Bóluefni virðast virka vel gegn Delta-afbrigðinu

Nið­ur­stöður nokk­urra rann­sókna á virkni bólu­efna gegn hinu alræmda Delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar eru allar á sama veg: Þau virka. Hversu vel er þó aðeins á reiki enda snúið að rann­saka virkni bólu­efna eftir að þau koma á markað.

Bóluefnin virðast, samkvæmt fyrstu rannsóknum, veita vörn gegn Delta-afbrigðinu.
Bólu­efnin virð­ast, sam­kvæmt fyrstu rann­sóknum, veita vörn gegn Delta-afbrigð­inu. Mynd: EPA

Delta-afbrigði kór­ónu­veirunnar hefur greinst í um 100 löndum. Það hefur síð­ustu vikur og mán­uði skotið sér niður af krafti í nokkrum þeirra og þar sem það er meira smit­andi en önnur hefur það á skömmum tíma náð yfir­hönd­inni. Talið er að með haustinu verði það orðið alls­ráð­andi í Evrópu.

Frá því að afbrigðið, sem fyrst var kennt við Indland, skaut upp koll­inum, hafa spurn­ingar vaknað um virkni bólu­efna gegn því þar sem bólu­efnin sem eru á mark­aði í dag eru þróuð út frá fyrri afbrigðum. Og svörin eru farin að hlað­ast inn. En þau eru ekki sam­hljóma.

[adspot]

Nið­ur­staða breskrar rann­sóknar sem gerð var í maí var sú að tveir skammtar af bólu­efni Pfizer-BioNtech veittu 88 pró­sent vörn gegn ein­kennum COVID-19 af völdum Delta-afbrigð­is­ins.

Í skoskri rann­sókn, sem birt var í júní, var nið­ur­staðan sú að þetta sama bólu­efni veitti 79 pró­sent vörn gegn afbrigð­inu. Í síð­ustu viku birtu kanadískir vís­inda­menn svo sínar nið­ur­stöður sem voru þær að virkni bólu­efn­is­ins gegn afbrigð­inu væri 87 pró­sent.

[links]Í þess­ari viku kom svo enn ein rann­sóknin og sam­kvæmt heil­brigð­is­ráðu­neyti Ísraels veitti bólu­efni Pfizer aðeins 67 pró­sent vörn gegn veik­indum af völdum allra afbrigða kór­ónu­veirunnar. Með sömu aðferðum höfðu ísra­elskir vís­inda­menn kom­ist að því í maí að vörnin væri 95 pró­sent. En það var áður en Delta-afbrigðið hóf að dreifa sér um landið.

Mismunur í nið­ur­stöðum rann­sókn­anna er kannski rugl­andi en hann er engu að síður nokkuð eðli­legur.

Nokkur púsl

„Við verðum að púsla þessum rann­sóknum öllum saman og ekki horfa of mikið á eina nið­ur­stöðu,“ hefur New York Times eftir líf­töl­fræð­ingnum Natalie Dean. Hún bendir á að í klínískum rann­sóknum sé til­tölu­lega auð­velt að mæla virkni bólu­efna. Í þeim taka þús­undir sjálf­boða­liða þátt og fá þeir ýmist bólu­efni eða lyf­leysu. Ef hóp­ur­inn sem fær bólu­efni veik­ist síður geti vís­inda­menn með nokkru öryggi sagt að bólu­efnið verji þá gegn sjúk­dómnum.

En um leið og bólu­efni eru komin í „raun­heima“ – hafa verið gefin almenn­ingi – er mun erf­ið­ara að mæla virkni þeirra því vís­inda­menn hafa misst stjórn á því hverjir fá efnið og hverjir ekki. Þar sem bólu­efni hafa verið gefin fólki eftir kúnst­ar­innar reglum, miðað við aldur og und­ir­liggj­andi sjúk­dóma t.d., er flókið að bera óbólu­setta saman við bólu­setta. Þessir hópar eru orðnir ansi ólíkir.

[adspot]

Því þurfa vís­inda­menn að velja sam­an­burð­ar­hópa mjög vand­lega og því eru rann­sóknir sem þessar oft bornar uppi af fáum ein­stak­lingum. „Þetta krefst gríð­ar­legrar vinnu,“ hefur New York Times eftir far­alds­fræð­ingnum Marc Lipsitch.

Nið­ur­stöður allra þess­ara rann­sókna og fleiri sem gerðar hafa verið á öðrum bólu­efnum, eru á þá leið að þau virki almennt gegn hinu skæða afbrigði og komi í veg fyrir alvar­leg veik­indi og þar með sjúkra­húsinn­lagnir.

Frekari rann­sókna og yfir lengri tíma er þörf til að fá enn skýr­ari mynd á virkni bólu­efn­anna. Einnig þarf að fram­kvæma rann­sókn­irnar í fleiri löndum.

Tæplega 90 pró­sent Íslend­inga eldri en sextán ára hafa fengið að minnsta kosti annan skammt­inn af bólu­efni eða um 70 pró­sent þjóð­ar­innar. Bólu­setn­inga­hlut­fallið hér er með því hæsta sem fyr­ir­finnst í heim­inum og er vel yfir því sem gengur og ger­ist ann­ars staðar í Evrópu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár