ing­arnar sem ESA leggur til myndu festa í sessi þær meg­in­reglur og aðferða­fræði sem hefur verið að mót­ast, segir for­sæt­is­ráðu­neytið. Breyt­ing­arnar gætu tryggt „enn betur að verð sem orku­fyr­ir­tæki greiða fyrir aðgang að auð­lindum í opin­berri eigu sé ákveðið á mark­aðs­for­sendum.“

Starfs­hóp­ur­inn mun á næstu vikum ákveða hvort rétt sé að fall­ast á til­mæli eft­ir­lits­stofn­un­ar­innar og und­ir­búa við­brögð. Þá verður leitað eftir við­ræðum við orku­fyr­ir­tæki vegna áður gerðra samn­inga.

Nauðsynlegt til að tryggja samkeppni

ESA segir að ráð­staf­an­irnar sem lagðar eru til séu nauð­syn­legar til að tryggja megi sann­gjarna og virka sam­keppni á íslenska raf­orku­mark­aðn­um. ESA telur nauð­syn­legt að til að tryggja sam­keppni þurfi orku­fyr­ir­tæki að greiða mark­aðs­verð fyrir nýt­ingu nátt­úru­auð­linda. Íslensk stjórn­völd hafi hins vegar í fjöl­mörgum til­vikum veitt orku­fyr­ir­tækjum aðgang að nátt­úru­auð­lindum til að fram­leiða raf­orku úr vatns­afli eða jarð­varma án þess að nokkur lög­gjöf sé til um efni slíkra samn­inga. Það er hvorki skýr laga­skylda til að fara fram á greiðslu mark­aðs­verðs né opin­ber mæli­kvarði á það hvernig ákvarða eigi end­ur­gjald á Ísland­i. 

ESA vill að sett verði lög til að tryggja að öll til­færsla nátt­úru­auð­linda vegna raf­orku­fram­leiðslu fari fram á mark­aðs­for­sendum og að slík kvöð yrði bind­andi fyrir bæði ríki og sveit­ar­stjórn­ir.

„Setja þarf lög sem fela í sér að ávallt sé farið fram á greiðslu mark­aðs­verðs þegar orku­fyr­ir­tækjum eru veitt rétt­indi til að nýta nátturauð­lindir í almanna­eigu. Til að ganga úr skugga um að aðilar njóti jafn­ræðis þurfa íslensk stjórn­völd auk þess að hafa skýra aðferða­fræði um hvernig mark­aðs­verð nátt­úru­auð­linda verður ákvarð­að,” sagði Sven Erik Sved­man, for­seti Eft­ir­lits­stofn­unar EFTA, í frétta­til­kynn­ingu frá stofn­un­inn­i.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Orkumál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár