Vilja að Arion banki greiði hluthöfum tugi milljarða króna

Líf­eyr­is­sjóðir hafa til 12. febr­úar til að svara hvort þeir ætli sér að kaupa í Arion banka eða ekki. Þann dag verður hald­inn hlut­hafa­fundur í bank­anum og ákveðið hvort greiða eigi út 25 millj­arða í arð og kaupa eigin bréf fyrir allt að 19 millj­arða.

Stjórn Arion banka leggur til að bank­inn greiði 25 millj­arða króna í arð vegna síð­asta árs. Arð­greiðslan er skil­yrt því að Kaupþing ehf., stærsti eig­andi Arion banka, muni ná að selja að minnsta kosti tvö pró­sent af eign sinni í bank­anum fyrir 15. apríl næst­kom­andi. Auk þess verður lögð fram til­laga um að bank­inn fái heim­ild til að kaupa tíu pró­sent af eigin bréfum fyrir allt að 18,8 millj­arða króna af hlut­höfum sínum. Sú heim­ild á líka að vera í gildi til 15. apríl.Frá þessu er greint í til­kynn­ingu til Kaup­hallar.

[links]Tillagan verður tekin fyrir á hlut­hafa­fundi bank­ans sem fram fer 12. febr­úar næst­kom­andi. Þá rennur einnig út frestur líf­eyr­is­sjóða sem boðið hefur verið að kaupa hlut í Arion banka. Heim­ildir Kjarnans herma að ólík­legt sé að tveir stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins, Líf­eyr­is­sjóður starfs­manna rík­is­ins (LSR) og Líf­eyr­is­sjóður versl­un­ar­manna, muni kaupa í bank­anum á þessum tíma­punkti. Sjóð­irnir voru beðnir um að gefa til kynna hvort það væri lík­legt fyrir lok dags 2. febr­úar síð­ast­lið­ins, sem var á föstu­dag. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans voru við­brögðin ekki jákvæð.

Kaupþing er stærsti eig­andi Arion banka með um 57 pró­sent hlut. Vog­un­­­­ar­­­­sjóð­irn­ir Taconic Capi­tal, Och-Ziff CapitalM­ana­gement, Attestor Capi­tal og fjár­­­­­­­fest­inga­­­­bank­inn Gold­man Sachs eiga sam­an­lagt 29,59 pró­­­­­sent hlut í bank­anum og íslenska ríkið á 13 pró­sent hlut.

Allt á hreyfingu næstu vikurnar

Kjarninn greindi frá því um miðjan jan­úar að ráð­gjafar frá Kviku banka, sem ráðnir voru af Kaup­þingi til að aðstoða við söl­una á Arion banka í lok síð­asta árs, hefðu haldið kynn­ingar fyrir nokkra íslenska líf­eyr­is­sjóði með það fyrir augum að fá þá til að kaupa um fimm pró­sent hlut í bank­anum hið minnsta áður en að hluta­fjár­út­boð verður hald­ið. Á kynn­ing­unum voru sjóð­irnir hvattir til að kaupa hlut í bank­anum áður en að árs­upp­gjör hans verður gert opin­bert. Það upp­gjör mun birt­ast í síð­asta lagi um miðjan febr­úar.

[adspot]Sam­kvæmt upp­lýs­ingum Kjarn­ans verður í kjöl­farið farið á fullt í að skrá Arion banka á markað og selja eft­ir­stand­andi hluti í honum í hluta­fjár­út­boði. Reynt verði að klára skrán­ing­una í mars en að hún verði að fara fram í síð­asta lagi í maí. Kaup­þing hefur út árið 2018 til að selja hlut sinn í Arion banka og for­svars­menn félags­ins vilja ekki draga skrán­ingu of nálægt þeim tíma­mörk­um.

Geta fengið háar bón­us­greiðslur tak­ist að selja allar eignir

Stefnt hefur verið að sölu á Arion banka í tölu­vert langan tíma. Kaup­þing ehf., eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­bús hins fallna banka, hélt á 87 pró­sent hlut í Arion banka eftir að gengið hafði verið frá upp­gjöri milli þeirra og rík­is­ins í byrjun árs 2016. Og ríkið hélt áfram á 13 pró­sent hlut.

Í sam­komu­lag­inu við kröfu­haf­anna stóð líka að íslenska ríkið ætti for­kaups­rétt á hlutum í Arion banka ef bank­inn yrði seldur fyrir virði sem væri 80 pró­­sent eða minna af bók­­færðu eigin fé. Sömu­leiðis getur ríkið geti leyst Arion banka til sín ef ekki tæk­ist að selja hann fyrir árs­lok 2018.

Í ágúst 2016 var greint frá því að um 20 starfs­menn Kaup­þings gætu fengið allt að 1,5 millj­arða króna í bón­us­greiðslur ef mark­mið um hámörkun á virði óseldra eigna myndi nást. Þessar bón­us­greiðslur ættu að greið­ast út eigi síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eignin á þeim tíma var 87 pró­sent hlutur Kaup­þings í Arion banka. Og sú eign er enn að hluta óseld.

Sam­kvæmt upp­lýs­ingum frá Kaup­þingi þá verða bón­us­greiðsl­urnar að óbreyttu greiddar út fyrir lok apr­íl. Þau við­skipti sem áttu sér stað með hluti í Arion banka í fyrra hafa áhrif á umfang þeirra en fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð á eft­ir­stand­andi 57,4 pró­sent hlut Kaup­þings mun ekki gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár