Fjölgar verulega í hópi atvinnulausra án bótaréttar sem þurfa fjárhagsaðstoð

Ljóst er að hópur fólks býr við við­var­andi fátækt á Íslandi, segir upp­lýs­inga­full­trúi vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar. Fleiri þurftu á fjár­hags­að­stoð að halda fyrstu tíu mán­uði árs­ins en allt árið í fyrra.

Töluvert fleiri þurftu á fjár­hags­að­stoð Reykja­vík­ur­borgar til fram­færslu að halda á fyrstu tíu mán­uðum árs­ins en allt árið í fyrra. Í júlí einum saman fengu yfir 1.400 manns slíka aðstoð en fjöld­inn hefur ekki verið meiri í þeim mán­uði í fimm ár. Fjórð­ungi fleiri fengu fjár­hags­að­stoð í októ­ber en á sama tíma árið 2019. „Á síð­ustu árum hefur þeim fjölgað sem sækja sér fjár­hags­að­stoð til fram­færslu og hefur þung­inn verið mik­ill á árinu 2020,“ segir Hólm­fríður Helga Sig­urð­ar­dóttir, upp­lýs­inga­full­trúi vel­ferð­ar­sviðs Reykja­vík­ur­borgar, við Kjarnann.

[adspot]

Vel­ferð­ar­svið veitir fjár­hags­að­stoð til fram­færslu ein­stak­linga og fjöl­skyldna sem ekki geta séð sér og sínum far­borða án aðstoðar. Fjár­hags­að­stoð er að jafn­aði veitt sem styrkur og í tengslum við önnur úrræði vel­ferð­ar­sviðs, eins og ráð­gjöf og leið­bein­ingar. Grunn­fjár­hæð fjár­hags­að­stoðar til ein­stak­lings 18 ára eða eldri getur numið allt að 207.709 krónum á mán­uði.

Í gangi er vinna við að end­ur­skoða reglur um fjár­hags­að­stoð og verið er að móta aðgerðir til að sporna við sárafátækt hjá börnum og fjöl­skyldum þeirra.

[links]Í heild hafa 2.349 ein­stak­lingar þegar fengið fjár­hags­að­stoð á árinu 2020. Tveir mán­uðir eiga eftir að bæt­ast við svo sú tala mun hækka. Alls fengu 2.195 ein­stak­lingar fjár­hags­að­stoð í fyrra og 2.011 ein­stak­lingar árið 2018.

„Aukn­ingin á fjölda þeirra sem sækja um fjár­hags­að­stoð gefur til kynna að ástandið nú sé mörgum erfitt,“ segir Hólm­fríður. „Mörg þeirra sem misst hafa vinn­una eiga ekki rétt á atvinnu­leys­is­bótum. Það er sú aukn­ing sem við finnum einna mest fyrir á vel­ferð­ar­sviði.“

Flestir á leigumarkaði

Í maí fékk 261 for­eldri með sam­tals 441 barn á fram­færi fjár­hags­að­stoð til fram­færslu. Í sama mán­uði í fyrra voru for­eldr­arnir 208 tals­ins og börn á þeirra fram­færslu 338. Lang­flestar fjöl­skyld­urnar búa í íbúð á almennu leigu­mark­aði eða hjá Félags­bú­stöðum. Aðeins tveir for­eldrar sem fengu fjár­hags­að­stoð í maí síð­ast­liðnum bjuggu í eigin hús­næði. Í maí höfðu 75 for­eldrar með 130 börn fengið fjár­hags­að­stoð í tólf mán­uði.

Ef ein­stak­lingur þarf á aðstoð sveit­ar­fé­lags að halda í tólf mán­uði eða lengur er litið svo á að hætta sé á við­var­andi fátækt. Í októ­ber höfðu 462 ein­stak­lingar fengið fjár­hags­að­stoð í tólf mán­uði, „svo ljóst er að hópur fólks býr við við­var­andi fátækt á Íslandi,“ segir Hólm­fríður.

Eiga ekki rétt á atvinnuleysisbótum

Stærsti hóp­ur­inn sem fær fjár­hags­að­stoð er nú sem fyrr ein­hleypir karl­menn. Á tíma­bil­inu jan­úar til októ­ber fengu 1.248 ein­hleypir karlar fjár­hags­að­stoð en þeir voru 1.066 á sama tíma­bili í fyrra.

Algeng­asta ástæðan fyrir aðstoð­inni er að við­kom­andi er óvinnu­fær en Hólm­fríður segir helstu breyt­ing­arnar að und­an­förnu þær að þeim sem eru atvinnu­laus en hafa ekki bóta­rétt hefur fjölgað til muna. Sá hópur er nú orð­inn jafn­stór þeim sem eru óvinnu­fær eða um 35 pró­sent af heild­ar­fjölda þeirra sem fá aðstoð­ina. Þrjár ástæður geta verið fyrir því að fólk eigi ekki rétt á bótum. Í fyrsta lagi gæti fólk ekki hafa áunnið sér rétt á atvinnu­leys­is­bótum vegna lít­illar atvinnu­þátt­töku. Í öðru lagi gæti fólk ekki átt rétt á bótum þar sem það er óvinnu­fært/sjúk­lingar og skilar vott­orði um það. Það gæti hafa sótt um örorku­bætur en fengið synjun og leitað því til borg­ar­innar. Í þriðja lagi gæti atvinnu­leys­is­bóta­réttur verið full­nýttur.

Fólk á almennt ekki rétt á atvinnu­leys­is­bótum nema að hafa starfað í sam­fellt í 24 mán­uði á inn­lendum vinnu­mark­aði.

Útlendingar illa úti

Þá fer hlut­fall fólks með erlent rík­is­fang einnig hækk­andi og helst þetta í hendur við fjölgun í hópi þeirra sem ekki eiga rétt á atvinnu­leys­is­bótum. Í sept­em­ber 2019 fór hlut­fall fólks með erlent rík­is­fang sem fékk fjár­hags­að­stoð vel­ferð­ar­sviðs í fyrsta sinn yfir 30 pró­sent. Nú eru 40 pró­sent þeirra sem fá fjár­hags­að­stoð með erlent rík­is­fang.

Efna­hags­þreng­ing­arnar sem orðið hafa vegna heims­far­ald­urs­ins hafa komið harka­lega niður á útlend­ingum sem hingað voru komnir til að vinna, m.a. í ferða­þjón­ustu og bygg­ing­ar­iðn­aði.

Heild­ar­kostn­aður árs­ins 2018 vegna fjár­hags­að­stoðar vel­ferð­ar­sviðs var tæpur 2,1 millj­arður. Á árinu 2019 nam sú upp­hæð 2,37 millj­örðum og það sem af er árinu (jan­úar til októ­ber) nemur kostn­að­ur­inn 2,81 millj­arði. Gert er ráð fyrir að kostn­að­ur­inn á árinu 2020 í heild verði rúmir 3,5 millj­arðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kórónuveiran

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár