Meirihluti fjárlaganefndar gerir ásakanir Víglundar að sínum

Meiri­hluti fjár­laga­nefndar hefur unnið skýrslu sem byggir á ásök­unum Víg­lundar Þor­steins­sonar um stjórn­mála- og emb­ætt­is­menn hafi beygt sig fyrir kröfu­höfum og tekið hags­muni þeirra fram yfir hags­muni Íslands. Mála­til­bún­að­inum hefur margoft verið hafnað.

Guðlaugur Þór Þórðarson og Vigdís Hauksdóttir kynntu skýrsluna í gær.
Guð­laugur Þór Þórð­ar­son og Vigdís Hauks­dóttir kynntu skýrsl­una í gær.

Skýrsla meiri­hluta fjár­laga­nefndar Alþingis, „Einka­væð­ing bank­anna hin síð­ari“ var kynnt í gær. Hún er í öllum meg­in­at­riðum end­ur­tekn­ing á þeim ásök­unum sem Víglundur Þor­steins­son hefur lagt fram þrí­vegis á und­an­förnum árum. Þeim ásök­unum hefur verið hafnað af þeim ein­stak­lingum sem þær bein­ast að, þeim stofn­unum sem komu að mál­inu og í áliti sem unnið var fyrir stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd fyrir rúmu einu og hálfu ári síðan.

Samkvæmt ásök­un­unum ákvað rík­is­stjórn Jóhönnu Sig­urð­ar­dóttur, og sér­stak­lega fjár­mála­ráðu­neytið undir stjórn Stein­gríms J. Sig­fús­sonar, í sam­starfi við emb­ætt­is­menn og Seðla­banka Íslands, að hefja aðför gegn neyð­ar­lög­unum í febr­úar 2009 með það að mark­miði að færa kröfu­höfum föllnu bank­anna betri end­ur­heimtir. Í þess­ari aðför var ákveðið að hundsa þau drög að stof­nefna­hags­reikn­ingum nýju bank­anna þriggja sem birt voru á heima­síðu Fjár­mála­eft­ir­lits­ins (FME) 14. nóv­em­ber 2008. Í skýrsl­unni er síðan reiknað út að rík­is­sjóður hafi tekið á sig 296 millj­arða króna í áhættu í þágu kröfu­hafa með þessum aðgerðum.

Í frétta­til­kynn­ingu segir að skýrslan taki „af allan vafa um áhættu skatt­greið­enda sem átti sér stað við afhend­ingu bank­anna til kröfu­hafa.[...]Ekki verður önnur ályktun dregin en að samn­inga­gerðin afi að stórum hluta gengið út á að frið­þægja kröfu­haf­ana með því að afhenda þeim eign­ar­hald á bönk­unum.“

Tveir nefndarmenn borguðu fyrir skýrsluna

Skýrslan var kynnt á blaða­manna­fundi í fund­ar­her­bergi fjár­laga­nefndar í gær. Vigdís Hauks­dóttir, for­maður fjár­laga­nefndar, og Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, vara­for­maður hennar, sáu um kynn­ingu á henni.

Á fund­inum vildi Vigdís ekki svara því til hverjir hefðu komið að gerð skýrsl­unnar utan nefnd­ar­manna og starfs­manna fjár­laga­nefndar. Hún sagði að aðilar með sér­fræði­þekk­ingu hefðu sett sig í sam­band við nefnd­ina og lagt fram vinnu, en vildi ekki til­greina hverjir þeir væru. Heild­ar­kostn­aður við gerð skýrsl­unnar var sagður 90 þús­und krónur og greiddu Vigdís og Guð­laugur Þór hann úr eigin vasa.

Helgi Bern­ód­us­son, skrif­stofu­stjóri Alþingis, segir að engin beiðni hafi borist um greiðslu sér­fræði­kostn­aðar vegna gerðar skýrsl­unnar. Hann veit ekki til þess að for­dæmi séu fyrir því að nefnd­ar­menn greiði sjálfir kostnað vegna skýrslu­gerðar.

Helgi segir skýrsl­una vænt­an­lega verða þing­skjal sem skýrsla meiri­hluta fjár­laga­nefndar og því ætti hún að birt­ast á vef Alþingis.

Minni­hluti fjár­laga­nefndar kom ekk­ert að gerð skýrsl­unnar og Oddný Harð­ar­dóttir, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar sem situr í nefnd­inni, gagn­rýndi gerð hennar harð­lega áMorg­un­vakt­inni á Rás 1 í morgun og sagði að hún vilji fá að vita hvernig skýrslan hafi verið unnin.

Eignir teknar gegn því að greitt yrði fyrir þær síðar

Til að átta sig á hvað málið allt snýst um þarf að hverfa aftur til októ­ber 2008, þegar íslenska banka­kerfið hrundi við for­dæma­lausar aðstæður og neyð­ar­lög voru sett í land­inu. Stór hluti stærstu fyr­ir­tækja lands­ins urðu tækni­lega gjald­þrota, þús­undir heim­ila glímdu skyndi­lega við mik­inn skulda­vanda og rík­is­sjóður fór frá því að vera skuld­laus og fullur í að vera tómur og stór­skuld­ugur. Til að takast á við þennan vanda þurfti að end­ur­reisa banka­kerfið sem hafði hrunið með ein­hverjum hætti.

Neyð­ar­lögin gerðu eignir allra hlut­hafa í bönk­unum þremur sem FME tók yfir að engu. Þau breyttu líka kröfu­röð til að tryggja að allar íslenskar inni­stæður nytu for­gangs og eignir voru teknar úr þrota­búum þess­ara banka og færðar inn í nýja með inni­stæð­un­um. Kröfu­haf­arnir sem lánað höfðu íslenskum bönkum háa fjár­muni, töp­uðu þús­undum millj­arða króna. Þeir áttu síðan mögu­leika að fá hluta þess taps til baka þegar búið væri að gera upp slitabú Kaup­þings, Lands­banka Íslands og Glitnis.

FME gerði bráða­birgða­mat á virði þeirra eigna sem færðar voru yfir í nýju bank­anna og birti á heima­síðu sinni 14. nóv­em­ber 2008. Í neyð­ar­lög­unum var sér­stak­lega var tekið fram að FME væri heim­ilt „að taka í sínar vörslur þær eignir sem mæta eiga skuld­bind­ingum fjár­mála­fyr­ir­tækis og láta meta verð­mæti eigna og ráð­stafa þeim til greiðslu áfall­inna krafna eftir því sem þörf kref­ur“. Það var því ljóst frá byrjun að þær eignir sem teknar voru úr þrota­bú­unum yrðu metnar og síðan yrði greitt fyrir þær sann­virði.

Í stað þess að rík­is­sjóður fjár­magn­aði nýju bank­anna að fullu, líkt og lagt var upp með við hrunið, var ákveðið að erlendir kröfu­hafar myndu eign­ast hlut í þeim og eignir þeirra yrðu not­aðar til slíks. Þar með losn­aði gal­tómur rík­is­sjóður við að leggja nýju bönk­unum til mikið eigið fé. Þegar búið var að fjár­magna bank­anna var hægt að end­ur­skipu­leggja atvinnu­lífið og skuldir heim­ila lands­ins. Þeirri vinnu er í dag að lang­mestu lokið.

Þegar kom að því að veita slita­búum föllnu bank­anna und­an­þágu frá fjár­magns­höftum til að ljúka slitum sínum var sett fram krafa um að þeir gæfu eftir hluta eigna sinna til að ógna ekki greiðslu­jöfn­uði íslensks efna­hags. Á þetta féllust þeir og „greiddu“ 384,3 millj­arða króna í svokölluð stöð­ug­leika­fram­lög. Langstærsti hlut­inn er 288,2 millj­arða fram­lag vegna við­skipta­bank­anna Íslands­banka og Arion banka. Hið ætl­aða tap vegna einka­væð­ing­ar­innar hinnar síð­ari varð því aldrei að veru­leika.

Víglundur stígur fram...þrisvar

Víglundur Þor­steins­son hefur stigið þrí­vegis fram á und­an­förnum árum og sagt að samn­ing­arnir við kröfu­haf­anna, sem kall­aðir hafa verið einka­væð­ingin hin síð­ari, stand­ist ekki lög né stjórn­ar­skrá. Ekki hafi verið heim­ilt að semja við kröfu­hafa né að víkja frá þeim drögum að stof­nefna­hags­reikn­ingum bank­anna sem birt voru í nóv­em­ber 2008, um mán­uði eftir banka­hrun.

Þegar Víglundur steig fram með ásak­anir sínar í þriðja sinn í jan­úar 2015 þá byggðu þær á nákvæm­lega sömu gögnum og vísað er til í skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar. Þá hélt Víglundur því fram að Íslend­ingar hefðu verið rændir um 300-400 millj­arða króna þegar samið var um kröfu­hafa. Hann ásak­aði stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn í ráðu­neytum og starfs­menn eft­ir­lits­stofn­ana hafa tekið sig saman í þessu sam­særi gegn þegnum lands­ins. Í því sam­særi hafi þeir gerst sekir um stór­felld brot á hegn­ing­ar­lögum og stjórn­ar­skrá.

Skýrsla meiri­hluta fjár­laga­nefndar er ekki jafn afger­andi í ásök­unum sínum, en þær eru samt sem áður alvar­legar. Í inn­gangi hennar segir m.a. að hún varpi ljósi á „hvernig kröfu­höfum voru færðir íslensku bank­arnir með mik­illi með­gjöf frá skatt­greið­endum með gríð­ar­legri áhættu fyrir rík­is­sjóð árið 2009.“

Ástæðan fyrir því að Víglundur tal­aði um rán en skýrsla meiri­hluta fjár­laga­nefndar um áhættu er sú að íslenska ríkið hefur eign­ast nýju bank­anna að mestu á und­an­förnu ári. Ríkið hefur því ekki tapað neinu á aðkomu erlendu kröfu­haf­anna að eign­ar­haldi Arion banka, Íslands­banka og um tíma hlutar í Lands­bank­anum. Þvert á móti er hagn­aður rík­is­sjóðs vegna þessa áætl­aður á annað hund­rað millj­arðar króna. Og „einka­væð­ingin“ sem skýrslan fjallar um er nán­ast að öllu leyti gengin til baka

Friðþæging eða að sefa

Í skýrslu meiri­hluta fjár­laga­nefndar segir að fylgi­skjöl hennar sýni „und­ar­legan ótta samn­inga­manna við kröfu­haf­anna og van­mátt­ar­kennd gagn­vart hátt laun­uðum lög­fræð­inga­her þeirra. Þau sýna sér­kenni­lega áráttu íslenska samn­inga­fólks­ins til að gæta hags­muna við­semj­enda sinna og tryggja að þeir bæru ekki skarðan hlut frá borði.“

Lyk­il­at­riði í kynn­ingu á skýrsl­unni, sem notað er til að draga þessa ályktun, er fund­ar­gerð stýrinefndar rík­is­stjórn­ar­innar og ráð­gjafa hennar, Hawkpoint, frá 10. mars 2009. Í frétta­til­kynn­ingu sem send var út vegna útkomu skýrsl­unnar segir að í þess­ari fund­ar­gerð megi finna „sér­stakt við­horf samn­inga­manna rík­is­ins t.d. má nefna orð ráðu­neyt­is­stjóra í fjár­mála­ráðu­neyt­inu á fundi eftir að samn­ingar við kröfu­hafa voru komnir þangað inn á borð. Þar sagði hann „mik­il­vægt að trufla ekki sam­band skila­nefnd­anna og kröfu­haf­anna. Ríkið vill frið­þægja kröfu­hafa eins og mögu­legt er.““

Ráðu­neyt­is­stjór­inn sem um ræðir er Guð­mundur Árnason, sem er enn í dag ráðu­neyt­is­stjóri í fjár­mála­ráðu­neyt­inu.

Fund­ar­gerð­irnar sem vísað er til í skýrsl­unni hafa áður ratað í opin­bera umræðu. Víglundur Þor­steins­son fékk þær afhentar árið 2013. Í opnu bréfi sem hann sendi for­seta Alþingis í jan­úar 2014, þar sem hann fer yfir allar ásak­anir sínar og veltir því fyrir sér hvort kalla ætti Landsdóm saman til að rétta yfir þeim sem áttu að hafa fært kröfu­höfum hund­ruð millj­arða króna, er vísað í sömu fund­ar­gerðir. Þar er einnig talað um að rík­is­stjórnin hafi verið „á fullri ferð við að frið­þægja erlendu kröfu­haf­ana með því að opna fyrir leiðir til að fara fram­hjá neyð­ar­lög­unum og úrskurðum FME.“

Fund­ar­gerð­irnar voru rit­aðar á ensku en Víglundur, og meiri­hluti fjár­laga­nefndar, fengu lög­gilta skjala­þýð­endur til að þýða þær. Í báðum til­fellum komust þýð­end­urnir að þeirri nið­ur­stöðu að setn­ingin: „The state wants to app­e­ase the creditors to the extent possi­ble þýði „Ríkið vill frið­þægja kröfu­hafa eins og mögu­legt er“.

Samkvæmt orða­bók þýðir orðið „app­e­ase“ hins vegar ekki frið­þæg­ing, heldur að friða, róa, stilla eða sefa. Enska orðið fyrir frið­þæg­ingu er „ato­nem­ent“.

Brynjar Níelsson hafnaði málatilbúnaðinum í skýrslu

Umræddar ásak­anir Víg­lundar, og nú meiri­hluta fjár­laga­nefndar, hefur margoft verið hafnað af ýmsum aðilum. Fjár­mála­eft­ir­litið sendi frá sér til­kynn­ingu í byrjun árs í fyrra þar sem það hafn­aði því að drög að stof­nefna­hags­reikn­ingum nýju bank­anna hafi verið eitt­hvað annað en drög. Í til­kynn­ing­unni sagði: „því er rang­lega haldið fram að Fjár­mála­eft­ir­litið hafi með stofnúr­skurði mælt fyrir um afskriftir á ein­stökum lán­um. Eins og áður greinir tók Fjár­mála­eft­ir­litið ákvarð­anir um hvaða eignir og skuldir færu yfir til nýju bank­anna og eftir hvaða ferli skyldi meta virði þeirra. Þau fylgi­skjöl sem nú hafa birst opin­ber­lega, drög að stof­nefna­hags­reikn­ingum bank­anna þriggja frá í októ­ber 2008, höfðu þann eina til­gang að leiða fram gróft mat á efna­hag bank­anna við upp­haf rekst­urs þeirra, stöðu sem fyr­ir­ fram var vitað að tæki breyt­ingum á grund­velli áður­nefnds mats­ferl­is. Enn­ fremur er rétt að benda á að FME kveður almennt ekki upp úrskurði.“

Fjár­mála­ráðu­neytið hefur einnig hafnað ásök­unum Víg­lundar. Í frétta­til­kynn­ingu frá því í ágúst 2012 sagði það: „Dylgjum um að ráðu­neytið, rík­is­stjórn eða ein­stakir ráð­herrar hafi haft afskipti af ein­stökum lánum eða lán­veit­endum er alfarið vísað á bug“.

Stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd tók málið til skoð­unar eftir að Víglundur rit­aði hið opna bréf til for­seta Alþingis. Brynjar Níelsson, þing­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, hæsta­rétt­ar­lög­maður og vara­for­maður nefnd­ar­innar, tók að sér að fara yfir erindið og gefa stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd álit sitt á því.

Í nið­ur­stöðu sinni, sem birt var 17. febr­úar í fyrra, sagði Brynjar að úti­lokað væri að taka undir þau sjón­ar­mið sem Víglundur hefði sett fram um að bráða­birgða­mat FME hefði verið end­an­legur úrskurður um verð­mæti eigna sem færðar voru með handafli rík­is­ins yfir til nýju bank­anna.Í skýrsl­unni segir að „eignir gömlu ­bank­anna eru varðar af eign­ar­rétt­ar­á­kvæði stjórn­ar­skrár­inn­ar. Frá­leitt væri því að ætla þeim, sem tekur eignir eign­ar­námi, að meta verð­mæti þeirra og án allrar aðkomu þess sem þola þarf eign­ar­nám­ið. Enda verður ekki annað ráðið af gögnum máls­ins en að hér hafi ein­göngu verið um við­mið að ræða en ekki end­an­legt mat á verð­mæti eign­anna.“

Þá hafa Þor­steinn Þor­steins­son og Jóhannes Karl Sveins­son, sem voru í lyk­il­hlut­verkum við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins, einnig hafnað þessum ásök­unum ítrekað í grein­ar­skrifum, meðal ann­ars í slíkir sem birt­ist á Kjarn­anum 28. jan­úar 2015.

Loks hefur Bjarni Bene­dikts­son lýst því yfir opin­ber­lega að hann efist um ásak­anir þess efnis að lög­brot hafi verið framin við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins.

Sigmundur Davíð vildi að kröfuhafar fengu bankana

Í þeim ásök­unum sem fram hafa verið settar gagn­vart vinstri­st­jórn­inni sem sat frá 1. febr­úar 2009 í þessu máli hefur verið horft fram hjá því að við­ræður um að erlendir kröfu­hafar myndu eign­ast í nýju bönk­unum voru hafnar þegar hún tók við.

Björg­vin G. Sig­urðs­son, fyrr­ver­andi við­skipta­ráð­herra í rík­is­stjórn Geirs H. Haarde, greindi frá því í sjón­varps­við­tal á RÚV 3. des­em­ber 2008 að rík­is­stjórnin vildi bjóða erlendum kröfu­höfum hlut í nýju bönk­unum og að tveir vinnu­hópar á vegum fjár­mála­ráðu­neytis og skila­nefnda gömlu bank­anna væru að vinna að útfærslu á því. Form­legar við­ræður við kröfu­haf­anna myndu hefj­ast 11. des­em­ber 2008. Margt mælti með því að erlendir kröfu­hafar myndu eign­ast hlut í íslensku bönk­un­um. Þáver­andi fjár­mála­ráð­herra var Árni Mathies­en, Sjálf­stæð­is­flokki.

Ný minni­hluta­stjórn Sam­fylk­ingar og Vinstri grænna tók síðan við völdum 1. febr­úar 2009 og sat fram að kosn­ingum 25. apríl sama ár. Hún var varin falli fram að kosn­ingum af Fram­sókn­ar­flokknum og for­manni hans, Sigmundi Davíð Gunn­laugs­syni. Sigmundur Davíð fór í við­tal við Frétta­blaðið 21. febr­úar 2009. Þar var hann meðal ann­ars spurður út í hvað hann vildi sjá verða um bank­ana. Sig­mundur Davíð svar­aði þeirri spurn­ingu á eft­ir­far­andi hátt: „Að mínu mati er lang­besta leiðin að erlendir kröfu­hafar eign­ist hlut í bönk­unum. Fyrir því eru nokkrar ástæður, helst þær að með því öðl­ast banka­kerfið aukið traust - því miður er traust á íslenskum stjórn­völdum og banka­kerfi ákaf­lega lítið. Þá dregur það úr þeirri hættu að þau mis­tök sem voru gerð end­ur­taki sig. Ef bank­arnir fara í eigu erlendu kröfu­haf­anna þá hafa þeir ríka ástæðu til að bönk­unum gangi vel og halda þeim gang­andi. En til að þetta megi verða þarf að tryggja stöðu þeirra sem skulda bönk­unum að því leyti að ekki verði gengið að þeim og íslenskt efna­hags­líf lagt í rúst. Sé það tryggt þá er þetta besta leiðin.“

Formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins var því sam­mála því mati á þeim tíma að rétt væri að semja við erlendu kröfu­haf­anna um að þeir myndu eign­ast í íslensku bönk­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár