Norð­fjörð-frændur í blíð­unni Nökkvi Norð­fjörð og Leó Norð­fjörð, sonur Ísoldar, systur hans, eru hluti af einni öfl­ug­ustu þrí­þraut­ar­fjöl­skyldu lands­ins. Leó hefur fylgt fjöl­skyld­unni í keppni og æfingar frá fæð­ingu. Kepp­endur tóku sun­dæf­ingar í sjónum dag­ana fyrir keppni til að kynn­ast aðstæðum vel. Mynd: Golli

Járnvilji, vonir og vinskapur

Járn­karlinn er þrekraun sem krefst þess að synda 3.800 metra, hjóla 180 kílómetra og hlaupa heilt maraþon, en hver þrautin tekur við af annarri. Fyrr fáeinum dögum flykktust hundrað Íslendingar til Portúgals til að keppa í heilum eða hálfum Járnkarli og sigrast á sjálfum sér.

Fimm þúsund manns standa þétt á og við litla sand­strönd við bæinn Cascais í Portúgal eldsnemma á laugardags­morgni í október. Öll eru klædd níðþröngum sund­göllum með sund­hettur á höfði og sund­gleraugu yfir. Spennu­stigið er hátt og fæst hafa náð að sofa vel nóttina áður, þurft að rífa sig upp löngu fyrir birtingu til að næra sig og komast á staðinn. Þau hafa undirbúið sig lengi fyrir þessa stund, að geta, þegar bjallan klingir, hlaupið út í sjó og synt í átt að sólar­uppkomunni. Þau stefna öll að því að verða Járn­karlar, heilir eða hálfir, en það eiga eftir að líða margir klukku­tímar þangað til þau geta fagnað þeim titlum, klukku­tímar af sundi, hjóli og hlaupi.

Í þessum risahópi sem hefur raðað sér berfættur á sand­ströndina eru tæplega hundrað Íslendingar tilbúnir í slaginn, reynslu­boltar og nýgræðingar. Í áhorfenda­skaranum, sem hefur yfirtekið miðborgina í þessum fallega strandbæ, má sjá íslenska fána …

Kjósa
6
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið undanfarið ár