Vilja selja lífeyrissjóðum í Arion innan mánaðar – bónusar greiddir út í apríl

Ráð­gjafar Kaup­þings reyna nú að fá íslenska líf­eyr­is­sjóði til að kaupa hlut í Arion banka. Reynt verður að skrá bank­ann á markað í vor. Starfs­menn Kaup­þings fá á næstu mán­uðum háa bónusa greidda fyrir hámörkun á virði eigna félags­ins.

Ráð­gjafar frá Kviku banka, sem ráðnir voru af Kaup­þingi ehf. til aðstoða við söl­una á Arion banka í des­em­ber síð­ast­liðnum, héldu kynn­ingar fyrir nokkra íslenska líf­eyr­is­sjóði í lok síð­ustu viku með það fyrir augum að fá þá til að kaupa um fimm pró­sent hlut í bank­anum hið minnsta áður en að hluta­fjár­út­boð verður haldið. Á kynn­ing­unum voru sjóð­irnir hvattir til að kaupa hlut í bank­anum áður en að árs­upp­gjör hans verður gert opin­bert.

[links]Það upp­gjör mun birt­ast í síð­asta lagi um miðjan febr­úar, eða eftir um mánuð. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans verður í kjöl­farið farið á fullt í að skrá Arion banka á markað og selja eft­ir­stand­andi hluti í honum í hluta­fjár­út­boði. Reynt verði að klára skrán­ing­una í mars en að hún verði að fara fram í síð­asta lagi í maí. Kaupþing hefur út árið 2018 til að selja hlut sinn í Arion banka og for­svars­menn félags­ins vilja ekki draga skrán­ingu of nálægt þeim tíma­mörkum.

Við­mæl­endur Kjarnans innan líf­eyr­is­sjóða­kerf­is­ins segja að málið sé á algjöru frum­stigi. Kynn­ing­arnar hafi verið haldnar að frum­kvæði ráð­gjafa Kaup­þings og það geti vel verið að málið verði ein­fald­lega blásið út af borð­inu fljótt. Allt muni þetta þó velta á því hvaða verð verði í boði.

Við­mæl­endur Kjarnans búast ekki við því að eig­in­legar við­ræður muni fara fram, gefi þeir kaup­unum undir fót­inn. Þess í stað muni Kaupþing ein­fald­lega gera sjóð­unum til­boð sem þeir muni annað hvort taka eða hafna.

Geta fengið háar bónusgreiðslur takist að selja allar eignir

Stefnt hefur verið að sölu á Arion banka í tölu­vert langan tíma. Kaupþing ehf., eign­ar­halds­fé­lag utan um eft­ir­stand­andi eignir þrota­bús hins fallna banka, hélt á 87 pró­sent hlut í Arion banka eftir að gengið hafði verið frá upp­gjöri milli þeirra og rík­is­ins í byrjun árs 2016. Og ríkið hélt áfram á 13 pró­sent hlut.

[adspot]Í sam­komu­lag­inu við kröfu­haf­anna stóð líka að íslenska ríkið ætti for­kaups­rétt á hlutum í Arion banka ef bank­inn yrði seldur fyrir virði sem væri 80 pró­sent eða minna af bók­færðu eigin fé. Sömu­leiðis getur ríkið geti leyst Arion banka til sín ef ekki tæk­ist að selja hann fyrir árs­lok 2018.

Í ágúst 2016 var greint frá því að um 20 starfs­menn Kaup­þings gætu fengið allt að 1,5 millj­arða króna í bón­us­greiðslur ef mark­mið um hámörkun á virði óseldra eigna myndi nást. Þessar bón­us­greiðslur ættu að greið­ast út eigi síðar en í lok apríl 2018. Langstærsta óselda eignin á þeim tíma var 87 pró­sent hlutur Kaup­þings í Arion banka. Og sú eign er enn að hluta óseld.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Kaup­þingi þá verða bón­us­greiðsl­urnar að óbreyttu greiddar út fyrir lok apríl. Þau við­skipti sem áttu sér stað með hluti í Arion banka í fyrra hafa áhrif á umfang þeirra en fyr­ir­hugað hluta­fjár­út­boð á eft­ir­stand­andi 57,4 pró­sent hlut Kaup­þings mun ekki gera það.

Hafa áður reynt að selja lífeyrissjóðum

Þetta er ekki í fyrsta sinn reynt hefur verið að selja íslenskum líf­eyr­is­sjóðum hlut í bank­anum. Strax í nóv­em­ber 2015 var greint frá því að stærst­u líf­eyr­is­­sjóðir lands­ins hefðu hug á því að kaupa Arion banka af kröf­u­höf­um ­Kaup­­þings og að þeir hefði ráðið menn til að halda sér­­stak­­lega utan um það ­ferli. Það gerð­ist í kjöl­far þess að fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tæk­in Virð­ing og Arctica Finance reyndu að setj­a ­saman hóp til að kaupa bank­ann, m.a. með aðkomu líf­eyr­is­­sjóð­anna. Þeir ákváðu frekar að sleppa milli­­liðnum og ráð­­ast sjálfir beint í það verk­efni að reyna að eign­­ast bank­ann.

[adspot]Stærst­u líf­eyr­is­­­sjóð­ir lands­ins, Líf­eyr­is­­­sjóður starfs­­­manna rík­­­is­ins, Líf­eyr­is­­­sjóð­­ur­ versl­un­­­ar­­­manna og Gildi líf­eyr­is­­­sjóður leiddu verk­efn­ið. Öll­u­m líf­eyr­is­­­sjóð­u­m lands­ins var boðið að vera með. Í ágúst 2016 virt­ist sem að þessi áform væru runnin út í sand­inn.

Þráð­ur­inn var þó tek­inn aftur upp snemma árs 2017 þegar stærstu eig­endur Kaup­þings reyndu að fá stærstu líf­eyr­is­sjóð­ina til að kaupa 25-30 pró­sent hlut í Arion banka. Þeim við­ræðum var á end­anum slitið í mars 2017 með hvelli.

Vogunarsjóðir og Goldman Sachs kaupa af sjálfum sér

Þá var til­­­kynnt að fjórir aðil­­­ar, vog­un­­­ar­­­sjóð­irn­ir Taconic Capital, Och-Ziff CapitalManagement, Attestor Capital og fjár­­­­­fest­inga­­­bank­inn Goldman Sachs hefðu keypt sam­tals 29,18 pró­­­­sent hlut í Arion banka af Kaup­­­­þingi á 48,8 millj­­­­arða króna. Verðið sem greitt var fyrir er um 0,8 krónur á hverja krónu af bók­­­­færðu eigin fé Arion banka, eða rétt yfir því verði sem hefði virkjað for­kaups­rétt rík­is­ins.

Umræddir aðilar áttu fyrir við­skiptin 66,31 pró­sent hlut í Kaup­þingi. Í við­­­­skipt­unum fólst því að eig­endur ⅔ hluta Kaup­­­­þings voru að kaupa stóran hluta í Arion banka á eins lágu verði og mög­u­­­­legt var fyrir þá án þess að virkja ákvæði sem gerði íslenska rík­­­­inu kleift að ganga inn í kaup­in. Að stærstu leyti af sjálfum sér.

Til við­­­­bótar átti þessi hópur kaup­rétt á 21,9 pró­­­­sent hlut í Arion banka. Hefðu þeir nýtt hann yrðu vog­un­­­­ar­­­­sjóð­irnir þrír og Goldman Sachs beinir eig­endur að meiri­hluta í Arion banka.

Síðar kom í ljós að skrifað hefði verið undir drög að kaup­samn­ingnum 12. febr­úar 2017. Það var gert svo að hægt yrði að miða kaupin við níu mán­aða upp­gjör Arion banka, þar sem eigið fé bank­ans var lægra en í árs­upp­gjör­inu, og upp­hæðin sem þyrfti að greiða fyrir hlut­inn gæti því verið lægri. Til þess að slíkt væri mögu­legt þurfti að skrifa undir fyrir 13. febr­ú­ar. Þrátt fyrir und­ir­skrift­ina 12. febr­úar hafi við­ræðum við íslenska líf­eyr­is­sjóði um aðkomu að kaup­unum verið haldið áfram allt fram til 19. mars, þegar skyndi­lega var til­kynnt um kaup vog­un­ar­sjóð­anna og Goldman Sachs á sunnu­dags­eft­ir­mið­degi. Í kjöl­farið var við­ræðum við þá slitið.

For­svars­menn líf­eyr­is­sjóð­anna voru fjarri því að vera ánægðir með þessa stöðu. Og kröfð­ust meðal ann­ars bóta frá Kaup­þingi. Sam­komu­lag náð­ist á end­anum vegna útlagðs kostn­aðar sjóð­anna, sem var um 60 millj­ónir króna.

Hætt við skráningu vegna pólitískrar óvissu

Í ágúst 2017 var til­kynnt að vog­un­ar­sjóð­irnir og Goldman Sachs ætl­uðu sér ekki að nýta sér kaup­rétt á 21,9 pró­­sent hlut sem þeir höfðu samið um, og þurftu að nýta fyrir 19. sept­­em­ber það sama ár.

Enn var þó stefnt að því að skrá Arion banka á markað, á Íslandi og mögu­lega í öðru landi líka, á seinni hluta árs­ins 2017. Frá því var fallið í sept­em­ber í kjöl­far þess að rík­is­stjórn Bjarna Bene­dikts­sonar sprakk og boðað var til kosn­inga. Ástæðan var póli­tísk óvissa.

Þess í stað er stefnt að skrán­ingu á fyrsta árs­fjórð­ungi árs­ins 2018.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár