Tíu staðreyndir um hertar aðgerðir yfirvalda

Tveggja metra reglan verður skylda og það skal nota and­lits­grímur ef hana er ekki hægt að tryggja milli ótengdra ein­stak­linga. Frá og með hádegi á morgun mega ekki fleiri en 100 koma saman.

Frá og með hádegi á morgun þarf fólk sem notar strætó að bera grímu fyrir vitum.
Frá og með hádegi á morgun þarf fólk sem notar strætó að bera grímu fyrir vitum. Mynd: Pexels

1. Af hverju er verið að herða aðgerðir á ný?

Und­an­farna 10-14 daga hafa komið upp veik­indi vegna kór­ónu­veiru meðal ein­stak­linga sem ekki hafa ferð­ast erlendis frá sjálfir og sem ekki hafa tengsl við inn­flutt til­felli hér á landi í fyrsta sinn frá því að far­aldur sem gekk hér í vor leið undir lok. Fjöldi smita fer vax­andi og eru nú a.m.k. tvö hópsmit komin fram þar sem hluti smit­aðra hefur ekki klár far­alds­fræði­leg tengsl við aðra í hópnum.

2. Hvernig hefur faraldurinn þróast á þessum 10-14 dögum?

Í gær greindust tíu ný virk smit af kór­ónu­veirunni og því eru í dag 39 manns með COVID-19 og í ein­angrun. Af þeim hafa 28 smit­ast hér á landi. Einn sjúk­lingur hefur verið lagður inn á Land­spít­al­ann vegna sjúk­dóms­ins. Það er í fyrsta skipti frá því í maí. 215 eru í sótt­kví en smitrakn­ingu er ekki lokið og því við­búið að það fjölgi í þeim hópi.

3. Hvenær voru síðast svona margir veikir af COVID-19 á landinu?

Þann 4. maí voru virk smit 37. Þeim fækk­aði hratt næstu dag­ana á eftir. Frá því fyrsta smitið greind­ist 28. febr­úar hafa 1.872 fengið sjúk­dóm­inn hér á landi.

[adspot]

4. Hve lengi munu hinar hertu aðgerðir vara?

Í ljósi stöð­unnar mælti sótt­varna­læknir, í minn­is­blaði sem hann sendi heil­brigð­is­ráð­herra, með ýmsum ráð­stöf­unum til efl­ingar sótt­varna. Heil­brigð­is­ráð­herra hefur fall­ist á þær til­lögur og taka þær gildi um hádegi á morgun, föstu­dag­inn 31. Júlí og gilda til 13. ágúst eða í tvær vikur.

5. Hvað felst í hinum hertu aðgerðum hér innanlands?

Tak­mörkun á fjölda sem kemur saman mið­ast við 100 ein­stak­linga í stað 500. Börn fædd 2005 eða síðar eru und­an­skilin.

Hvar sem fólk kemur saman og í allri starf­semi verði við­höfð sú regla að hafa a.m.k. 2 metra á milli ein­stak­linga.

Þar sem ekki er hægt að tryggja 2 metra fjar­lægð milli ótengdra ein­stak­linga er kraf­ist notk­unar and­lits­grímu.

Vinnu­staðir, opin­berar bygg­ingar, versl­anir og þjón­ustu­fyr­ir­tæki þurfa að tryggja að ekki séu fleiri en 100 manns í sama rými og að í minni rýmum séu ekki fleiri en svo að hægt sé að tryggja 2 metra fjar­lægð milli fólks.

Sund­laugar og veit­inga­staðir tryggi að gestir geti haft 2 metra bil á milli sín í öllum rýmum með fjölda­tak­mörkun í sam­ræmi við stærð hvers rýmis.

Sótt­varna­læknir leggur til að söfn, skemmti­staðir og aðrir opin­berir staðir geri hlé á starf­semi sé ekki hægt að tryggja að farið sé eftir fjölda­tak­mörkun eða að bil milli ótengdra aðila sé yfir 2 metrum.

6. Hvað með aðgerðir á landamærum?

Sótt­varna­læknir mælir með að tvö­föld sýna­taka verði útvíkkuð til allra sem hingað koma frá áhættu­svæðum og dvelja hér 10 daga eða lengur með ráð­stöf­unum í sam­ræmi við það sem nefnt hefur verið heim­komusmit­gát þar til nei­kvæð nið­ur­staða fæst úr seinni sýna­töku.

Ef þessi ráð­stöfun ber ekki árangur og inn­lend smit koma upp tengd komu­far­þegum þrátt fyrir beit­ingu ofan­greindra ráð­staf­ana þarf hugs­an­lega að efla aðgerðir á landa­mærum enn frekar.

7. Hvað með sjúkrahús og öldrunarheimili?

Land­spít­ali hefur nú verið færður af óvissu­stigi á hættu­stig vegna far­ald­urs COVID-19. Við­bragðs­á­ætlun Land­spít­ala vegna far­sótta hefur því verið virkjuð og funda við­bragðs­stjórn og far­sótta­nefnd dag­lega.

Dvalar- og hjúkr­un­ar­heim­ilið Grund áréttar í dag vegna nýj­ustu frétta að ekki nema 1-2 komi í heim­sókn til hvers heim­il­is­manns. Á Hrafn­istu­heim­il­unum má aðeins einn aðstand­andi heim­sækja hvern íbúa hverju sinni.

8. Hver hafa viðbrögðin verið?

Þegar hefur mörgum hátíðum sem til stóð að færu fram um helg­ina verið aflýst. Má þar nefna Sæludaga í Vatna­skógi, Eina með öllu á Akureyri og Skjald­borg­ar­há­tíð­inni á Pat­reks­firði. Þar sem aðeins mega koma saman 100 manns og Víðir Reyn­is­son segir að nú verði að hætta að finna leiðir fram hjá því, t.d. með sótt­varna­hólfum, má gera ráð fyrir að all­flestum þeim skipu­lögðu við­burðum sem fram áttu að fara um helg­ina hafi verið slaufað.

9. Á hvaða viðbúnaðarstigi almannavarna erum við?

Ennþá er við­bún­aður almanna­varna á hættu­stigi en á blaða­manna­fundi í Safna­hús­inu í dag kom fram að það kunni að breyt­ast síðar í dag. Það sem kemur til greina er að hækka við­bún­að­inn aftur upp á neyð­ar­stig.

10. Hvað fellst í neyðarstigi?

Neyð­ar­stig ein­kenn­ist af atburði sem valdið hefur slysum á fólki og/eða tjóni á mann­virkjum. Verkefni á þessu stigi ein­kenn­ast af taf­ar­lausum aðgerðum til lífs­bjarg­andi aðstoðar og við­leitni til að afstýra fleiri slysum og varna frekara tjóni. Um neyð­ar­stig er m.a. að ræða þegar slys eða ham­farir hafa orðið eða þegar heil­brigð­is­ör­yggi manna er ógnað svo sem vegna far­sótta.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár