Bournemouth verður minnsta lið úrvalsdeildar - Á pari við ævintýri eftir H.C. Andersen

Bournemouth er ekki knatt­spyrnu­fé­lag sem margir íslenskir knatt­spyrnu­að­dá­endur vita mikið um. Það mun þó ugg­laust breyt­ast á næstu mán­uðum því félagið mun leika í ensku úrvalds­deild­inni á næstu leik­tíð eftir að hafa unnið Championship-deild­ina í ár. Það hafa nokkur „lítil“ lið náð þeim árangri síðan að enska úrvalds­deildin var sett á lagg­irnar árið 1992 og pen­ingar og erlendir leik­menn hófu að streyma í þessa vin­sæl­ustu knatt­spyrnu­deild ver­aldar. Þau vekja alltaf athygli enda verður alltaf erf­ið­ara og erf­ið­ara fyrir lið frá litlum borgum og bæjum, með lítil fjár­ráð og fámennan stuðn­ings­manna­hóp að keppa við lið sem eru að borga árlegan launa­kostnað þeirra fyrir staka leik­menn sem síðan vart kom­ast á bekk­inn. Á meðal liða sem falla í þennan flokk eru til dæmis Swindon (1993), Burnley (2009 og 2014),Wigan (2005 til 2013), Barnsley (1997), Blackpool (2010), Bradford City (1999) og Reading (2006).

En Bournemouth er lík­lega minnsta liðið sem náð hefur þessum árangri. Það er alla­vega á hreinu að leik­vangur liðs­ins, Goldsands Stadium, verður sá minnsti sem leikið hefur verið á í úrvalds­deild­inni. Hann tekur ein­ungis 11.700 áhorf­endur. Á síð­asta tíma­bili var leik­vang­ur­inn meira að segja ekki alltaf fullur. Meðaltal áhorf­enda var um 10.500 á leik.

[caption id="attachment_28323" align="alignnone" width="1200"] Goldsands Stadium verður sá minnsti sem leikið hefur verið á í ensku úrvalds­deild­inni.[/caption]

„Stórkostlegasta ævintýrið síðan að Hans Christian Andersen skrifaði sitt síðasta“


Næsta tíma­bil verður það fyrsta sem Bournemouth leikur í efstu deild í Englandi í 126 ára sögu félags­ins. Það sem gerir árangur félags­ins enn ótrú­legri er að það hóf tíma­bilið 2008-2009 með 17 stig í mínus í næstu deild ensku deild­ar­keppn­innar eftir að hafa lent í greiðslu­stöðvum vegna fjár­hags­erf­ið­leika. Ef liðið hefði fallið úr neðstu deild á því tíma­bili voru uppi áform um að leggja það ein­fald­lega niður. Það var ekki talið mögu­legt að reka það í utandeild­inni.

Goldsands Stadium verður sá minnsti sem leikið hefur verið á í ensku úrvaldsdeildinni.
Goldsands Stadium verður sá minnsti sem leikið hefur verið á í ensku úrvalds­deild­inni.

Jeff Mostyn, stjórn­ar­for­maður Bournemouth, sagði í við­tali við The Tel­egraph í apríl að félagið hafi þrí­vegis verið sól­ar­hring frá því að verða gjald­þrota á und­an­förnum árum. Það að Bournemouth sé nú á leið í úrvalds­deild­ina sé „stór­kost­leg­asta ævin­týrið síðan að Hans Christian Andersen skrif­aði sitt síð­asta“.

En hvað gerð­ist? Hvernig getur lið í fjár­hags­legum glund­roða, með 17 stig í mínus í neðstu deild, frá litlum bæ á suð­ur­strönd Bret­lands, með engar stór­stjörnur inn­an­borðs, náð þessum mikla árangri ein­ungis sex árum síðar? Svarið liggur fyrst og síð­ast í tveimur mönnum: Maxim Demin og Eddie Howe.

Rússneskur huldumaður sem féll fyrir Bournemouth


Rúss­neski fjár­festir­inn Maxim Denim er ekki þekkt nafn. Og hann virð­ist kunna vel við það. Demin hefur aldrei talað við bresku press­una og fátt er vitað um hvað hann hefur verið að sýsla í líf­inu annað en að hann býr í Sviss.

Sagan segir að fyrrum eig­andi Bournemouth, Eddie Mitchell, hafi byggt hús fyrir Demin. Eftir að þeirri vinnu lauk hafi Mitchell boðið Rússanum á leik hjá Bournemouth og Demin hafi í kjöl­farið fallið kylli­flatur fyrir félag­inu. Hann kom inn sem með­eig­andi árið 2011 og eign­að­ist það að fullu árið 2013. Síðan þá hefur hann lánað Bournemouth 15,5 millj­ónir punda.

[caption id="attachment_28324" align="align­right" width="248"] Maxim Demin.[/caption]

Maxim Demin.
Maxim Demin.

Þeim pen­ingum hefur þó ekki verið varið í neina vit­leysu. Félagið er með einn lægsta launa­kostn­að­inn í Championship deild­inni og hefur ein­ungis keypt tvo leik­menn í sögu sinni sem hafa kostað meira en eina milljón pund. Tap félags­ins á leik­tíð­inni 2013-2014 var um átta millj­ónir punda. Til að setja þá tölu í sam­hengi má rifja upp að QPR, sem komst upp á því tíma­bili, tap­aði um 70 millj­ónum punda fyrir utan eig­enda­lán sem voru afskrifuð. Bournemouth hefur því alltaf haldið sig innan ramma fjár­hags­reglna FIFA sem eiga að jafna stöðu liða í alþjóða­knatt­spyrn­unni sem er troð­full af allskyns „syk­ur­pöbbum“ sem dæla óheyri­legum fjár­hæðum í félög til að reyna að ná árangri á skömmum tíma. Demin er sem­sagt ekki einn þeirra.

Hinn ótrúlegi Eddie Howe


En stóra ástæðan fyrir því að Bournemouth er nú að fara að upp­lifa stóra draum­inn er þjálf­ar­inn Eddie Howe. Hann gekk fyrst til liðs við félagið þegar hann var tíu ára og var gríð­ar­lega vin­sæll leik­maður hjá lið­inu um ára­bil, þegar það barð­ist í neðstu deildum deild­ar­keppn­innar. Hann spil­aði alls 271 leik með lið­inu á þrettán ára ferli. Eina beygjan sem hann tók á þeim tíma var þegar Howe var keyptur til Portsmouth af fyrrum Bournemouth-þjálf­ar­anum Harry Redknapp árið 2002 fyrir 400 þús­und pund. Tvenn alvar­leg hné­meiðsli gerðu það að verkum að Howe lék ein­ungis tvo leiki með Portsmouth á tveimur árum. Árið 2004 var hann lán­aður aftur til Bournemouth og sló aftur í gegn. Félagið átti hins vegar engan pen­ing til að kaupa hann, sem leiddi til þess að stuðn­ings­menn settu á fót söfnun, kölluð „Eddies­hare“ til að skrapa saman nægj­an­legum pen­ing til að fjár­magna kaupin. Á nokkrum dögum söfn­uð­ust 21 þús­und pund og Howe var keyptur „heim“.

Þegar Howe var 29 ára var hann gerður að þjálf­ara vara­liðs­ins en var síðar rek­inn ásamt Kevin Bond, þáver­andi aðal­þjálf­ara liðs­ins, í sept­em­ber 2008. Hann snéri aftur nokkrum vikum síðar sem þjálf­ari ung­linga­liðs félags­ins og tók við sem aðal­þjálf­ari í jan­úar 2009. Þetta var, eins og áður hefur verið greint frá, tíma­bilið sem Bournemouth byrj­aði með 17 stig í mínus.

[caption id="attachment_28322" align="alignnone" width="640"] Eddie Howe kom til Bournemouth þegar hann var tíu ára. Í dag er hann lif­andi goð­sögn hjá félag­inu.[/caption]

Eddie Howe kom til Bournemouth þegar hann var tíu ára. Í dag er hann lifandi goðsögn hjá félaginu.
Eddie Howe kom til Bournemouth þegar hann var tíu ára. Í dag er hann lif­andi goð­sögn hjá félag­inu.

Howe bjarg­aði félag­inu frá falli og kom þeim upp um deild árið 2010. Í jan­úar 2011 réð hann sig sem þjálf­ara Burnley og var þar í rúm tvö og hálft ár. Í októ­ber 2012 sagði hann upp störfum og sagði að „per­sónu­legar ástæður“ væru fyrir brott­hvarf­inu. Hann réð sig strax aftur sem aðal­þjálf­ari Bournemouth. Og kom þeim beint upp í Championship deild­ina á fyrsta tíma­bil­inu eftir end­ur­kom­una. Liðið lenti svo í tíunda sæti á síð­asta tíma­bili og sigr­aði loks deild­ina á því sem nú er að ljúka.

Sóknarbolti, skipulag, tölfræði og hugarfar


Howe, sem er ein­ungis 37 ára gam­all, er í guða­tölu hjá stuðn­ings­mönnum Bournemouth. Hann er sjálfur gall­harður stuðn­ings­maður félags­ins og hefur verið í ára­tugi. Líkt og Bret­arnir segja oft þá étur hann, sefur og andar fyrir félagið.

Howe þykir líka sér­stakur þjálf­ari. Hann leggur mikið upp úr töl­fræði og allar æfingar eru not­aðar til að und­ir­búa næsta leik, með til­liti til hverjum liðið er að mæta. Hann tekur allar æfingar upp á mynd­band og fylgist náið með þróun leik­manna sinna með því að skrá upp­lýs­ingar um þá dag­lega. Á æfing­unum, sem þykja oft á tíðum mjög óhefð­bundnar, setur hann upp allskyns aðstæður sem gætu komið upp í næsta leik. Út frá öllum mögu­legum sjón­ar­hornum. Og þessi aðferð­ar­fræði virð­ist vera að virka afar vel.

Liðið spilar líka ákafan sókn­ar­bolta, sem fellur alltaf vel í kramið hjá stuðn­ings­mönnum. Á liðnu tíma­bili skor­aði það meira en tvö mörk að með­al­tali í leik, var það lið sem var mest allra í deild­inni með bolt­ann (58,37 pró­sent að með­al­tali í hverjum leik) og átti flest skot á markið (253). Bournemouth sat í efstu tveimur sætum deild­ar­innar lengur en nokk­urt annað lið í deild­inni og töp­uðu ein­ungis átta leikjum allt tíma­bilið.

Annað sem sér­fræð­ingar hafa nefnt sem lyk­il­at­riði hjá lið­inu er hug­ar­farið. Þegar Bournemouth lék fimm leiki í röð án sig­urs í febr­úar á þessu ári fóru margir að afskrifa mögu­leika þeirra á að fara upp. Liðið brást við með því að vinna átta og gera þrjú jafn­tefli í næstu ell­efu leikjum. Það brotnar því ekki undir pressu.

Að mestu óþekktir og ódýrir leikmenn


Það eru ekki margir þekktir leik­menn í Bournemouth lið­inu. Þeir þekkt­ustu eru lík­lega Kenwyne Jones, sem lék áður með Southampton og Cardiff, og pólski mark­vörð­ur­inn Artur Boruc, sem lék lengi með Celtic, Fior­ent­ina og Southampton. Jones er þó ekki einu sinni aðal­fram­herji liðs­ins. Í fram­herja­stöð­unum eru oft­ast Callum Wilson, Frakkinn Yann Kermorgant og Brett Pittman, sem kemur oft­ast inn af bekknum. Á meðal ann­arra lyk­il­manna eru Simon Francis, Matt Ritchie, Charlie Daniels, Marc Pugh, Tommy Elphick, Steve Cook, Andrew Surman, Dan Gosling og Harry Arter. Ekki stærstu nöfnin í enska bolt­anum.

[caption id="attachment_28321" align="align­right" width="300"] Kenwyne Jones er lík­lega þekkt­asti leimaður liðs­ins í dag.[/caption]

Kenwyne Jones er líklega þekktasti leimaður liðsins í dag.
Kenwyne Jones er lík­lega þekkt­asti leimaður liðs­ins í dag.

Ljóst er að Bournemouth mun þurfa að fjár­festa tölu­vert fyrir átök næsta árs, og þeir tugir millj­óna punda sem félagið fær fyrir að leika í efstu deild munu nýt­ast vel í þeirri bar­áttu. Í bresku press­unni í dag er félagið meðal ann­ars orðað við Búlgar­ann óvið­jafn­an­lega Dimitar Berbatov, sem er orð­inn 34 ára gam­all.

Hvernig sem fer og hverjir sem keyptir verða þá er ljóst að hug­mynda­fræði Howe verður áfram ráð­andi hjá lið­inu. Og hið mikla ævin­týri, sem ein­ungis hug­ar­flug H.C. Andersen á að jafn­ast við, heldur áfram.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár