Grikkir sendu rangt skjal til lánardrottna - ómögulegt að ná samkomulagi í dag

Fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna, evru­hóp­ur­inn svo­kall­aði, eru nú að hefja fund um fram­tíð Grikk­lands. Mikillar bjart­sýni gætti í morgun um að sam­komu­lag um áfram­hald­andi neyð­ar­lán til þeirra tæk­ist í dag, en fjár­mála­ráð­herrar evru­ríkj­anna hafa dempað þær vænt­ingar veru­lega með ummælum sínum á leið inn á fund­inn.

Dagurinn í dag er dagur hinna fjöl­mörgu funda. Í morgun fund­aði stjórn Seðla­banka Evrópu um stöð­una í Grikk­landi, svo fund­aði Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, með Christine Lagarde, fram­kvæmda­stjóra AGS, Mario Draghi, banka­stjóra Seðla­banka Evrópu, Jean-Claude Juncker, for­seta fram­kvæmda­stjórnar ESB og Jeroen Dijs­sel­bloem, for­seta evru­hóps­ins. Þau ræddu um nýjar til­lögur að umbótum sem Grikkir lögðu fram seint í gær­kvöldi. Þessum til­lögum var almennt vel tekið að sögn fjöl­miðla og þær sagðar vera í átt­ina að því sem lán­ar­drottnar vilja. Svo hefur komið í ljós að Grikkir sendu frá sér vit­laust skjal og réttu umbóta­til­lög­urnar komu mjög seint fram. Raunar segir Wolfgang Schäuble, fjár­mála­ráð­herra Þýska­lands, að til­lög­urnar séu ekk­ert breyttar frá því sem var fyrir helg­ina. Án almenni­legra til­lagna frá Grikkjum verði ekk­ert hægt að gera.

Alex­ander Stubb, fjár­mála­ráð­herra Finn­lands, var einn fyrsti ráð­herr­ann sem tal­aði við fjöl­miðla á leið sinni inn á fund evru­hóps­ins, en hann sagð­ist hafa „mjög litlar vænt­ingar“ til dags­ins í dag. Undir það tók Michael Noonan, fjár­mála­ráð­herra Írlands. Hann sagði að rugl­ing­ur­inn hjá Grikkjum, að senda fyrst vit­laust umbóta­skjal til lán­ar­drottna sinna, hafi valdið því að evru­hóp­ur­inn hafi ekki getað und­ir­búið fund sinn vel. Því hefði hann mjög litlar vænt­ingar til fund­ar­ins. „Þetta segir mikið um ástandið í Aþenu en ekk­ert um ástandið ann­ars staðar í Evrópu,“ sagði hann um þessi mis­tök Grikkja.

[caption id="attachment_32157" align="alignnone" width="480"] Það fór vel á með Alexis Tsipras og Jean-Claude Juncker fyrir fund þeirra í Brussel í morgun.[/caption]

Síðasti fundur dags­ins er svo í kvöld, klukkan fimm að íslenskum tíma, en þá munu leið­togar allra Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna halda neyð­ar­fund.

Vegna allra þess­ara fund­ar­halda voru uppi vonir um að sam­komu­lagi um áfram­hald­andi neyð­ar­lán til Grikkja næð­ist í dag, en ýmsir leið­togar hafa dempað þær vonir í sam­tölum við fjöl­miðla í morgun. Angela Merkel Þýska­landskansl­ari sagði við þýska fjöl­miðla í morgun að enn væri nokk­urra daga vinna eftir áður en hægt yrði að taka ákvarð­anir um fram­haldið. Jean-Claude Juncker sagði áður en funda­höldin í dag hófust að búið væri að ná fram­förum yfir helg­ina en „við erum ekki komin á áfanga­stað enn. Ég veit ekki hvort við náum sam­komu­lagi í dag.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár