HS Orka segir lán eigenda hafa verið nauðsynlegt til fjármögnunar í Svartsengi

Orku­fyr­ir­tækið HS Orka hafnar gagn­rýni á lán­töku hjá eig­endum sínum og segir láns­skil­mála í eig­enda­láni hafa verið metna á mark­aðs­grund­velli. Lánið sé fram­lag eig­enda á móti fram­kvæmda­láni, sem við­skipta­banki orku­fyr­ir­tæk­is­ins hafi kraf­ist.

Framkvæmdalán
Fram­kvæmda­lán Í skrif­legu svari við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar segja full­trúar HS Orku að nauð­syn­legt hafi verið að fá fram­lag frá eig­endum til að ráð­ast í fram­kvæmdir við stækkun og end­ur­bætur orku­vers fyr­ir­tæk­is­ins í Svarts­engi. Mynd: HS Orka

HS Orka segir að millj­arða­lán frá eig­endum sínum hafi verið nauð­syn­legt til að fjár­magna stækkun og end­ur­bætur orku­vers­ins í Svarts­engi, sem hófust vorið 2022. Í svari fyr­ir­tæk­is­ins við fyr­ir­spurn Heim­ild­ar­innar, vegna gagn­rýni Indriða H. Þor­láks­sonar, fyrr­ver­andi rík­is­skatt­stjóra, á lán­tök­una, kemur fram að lán­inu hafi verið ætlað að tryggja að verkið gæti gengið sam­kvæmt áætlun og að fram­kvæmda­lán við­skipta­banka hafi gert kröfu um aðkomu eig­enda að fjár­mögn­un­inni. 

Heild­ar­kostn­aður við verk­efnið er áætl­aður um 12,5 millj­arðar króna og, að sögn HS Orku, hafi hlut­haf­a­lánið numið um 40 pró­sentum af þeirri fjár­hæð. „Hlut­haf­a­lánið gerði fram­kvæmdir við stækkun og end­ur­bætur orku­vers­ins í Svarts­engi mögu­legar,“ segir í svari fyr­ir­tæk­is­ins. „Þær voru nauð­syn­legar til að end­ur­nýja eldri búnað orku­vers­ins og auka öryggi, hag­kvæmni og sveigj­an­leika í rekstri.“

Metið á „markaðskjörum“

Í svari HS …

Kjósa
11
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • Hlynur Jörundsson skrifaði
    Fæstir átta sig á að þetta getur verið rétt hjá Indriða og rétt hjá HS Orku... ástæðan er að ríkisvaldið og löggjafinn búa til svona smugur sem flestir kallla Ginnungap að stærð. Og þið getið bókað að menn skoða ekki meira en þeir þurfa. Af hverju haldið þið að Skattrannsóknarembættið var innlimað í skattinn ? Af hagkvæmisástæðum ? Ef þið trúið því þá eigið þið þetta bara skilið.
    1
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár