Arion lækkar vexti á íbúðalánum til að mæta Lífeyrissjóði verslunarmanna

Arion banki hefur lækkað vexti á íbúða­lánum, í kjöl­far þess að Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna ákvað að lækka vexti hjá sér og hækka láns­hlut­fallið.

Arion banki lækk­aði í gær vext­ina á verð­tryggðum íbúða­lánum með breyti­legum vöxtum og föstum vöxtum til fimm ára, og breyt­ing­arnar taka gildi 25. októ­ber. Breyti­legu vext­irnir verða 3,65 pró­sent en voru 3,85. Föstu vext­irnir fara úr 3,90 pró­sent í 3,80 pró­sent.

Til sam­an­burðar býður líf­eyr­is­sjóð­ur­inn 3,35 pró­senta breyti­lega vexti og 3,6 pró­sent fasta vexti.

Þá hefur Arion banki lækkað fasta vexti á óverð­tryggðum lánum til þriggja og fimm ára, vextir til þriggja ára fara úr 7,40 pró­sentum í 7,15 og til fimm ára úr 7,50 pró­sentum í 7,05. Hins vegar hækka óverð­tryggðir breyti­legir vextir úr 6,60 í 7,05 pró­sent.

Hjá Líf­eyr­is­sjóði versl­un­ar­manna er boðið upp á óverð­tryggð lán með föstum vöxtum til þriggja ára, og vext­irnir eru nú 6,97 pró­sent.

Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna til­kynnti um það í síð­ustu viku að vextir hefðu verið lækk­aðir, lán­töku­gjald lækkað í 0,75 pró­sent og að láns­hlut­fallið hefði verið hækkað í 75 pró­sent. Þetta eru ein­hver mestu tíð­indi á hús­næð­is­mark­aði í langan tíma. Láns­hlut­fallið hjá bönk­unum er enda 70 pró­sent, en þeir bjóða svo dýr­ari við­bót­ar­lán, og vext­irnir sem líf­eyr­is­sjóð­ur­inn býður eru betri en hjá bönk­unum.

Kjarninn fjall­aði ítar­lega um ný lána­kjör Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna í frétta­skýr­ingu í lok síð­ustu viku. Þar var meðal ann­ars leitað við­bragða hjá bönk­unum og Haraldur Guðni Eiðsson, upp­lýs­inga­full­trúi Arion banka, sagði þá að ákvörðun Líf­eyr­is­sjóðs versl­un­ar­manna gæfi til­efni til að skoða það gaum­gæfi­lega að lækka vexti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár