Allir sem koma til landsins þurfa að fara í sóttkví

Í minn­is­blaði sótt­varna­læknis sem sent hefur verið heil­brigð­is­ráð­herra er lagt til að allir sem koma til lands­ins þurfi að fara í tveggja vikna sótt­kví.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir.
Þórólfur Guðnason sótt­varna­læknir. Mynd: Lögreglan

Í minn­is­blaði sem sótt­varna­læknir hefur sent heil­brigð­is­ráð­herra er lagt til að allt fólk sem komi hingað til lands fari í sótt­kví í tvær vikur. Ein­hverjar und­an­þágur verða þó heim­il­aðar frá því að sögn Þórólfs Guðna­sonar sótt­varna­læknis. Hingað til hafa aðeins Íslend­ingar og aðrir sem búsettir eru hér á landi þurft að fara í sótt­kví eftir ferða­lög erlendis.

Þórólfur sagði að hingað til hafi verið beitt svo­kall­aðri sótt­kví B í und­an­tekn­ing­ar­til­fellum. Hún felur í sér að fólk sem er að koma erlendis frá til sér­tækra og mik­il­vægra starfa er sett í sótt­kví saman og þannig skermað af frá öðrum. Þessu verður vænt­an­lega beitt áfram þegar nauð­syn krefur.

Þessi nýja sótt­varna­ráð­stöfun verður sam­kvæmt til­lög­unni í gildi til 15. maí. Að þeim tíma lið­inum verður hún end­ur­skoðuð með til­liti til þró­unar far­ald­urs­ins hér á landi sem og ann­ars staðar í heim­inum.

Heil­brigð­is­ráð­herra mun birta aug­lýs­ingu um þetta í dag eða á morgun, sagði Þórólfur á upp­lýs­inga­fundi almanna­varna í dag. 15. maí er ekki langt í burtu, sagði hann. „Við vildum hafa þetta í til­tölu­lega afmark­aðan tíma í byrjun og sjá hvernig þró­unin verður. Sjá hvort þurfi að fram­lenga eða gera eitt­hvað annað.“

Þórólfur sendi einnig annað minn­is­blað til ráð­herr­ans í dag. Í því er að finna til­lögur um ýmis atriði sem varða aflétt­ingu tak­mark­ana sem stefnt er að 4. maí. Til­lög­urnar snerta m.a. skóla­hald og íþrótta­starf barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár